Fálkinn


Fálkinn - 29.03.1961, Blaðsíða 18

Fálkinn - 29.03.1961, Blaðsíða 18
PÁSKAVIKAN er lengsta röð helgidaga á Islandi. Þá hefur stór hluti fólks frí frá vinnu í samfleytt fimm daga og þarf ekki að hugsa um annað en að njóta hvíldarinnar og lífsins hver á sinn hátt. Á síðari árum hefur það farið geysilega í vöxt, að stórir hópar fólks flykkist úr bæjum og þorpum um páskahelgina. Er óhætt að fullyrða, að næst Verzlunarmannahelginni í ágúst sáu flestir á ferð um páskahelgina og fleiri eftir því sem lengra er liðið á vorið, þegar hún gengur í garð. Sumir heimsækja vini og skyldmenni í öðrum landshlutum, fjölmargir og senni- lega flestir fara á skíði og dveljast þá í skíðaskálum hinna ýmsu félagasamtaka, misjafnlega hátt eða langt til fjalla. Og síðast en ekki sízt hefur það farið mjög vaxandi á síðari árum, að fjölmennar hópferðir séu farnar vítt um byggðir og óbyggðir landsins. Margir munu þeir vera, sem ekki hafa dvalið til dæmis í Reykjavík um páska svo árum skiptir, heldur haldið til fjalla og lagt á sig mikið erfiði og jafnvel hættur til þess að geta gist sæluhús fjarri byggðu bóli einmitt um páskahelgina. Þó mun sennilega enn enginn hafa slegið met Helga frá Brennu, en hann dvaldist ekki í Reykjavík um neina páska frá því 1913 allt til dauðadags 1960. Aðrir hópar halda sig að mestu leyti við byggðina og gista þá gjarnan í hinum stóru félagsheimilum, sem á undanförn- um árum hafa risið upp. Við hér hjá FÁLKANUM vorum svo heppnir að rekast fyrir nokkru á skemmtilegar myndir frá einni slíkri ferð, sem farin var austur í Öræfasveit um páskana í fyrra. En Öræfin eru sem kunnugt er ein afskekktasta byggðin hérlendis. Jök- ulár, víðlendir eyðisandar og jöklar hafa löngum einangrað Ferðafólkið hefur hér staðnæmst við hið forna bænhús að Núpsstað. Gamli maðurinn með skeggið er hinn lands- kunni póstur, Hannes Jónsson, sem um áratugi fylgdi ferðamönnum og fór með póst yfir Skeiðarársand.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.