Fálkinn - 29.03.1961, Blaðsíða 12
HÁLFA ÖLD Á HAF
Sunnudagur um borð í Tröllafossi á leið frá New York til Norfolk í Virg-
inia. Skipsþernan, Rúna Brynjólfsdóttir, syngur og Trausti Thorberg leikur
undir (efri mynd). Á Tröllafossi í logni og sólskini. Hásetar vinna á þil-
fari (neðri mynd).
ÞAÐAN sem ungur drengur sat yfir
ám sínum, mátti á sólbjörtum degi
sjá reyk frá millilandaskipum bera
við himin og sæti bann á vissum
stað í lyngi gróinni brekku sást út á
spegilskyggndan Breiðafjörð, þar ,
sem þessir stórkostlegu farkostir
klufu hafflötinn á leið inn til Stykk-
ishólms.
Og eitt sinn, er bann var staddur í »
Hólminum og millilandaskipið
„Laura“ lá þar fyrir festum, varð
honum Ijóst, hvílikur undraheimur
slikt skip var. Hvilíkan sóma hefðar-
fólk staðarins sýndi hinum borða-
lögðu yfirmönnum og bvílík upp-
liefð það væri að verða einhvern tima
skipverji á slíku skipi.
Nú er drengurinn, sem í hjásetunni
laust eftir síðustu aldamót lét hugann
reika til annarra landa, „kominn í land“
eftir 53 ára sjómennsku. Hann hefur á
þeim tíma farið víða, verið á margs kon-
ar skipum og skipað rúm frá hálfdrætt-
ingi á Suðurnesjum til skipstjóra á
stærsta vöruflutningaskipi Islendinga.
Egill Þorgilsson er Breiðfirðingur,
fæddur og uppalinn í Hvammssveitinni
og fimmti í hópi fjórtán systkina. Föð-
urbróðir Egils, Guðmundur Friðriksson
á Víghólsstöðum, gildur bóndi og ó-
kvæntur, tók drenginn ungan í fóstur
og ól hann upp.
Æska Egils var svipuð og annarra
ungra sveina við Breáðafjörð. Hann
stundaði störf, sem sveitaveran hafði
upp á að bjóða, en það var ólga og útþrá
í blóðinu og hann hugsaði sér að nota
fyrsta tækifæri til þess að komast burt:
Sjá önnur lönd og kanna nýjar leiðir.
•—• Hvenær hófst sjómennskan?
-— Hún hófst eiginlega þegar ég var
14 ára gamall, þá réðst ég á vertíð suð-
ur á Reykjanes til Einars á Krossi. Ég ,
gekk með poka minn á bakinu ásamt
öðrum vertíðarmönnum. Þetta var vet-
urinn 1909. Næsta vetur reri ég í Grinda-
vík. Vertíðarkaupið var hundrað krón-
ur. í það skipti fór ég með millilanda-
skipinu Sterling frá Stykkishólmi. Það
þótti mér mikið ferðalag. Við fórum
Sveinn Sæmundsson
ræðir við Egil
Þorgilsson, skip-
stjóra.