Fálkinn - 17.06.1960, Side 5
FALKINN
5
• i r öllniit áttni
allt endaði í lukkunar velstandi,
eins og í æfintýrunum.
En þau urðu að berjast harðri
baráttu til að ná saman, það er að
segja hann. Fyrst í stað fékkst keis-
arinn ekki til að tala um þetta mál
við son sinn, það var svo fráleitt.
Foreldrarnir, hirðin og öll þjóðin
mátti ekki heyra nefnt, að keisara-
efnið giftist malaradótturinni. Það
fór í hart milli feðganna og keis-
arinn leitaði ásjár hjá ríkisstjórn-
inni og bað hana um að hjálpa sér.
Akihito krónprins hafði nefnilega
hótað að afsala sér ríkiserfðum ef
hann fengi ekki að eiga stúlkuna,
sem hann elskaði. Eitt blaðið efndi
til skoðanakönnunar meðal lesenda
sinna, og úrslitin urðu þau, að 80%
af lesendunum voru á móti þessum
ráðahag. Það blés ekki byrlega fyrir
hjónaleysunum. En svo gerðist at-
vik, sem gerbreytti skoðun míka-
dósins.
PRINSESSA FREMUR
SJÁLFSMORÐ.
Eisei prinsessa var dóttir kín-
versks prins og japanskrar prins-
essu. Pu-Yi frændi hennar var síð-
asti keisarinn í Kína, og hún var
ein af þeim, sem líklegastar þóttu
til þess að verða drottningarefni í
Japan. Var búizt við því, að trúlof-
un hennar og Akihito krónprins
yrði opinberuð þá og þegar, en
um þær mundir kynntist hann Mic-
hido. Eisei var send í háskóla til
þess að gleyma vonbrigðum sínum.
Þar kynntist hún ungum stúdent,
sem var sonur járnbrautamanns, og
þau trúlofuðust á laun. Þegar fjöl-
skylda Eisei komst að þessu komst
allt í uppnám, og henni var harð-
bannað að hitta þennan stúdent
oftar. Og foreldrar stúdentsins voru
stórhneyksluð yfir því, að sonur
þeirra skyldi hafa gerzt svo djarfur
að líta prinsessuna ástaraugum, og
bönnuðu honum að sjá hana framar.
En aðstandendurnir höfðu ekki
gert sér ljóst, hve heitt þau elsk-
uðust þessi ungu hjónaleysi. Einn
góðan veðurdag voru þau horfin,
og það tókst ekki að finna þau,
þrátt fyrir aðstoð lögreglunnar. Það
var auglýst eftir þeim í útvarpi, og
foreldrar prinsessunnar létu það
berast, að þau mundu leyfa þeim að
giftast.
En þá voru þau dáin. Þau fund-
ust á eyjunni Iza, ekki langt frá
Tókíó. Höfuð stúlkunnar hvíldi á
brjósti piltsins. Þau höfðu klippt
af sér hárlokk og stúf af nögl, og
vafið inn í silkipappír og lagt við
höfuðið á sér, en um þetta eru fyr-
irmæli í fornum lögum um harakírí.
Eisei hafði skrifað á blaðið: ,,Nú
gilda ný lög, en við deyjum sam-
kvæmt þeim gömlu.“
Þessi atburður hafði djúp áhrif
á Japana — líka keisarafjölskyld-
una — og það var vafalaust þess-
ari ástarsögu að þakka, að keisar-
inn sá að sér og leyfði syni sínum
að giftast malaradótturinni.
Nú er keisarinn orðinn hrifinn af
tengdadóttur sinni og á brúðkaups-
degi hennar var hún dubbuð upp í
prinsessu. Drottningin gaf henni
dýra demanta-festi, og öll hirðin
hafði allt í einu steingleymt, að hún
hefði nokkui’n tíma amazt við þess-
um ráðahag.
Það er talið vafalaust, að þessi
gifting verði til þess að þoka hin-
um keisaralegu „guðum“ nær þjóð-
inni. Og Michiko er þegar farin að
breyta ýmsum hinna æfagömlu siða
við hirðina. Samkvæmt gamalli
venju eru allir japanskir prinsar
aldir upp utan heimilisins, af sér-
stökum kennurum og fóstrum og
teknir frá móður sinni, þegar þeir
eru þriggja ára. En Michiko hefur
sagt, að það komi ekki til mála að
þannig verði farið með hennar börn.
