Fálkinn - 17.06.1960, Qupperneq 2
2
FALÍLINN
Nú er sól og sumar, og
hvarvetno er hægt a<5 fó
NIVEA, til þess að njóta
loffs og sólar sem best.
Sumarliturinn er:
NIVEA-brúnn.
AC154
Reglan er þessi: Takið ekki
sólbað ó rakan líkamann.
Smávenjið húðina við
sólskinið og notið óspart
NIVEA:
FILATURES PROUVOST & Cie
IIO IJII A I V
Framleiða allskonar iðnaðargarn úr alull og ull bland-
aðri nylon og öðrum gerviefnum, í óteljandi litum og
þykktum.
Sérdeildir fyrirtækisins:
Laines Du Pingouin og La Lainére Roubaix
framleiða handavinnugarn úr alulli, svo og:
Angoragarn — Nylongarn — Babygarn
Teppagarn Á— Rayongarn — Mermogarn
og fjölmargar aðrar tegundir í öllum hugsanlegum litum.
Gæði framangreindra framleiðsluvara eru óviðjafnanleg og
hafa hlotið viðurkenningu hinna mörgu, sem reynt hafa.
Verð hefur ávallt reynzt að vera lægsta markaðsverð.
Fjölbreytt sýnishornasafn og litakort fyrirliggjandi hjá
einkaumboðinu á íslandi:
Heildverzlunin ÖLVIR h.f.
Miðstræti 12, Reykjavík.
Sími 15774. Símnefni: Ölvir.
Lístahátlð Þjóðleikh ússins
„Fyrsta mál á dagskrá" 10 ára
afmælis Þjóðleikhússins, tékkneska
óperan „Selda brúðurin" eftir Smet-
ana, hefur verið „samþykkt í einu
hljóði“ á 5 sýningum, og gestirnir
eru farnir heim. En um leið og
þeir fóru, kom maðurinn, sem varð
hetja næsta máls: stórsöngvarinn
Nicolai Gedda, frá Metropolitan-
óperunni, sem söng greifann í Rigo-
letto í tvö kvöld, en þá tók við
af honum annar sænskur söngvari,
Sven Erik Vikström. Hlutverk Gildu
leikur Stina Britta Melander, sem
ekki þarf að kynna, því að hún hef-
ur sungið hér fjórum sinnum áður
og söng m. a. aðalhlutverkið í „Kátu
ekkjunni11.
Blaðamenn áttu fyrir nokkru við-
tal við ungfrú Melander og Gedda
á skrifstofu þjóðleikhússtjóra. Varð
Gedda aðallega fyrir spurningum
þeirra. Hann á glæsilegan feril að
baki sér, af jafnungum manni að
vera. Síðustu 8 árin hefur hann
sungið í Stokkhólms-óperunni, Stóru
Parísar-óperunni, Scala-óperunni í
NEO tip
hafa öðlast miklar vinsældir
hjá dömum sem hafa reynt
þau. Þau leyfa óþvingaðar
hreyfingar, eru fyrirferðar-
lítil og þola steypiböð. —
Einnig hafa hentugar um-
búðir orðið vinsælar í með-
ferð.
Nicolai Gedda.
Milano og loks tvö síðustu árin í
Metropolitan í New York. Gedda
er einkar viðfelldinn og glæsilegur
maður — og röddin skírasta gull,
sem til er í barka nokkurs manns
núlifandi kynslóðar. Myndin, sem
hér fylgir, er tekin er hann var
að koma út úr flugvélinni.
Á mánudag var „í Skálholti11
Kambans leikið í síðasta sinn. Og
þá tók við ballettinn „Fröken Julie“
eftir Brigit Cullberg, sem kom
hingað til að sjá um þær sýningar.
Hún er talin færasti „koreograf“
Norðurlanda nú, og frábært dans-
fólk er í aðalhlutverkunum.
Arður til hluthafa
Á aðalfundi h.f. Eimskipafélags íslands 3. júní
1960 var samþykkt að greiða 10% — tíu af
hundraði — í arð til hluthafa, fyrir ánð 1 939.
Arðmiðar verða innleystir í aðalskrifstofu
félagsins í Reykjavík og hjá afgreiðslumönnum
félagsins um allt land.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.