Fálkinn - 29.01.1960, Síða 15
FÁLKINN
15
geimferðina. Flestir þeirra eru þaul-
reyndir bæði á sál og líkama. Þeir
eru á aldrinum 32—37 ára, og vert
er að geta þess, að þeir eru allir
kvæntir.
Æfing í ár.
Enginn veit — ekki einu sinni
þessir sjö — hver hlýtur þann heið-
ur að verða fyrsti ameríski
geimfarinn, en eitt er víst: það
verður einhver þessara sjö. En von
bráðar verður maðurinn valinn,
því að ráðgert er að aðalæfing
verði höfð á þessu ári. Þá verður
geimfaranum skotið í hylki upp í
270 kílómetra hæð, með Jupíter-
eldflaug, en á að koma beinustu ieið
til baka, án þess að fara kringum
hnöttinn, og lenda á þann hátt, sem
lýst hefur verið hér að framan.
En hvað líður Rússum?
Þeir hafa aldrei gumað af áform-
um sínum fyrir fram, en látið verk-
in tala. En þó hafa þeir látið það
uppi, að þeir séu að æfa menn und-
ir geimför. Það er samkeppni milli
þeirra og USA á þessu sviði, og
Rússar hafa haft betur hingað til,
svo að ætla mætti að þeir yrðu
fyrstir manna til þess að senda
mann út í himingeiminn — og
leggja undir sig allt sólkerfið, sem
við teljumst til.
^<
* ^krítlur
— Heyrið þér læknir, mig langar
til að vita hvað gengur að mér.
— Það er þrennt sem gengur að
yður, frú. Þér eruð of feitar, notið
of mikla málningu og svo eruð þér
nærsýn. Það stendur nefnilega
dýralæknir en ekki læknir á dyra-
spjaldinu mínu.
-K
Fölur og tekinn til augnanna kom
heildsalinn á skrifstofuna. Hann
hafði legið andvaka margar nætur
í röð.
— Reynið þér að telja sauði, sagði
meðeigandinn. — Það er ágætt við
svefnleysi.
Haldið þér, að ég hafi ekki reynt
það? Ég taldi fimmtíu þúsund sauði
í nótt, svo rúði ég þá og bjó til
50.000 frakka úr ullinni. En þegar
það var gert kom nýtt viðfangsefni
til að halda vöku fyrir mér, það
sem eftir var næturinnar. Hvernig
átti ég að útvega fóður handa öllum
þessum sauðum og menn í alla
þessa frakka?
Gamla konan rak tærnar í gang-
stéttarbrúnina og datt. Hjálpsamt
fólk kom að, og reisti hana á fætur.
— Ojá, stundi hún, — þegar mað-
ur er orðinn gamall hættir manni
við að hrasa. — Og þó (bætti hún við
er hún leit á ungan og föngulegan
mann hjá sér) er manni enn hætt-
ara við hrösuninni þegar maður er
ungur.
*
Maður, sem hafði verið fátækur
alla sína ævi, var vakinn með þeirri
frétt einn morguninn, að hann hefði
unnið milljón sterlingspunda í írska
happdrættinu. í gleði sinni keypti
hann sér stóra jörð, reisti höll þar
og lét gera þrjár sundlaugar, eina
með heitu vatn, aðra með köldu, en
sú þriðja var tóm. Einu sinni þeg-
ar einn vinur hans heimsótti hann,
varð hann hrifinn af óðalssetrinu,
en — sagði hann: „Hvað ætlarðu
að gera við þessa tómu laug?“
Ríki maður: „Þú yrðir hissa ef þú
vissir hve margir af gestunum mín-
um kuna ekki að synda.“
*
— Er hann pabbi þinn heima?
— Nei, hann hefur ekki verið
heima síðan hún mamma kom að
jólasveininum þegar hann var að
kyssa matreiðslustúlkuna.
INDÍANA-PRÉDIKARI. — Þessi
skrautbúni öldungur, sem er 88
ára Indíánahöfðingi og heitir Walk-
ing Buffalo og telst til Stone-Indí-
ánakvíslarinnar, hefur nú gerzt á-
hangandi „siðvæðingar-hreyfingar"
dr. Buchmans. — Hefur hann ný-
lega lagt upp í alheimsferðalag til
þess að vinna að því, að bæta sið-
ferðishugsjónir mannkynsins og
gera heiminn betri en hann er nú.
— Það væri engin vanþörf á því.
TILVONANDIHLJÓMSVEITAR-
STJÓRI. — MaSurinn, sem situr
og blæs í stóra lúðurinn, er ung-
ur herhljómsveitarleikari úr
gurkha-hersveit í Singapore. —
Hann er að læra hljóðfæraleik í
tónlistarskóla hersins í Twicken-
ham, og þegar hann hefur lok-
ið námi á næstunni á hann að
verða hljómsveitarstjóri eystra.
deginu finnst þessum litla apa í
„Whipsnade Zoo“ — sem er fræg-
asti dýragarður Englands, að frá-
töldum „London Zoo“ — kalt, og
þess vegna vefur hann pokanum
mn sig. Hann er ekki vanur svona
Ioftslagi — það var hlýrra í heim-
kynnum hans í Afríku.