Byggð hefur verið höll fyrir
krónprinshjónin og eru 43 herbergi
í henni og hún kostaði tæpa milljón
dollara. Þar hefur verið gerð sér-
stök „barnadeild“ alveg eins og hjá
Grace Monaco-prinsessu.
Áhrifin af þessu hjónabandi verða
stórkostleg. Að ríkiserfingi giftist
borgaralegri stúlku er ekki aðeins
brot á ævagamalli venju. Það boð-
ar líka nýja öld í Japan og mun
valda því, að Japanar munu fara
að líta augum samtíðarinnar á
margt fleira. Og háttur krónprins-
ins hefur skapað fordæmi.
Suga prinsessa hefur nefnilega
farið að dæmi bróður síns og gifzt
algengum borgaralegum manni, sem
heitir Hitsanaga Shimazu. Og sama
prinsessa hefur líka fengið kenni-
nafnið „Jazz-stúlka Japans nr. 1“,
því að hún hefur gaman af jazz og
á afarstórt grammófónplötusafn.
★
CLARK GABLE hefur verið
spurður um hvernig honum lítist á
sjálfan sig í kvikmyndum. — Ég
hef andstyggð á þeirri manngerð,
sem ég leik, segir hann, — og það
er ekkert sameiginlegt með sjálf-
um mér og henni. Oft langar mig
til að hlaupa út úr kvikmyndahús-
inu, til þess að losna við að horfa
á þennan fábjána! — En •— ég
mundi sármóðgast, ef eihhver ann-
ar í salnum væri sömu skoðunar
og ég!
HAGUR BÍLÞJÓFUR.
í fangelsinu í Vánersborg í Sví-
þjóð situr margfaldur bílaþjófur,
sem hefur gert það sér til dundurs
í svartholinu, að smíða bílalás, sem
kvað vera alveg öruggur og kostar
þó ekki nema 30—35 krónur, þegar
farið verður 'að smíða hann í stór-
um stíl. Hefur hann nú sótt um
einkaleyfi á þessum nýja lás. — Ég
hef langa reynslu sem bílaþjófur og
veit þess vegna hvað ég tala um,
segir hugvitsmaðurinn. Hann hafði
verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi
fyrir ýmsar misgerðir, en aðallega
þó bílastuldi.
★
LAURENCE OLIVIER er nú að
byrja að leika í kvikmynd, sem heit-
ir „Stóra vöruhúsið“, og á móti hon-
um leikur Doris Day. Myndin segir
frá lærðum prófessor, sem alveg
óvænt erfir heljarmikla kjörbúð,
og veit ekkert hvað hann á að gera
við hana. En það veit Doris Day,
og hún veit líka hvernig á að hand-
fjatla þennan lærða mann.
★
VERA LUCIA FILIPE, argentínsk
og ellefu ára, hefur komið lækna-
stéttinni í Argentínu í slæman
bobba. í febrúar í fyrra fór hún allt
í einu að svitna rauðum svita, og
síðan hefur sviti hennar verið með
öllum regnbogans litum — grænn
og rauður, gulur og blár. Hún héf-
ur verið send úr einu sjúkrahúsinu
í annað, en engir læknar hafa að
svo stöddu getað fundið ráðninguna
á þessari dularfullu gátu.
★
í Bandaríkjunum er verið að ráð-
gera byggingu geimflaugar, sem
knúin verður kjarnorku. Kjarn-
orkuofninn verður í sérstöku
fylgihólfi og verður orkan, sem
breytist í rafmagn, leidd til flaug-
arinnar með sérstökum raf-
magnsþræði, sem er um hálfur
annar kílómeter á lengd. Þetta
hefur þann kost með sér, að
kjarnorkustöðin þarf ekki að
vera nær því eins rækilega ein-
angruð vegna hættulegrar geisl-
unar. Hér sést hvernig amerísk-
ur teiknari hugsar sér farartækið.
VAR ÞAÐ FYNDNI? — Myndin er tekin í veizlu í Buenos Aires, sem haldin var til heiðurs
Eisenhower forseta, er hann var þar á ferðinni í vetur. Líklega hefur Frondizi Argentínufor-
seti verið að segja góða fyndni, sem túlkinum (í miðju) hefur tekizt að þýða a svo smellna
- ensku, að Eisenhower skellihlœr.