Fálkinn - 17.06.1960, Page 9
FALKINN
a
er hjá ykkur hérna? spurði hann
titrandi af vonzku. — Þið sendið
mynd af töfrandi, ungri stúlku, og
þegar maður nær sambandi við
heimilisfangið, sem þið gefið manni,
hittir maður konu, sem er þrjátíu
árum eldri. Þetta eru svik ogprettir!
Skrifstofustjórinn lyfti hendinni
og setti á sig alvörusvip.
— Þér verðið að gera svo vel að
skýra mér frá hvað hefur gerzt.
Ég á bágt með að skilja, að við eig-
um nokkra sök á að yður hafi kann-
ske skjátlazt.
Buster sagði alla sína sögu, hvern-
ig hann hefði séð sjónvarpsbrúði
nr. 217 eitt kvöldið, og orðið hrif-
inn af henni, og svo frá þeim hræði-
legu vonbrigðum, sem hann hefði
orðið fyrir í Chicago.
—- Ég skal láta blöðin taka þetta
að sér, sagði hann ógnandi.
En skrásetningardeildin stað-
hæfði, að Buster ætti sökina, því
að sjónvarpsbrúður nr. 217 væri
engin önnur en frú Alladine Smith,
54 ára gömul — og frá Chicago.
—- Þér hljótið að hafa heyrt núm-
erið skakkt. Þér viðurkennið sjálf-
ur, að það hafi verið miklar trufl-
anir í sjónvarpinu einmitt þetta
kvöld.
— Má ég sjá allar myndirnar af
kvenfólkinu, sem sýnt var þetta
kvöld, sagði Buster.
— Ég er hræddur um að það sé
ómögulegt. Það er ekki einu sinni
víst, að myndin, sem þér sáuð, hafi
verið send frá okkar stöð. Þér hafið
kannske komizt á aðra bylgjulengd,
þegar truflanirnar urðu, og ef til
vill hafið þér séð mynd, sem alls
ekki tilheyrði hjúskaparmiðluninni.
Nú kiknaði Buster í herðunum,
þarna sem hann sat.
— Hvað á ég að gera? Deildar-
stjórinn yppti öxlum — hann vissi
ekki heldur hvað Buster ætti að
gera. — Það er ekkert hægt að gera
við þessu, sagði hann loks. En við
höfum ný tilboð á hverju kvöldi —
kannske finnið þér þá útvöldu í
þeim .. .
Buster fór heim. Honum fannst
herbergið í skýjakljúfnum marg-
falt tómlegra en það hefði nokkurn
tíma verið. Hann gat ekki gleymt
töfrandi ungmeyjarandlitinu, sem
hann hafði séð í sjónvarpinu. ,
Heila viku sat hann fyrir fram-
an sjónvarpsglerið á hverju kvöldi
og sá hundruð ungra stúlkna ganga
framhjá, en engin þeirra var sú,
sem hann var að leita að.
— Hvað á ég að gera, William?
spurði hann vin sinn í örvæntingu.
— Þú verður að hjálpa mér, því að
það ert þú, sem hefur gefið mér
þessa fáránlegu hugmynd — að
reyna að finna mér konu í sjón-
varpinu. Þú mátt ekki bregðast mér
núna...
Það var á svip Williams að sjá,
að hann hugsaði mikið . . .
•— Nú veit ég það! sagði hann
loksins. — Þú skalt senda út „til-
kynningu til allra“ í sambandi við
hjúskapardeildina, og biðja ungu
stúlkuna, sem þú gefur lýsingu af,
að ná sambandi við mig . . .
Buster sneri öllum hnöppum og
tökkum á tækinu sínu, og tilkynn-
ing hans ,,til allra“ flaug út í himin-
geiminn, Eftir fáeinar mínútur hafði
hann fengið 97 svör á stuttbylgj-
unni. Allar stúlkurnar sögðust hver
um sig vona, að „ég sé sú rétta“.
Eitt svarið kom frá Ástralíu, annað
úr Grindavík o. s. frv.
En ekkert dugði, Þegar Buster
hafði eytt offjár í símtöl og sím-
skeyti út af öllum 97 myndunum,
sem honum höfðu verið sendar, var
árangurinn ekki annar en sá, að
hann gat vottað, að engin myndin
væri sú rétta.
Hann hafði misst sambandið við
dökkhærðu ungu stúlkuna með
dreymandi munninn fyrir fullt og
allt. Hann fór að leggja af og gerð-
ist þunglyndur.
— Við verðum að gera eitthvað
til þess að lífga hann við, sagði
William við Ellinor sína eitt kvöld-
ið, er þau voru á leiðinni til Busters
ásamt öðrum ungum hjónum.
