Fálkinn - 17.06.1960, Qupperneq 10
10
FALKINN
>f Skrítlur >f
Er það kannska einhver annar?
*
— Ég skal láta yður vita, að ég
er húsbóndi á mínu heimili!
— Skelfing er leiðinlegt að heyra
þetta. Ég vissi ekki að konan var
farin frá yður.
*
Lalli er á torginu að selja fisk.
En verzlunin gengur illa og Lalli
er í slæmu skapi. Loks kemur ein
gild frú til hans og fer að skoða
í trogin.
— Hve gamall er þessi fiskur?
segir hún.
Lalli ranghvolfir augunum og
hugsar sig um áður en hann segir:
—- Svei mér ef ég veit það. Hann
hafði ekki skírnarvottorðið sitt með
sér.
Hún Gunsa er í búðinni ag verzl-
ar. Og Breiðfjörð kaupmaður af-
greiðir. Hann er alltaf svo merki-
legur með sig.
— Og svo ætla ég að fá eitt pund
af kaffi, segir Gunsa.
— Það heitir kíló núna, segir
kaupmaðurinn.
— Jæja, segir Gunsa. — Þá ætla
ég að fá eitt pund af kíló.
Afsakið, að ég mætti ekki í skól-
anum í gær. Ég gat hvergi lagt
bílnum mínum.
*
Jónas af Óðinsgötunni er á leið
niður í bæ í fljúgandi hálku, og efst
í Bankastrætinu dettur hann og
brunar áfram og rekst á konu, sem
dettur ofan á hann og siglir á hon-
um alla leið niður að Lækjargötu.
Þar gat Jónas stöðvað sig, og nú
segir hann við konuna: •— Þú verð-
ur sjálfsagt að fá þér annan strætis-
vagn þarna á torginu, því að ég
ætla bara hérna suður í Lækjar-
götuna.
-x
Það fór orð af því, að héraðs-
læknirninn blandaði nokkuð miklu
vatni í meðulin, sem hann seldi.
Einu sinni er hann var í læknisferð
lá leið hans yfir vatn undir ís og
fór ofan í vök. Þegar hann sagði
Þormóði gamla á Skinnastöðum frá
þessu skömmu síðar, fór hann að
skellihlæja.
— Finnst þér þetta nokkuð hlægi-
legt, Þormóður?
— Já, mér finnst hlægilegt, ef
læknirinn hefði drukknað í sínu
eigin meðalaglasi!
-x
Úr Kambsvíkurpóstinum: „Ástæð-
an til vatnsflóðsins í skólanum var
sú, að þvottakonan hafði farið úr
eldhúsinu með kranann opinn.
ALLRA-SÍÐASTI MOHIKAN -
INN. — Þegar niaður gengur í
heldri barnaskóla ræður maður
ekki hvernig maður greiðir sér. —
Þetta fékk Kevin Mahony að reyna
þegar hann kom í skólann, klipptur
á Indíána vísu. Skólastjórinn
skammaði foreldrana og úrslitin
urðu þau, að Kevin varð að fara úr
skólanum.
VITIÐ
að ef þér fljúgið með þotu frá
Tokio til San Fransisco komið þér
þangað áður en þér Ieggið af stað?
Við skulum segja, að þér leggið
upp á fimmtudegi kl. 12 á hádegi,
— þá komið þér til San Fransisco
kl. 8.50 að morgni. Ástæðan er sú,
að þér hafið farið yfir „dato-lín-
una“ í Kyrrahafinu, þar sem allt
í einu skiftir um vikudag. (Ef far-
ið er í öfuga átt, seinkar ferðinni
um sólarhring). — En í raun og
veru hafið þér verið 12 tíma og 50
mínútur á leiðinni, og þó stansað
um stund á Hawaii.
að fjárfesting amerísks
einkaf jármagns erlendis hef-
ur meir en tvöfaldast síðan
1950?
Þess konar peningayfirfærslur
eru m. a. gerðar til þess að tryggja
sölu hálfunnins liðnaðar. Til dæmis
um það má benda á hinar mörgu
bílasmiðjur, sem Bandaríkin hafa
komið sér upp í Evrópu. — Á síð-
asta ári var talið, að amerísk einka-
fyrirtæki hefðu fest 25 milljarð doll-
ara í fyrirtækjum erlendis. En árið
1950 var upphæðin ekki nema 12
milljarð dollarar.
að fá lönd hafa komið á
sams konar launakjörum
fyrir konur og karla?
Þó tekið sé fram í stjórnarskrám
margra landa, að karl og kona skuli
fá sömu laun fyrir sömu vinnu,
hefur þetta víðast hvar reynzt dauð-
ur bókstafur. Þó er Mexico undan-
tekning hvað þetta snertir, því að
þar er jafnréttisreglan í gildi. Jap-
anar eru líka komnir vel á veg. í
lögreglunni í Tókíó er t. d. enginn
munur á launum lögreglustarfsliðs-
ins, hvort heldur er karl eða kona.
að kappsiglingar á mótor-
bátum fara vaxandi í Banda-
ríkjunum?
Ein ástæðan til þessa er sú, að
bílafjöldinn er orðinn svo mikill á
þjóðvegunum, að það er ekkert gam-
an að aka þar sér til skemmtunar.
Þess vegna hafa menn snúið sér að
vélbátunum til þess að njóta lífsins
í friði — og hraðans líka. Því að
enn er nóg rúm, bæði á fljótum og
hinum stóru vötnum. En búast má
við, að með tímanum þrengist þar
líka, því að mörg hundruð þúsund
vélbátar bætast við á hverju ári.