— Það er ljómandi góð dans-
músík á bylgjulengd 999. Við skul-
um létta okkur svolítið upp.
Buster andmælti því ekki. Willi-
am stillti tækið og músíkin glumdi
í stofunni. Þau fóru að dansa. Þetta
var endurvarp frá hinu fræga gisti-
húsi Copacabana, sem átti að standa
yfir alla leið þangað til klukkan
tvö um nóttina.
Daginn eftir fékk Buster bréf.
„Ég verð að biðja yður um að stilla
útvarpið yðar ofurlítið lægra. Þér
höfðuð dansmúsík til klukkan tvö.
Ég vona, að þér sýnið mér meiri
nærgætni, því að ég vinn á Man-
hattan og verð að fara á fætur
klukkan sjö á hverjum einasta
morgni. — Virgina Burton —- ná-
granni yðar.“
Buster skammaðist sín. Daginn
eftir keypti hann rósir og drap á
dyr -hjá nágrannanum, til þess að
biðjast afsökunar. Hann hafði aldrei
séð frú eða ungfrú Burton. En þeg-
ar dyrnar opnuðust missti Buster
rósirnar á gólfið. Því að þarna stóð
hún . .. sjónvarpsbrúðurin hans,
undramyndin, sem hann hafði verið
að leita að í meira en eina viku.
Virginia Burton — sjónvarpsbrúð-
urin hans, Nágranni hans!
Þau beygðu sig samtímis til þess
að taka upp rósirnar. Augu þeirra
mættust — og þau roðnuðu bæði.
— Hvaða skrásetningarnúmer
hafið þér, ungfrú Virginia? stamaði
Buster. Hún horfði á hann og botn-
aði ekki í neinu.
— Skrásetningarnúmer?
Nú fór Buster að skýra fyrir
henni hvernig hann hefði verið að
leita hennar um alla heima og
geima, sem sjónvarpsbrúður nr. 217.
Þau sátu inni í stofunni hennar og
augu hennar urðu því skærari því
meira sem Buster sagði.
— Ég hef lengi vitað hver þér
voruð, sagði Virginia. — Ég hef oft
séð yður á svölunum yðar, en þér
hafið aldrei tekið eftir mér.
— Nei, ég hef alltaf glápt á sjón-
varpið, sagði Buster dimmróma. Svo
rétti hann úr sér.
— Hafið þér verið að auglýsa eft-
ir manni í sjónvarpinu?
Hún hló.
—• Nei, aldrei hefur mér nú dott-
ið það í hug. En þetta kvöld, sem
þér eruð að tala um, sendi ég heilla-
óskaskeyti ásamt mynd af mér til
ömmu minnar í Alaska. Þér hljót-
ið að hafa lent á skakkri bylgju-
lengd.
— Það held ég áreiðanlega ekki,
sagði Buster einbeittur. — Bylgju-
lengdin var vitanlega sú rétta. Allt
í einu þreif hann til hennar og
kyssti hana. Hún kveinkaði sín ekki
neitt við það. Hún fann, að hún gat
elskað þennan mann, sem hafði ver-
ið að leita að henni um víða veröld.
— Viltu verða konan mín, Virg-
inia? Við lifum á öld hraðans og
þurfum væntanlega ekki að bíða
vikur og mánuði með að segja, hvað
okkur býr í brjósti, eins og for-
eldrar okkar gerðu.
— Þú hefur nú varið vikum til
að leita að mér, sagði hún brqsandi
Hin fræga þokka- og kvikmynda-
dís Brigiíte Bardot hefur mikinn
áhuga á nýjum og- fínum bílum,
eins og títt er um ungt fólk.
Hér er stjarnan að sýna nýja,
hvíta sportbílinn sinn, og er
heldur en ekki stolt af.
|[|||||ISEEII!llllimilllll!l!IIIIBIIIIIIIIIII
og sneri munninum að honum. í
sömu svifum heyrðist í þulnum:
— Þetta er hjúskaparmiðlun sjón-
varpsins, á bylgjulengd 669 metr . ..
Hvern fjárann varðar mig um
það? sagði Buster og skrúfaði fyrir
útvarpið. — Ég er svo gamaldags,
að mér finnst þessi hjúskaparmiðl-
un vera hreinn og beinn óþverri.
Og svo faðmaði hann hana að sér
og kyssti hana sundur og saman,
eins og Adam kyssti Evu — ef
ekki betur.
★
A hverju ári getum við glatt okkur við dásemdir náttúrunnar.