Fálkinn


Fálkinn - 29.03.1961, Page 31

Fálkinn - 29.03.1961, Page 31
ný sannindi. Ætli þeta komi henni ekki í betra skap, hugsaði hann og þreifaði eftir litlum kassa í vasa sínum. Hún er kannski bara að gera sig merkilega, af því að hún heldur að ég hafi gleymt því. Hann hikaði sem snöggvat, en svo hleypti hann í sig hörku og dró hring- ana upp úr kassanum. Erna hafði þráð þetta augnablik lengi og alltaf efast um, að það ætti eftir að gerast. . . . En nú, þegar það var runnið upp, varð henni við eins og hlekkjum væri veifað fyrir framan hana en ekki gullhring. Hann hleypti brún- um og reyndi að koma hringnum upp á fingur henni. — Þú hefur farið illa með hendurn- ar á þér, meðan ég var í burtu. Þarf ég alltaf að passa þig eins og krakka? Hendur hennar voru rauðar og þrútn- ar, því að hún hafði ekki haft sinnu á að hugsa um útlit sitt vegna hugs- unarinnar um Viðar. Hún kippti þeim að sér og virti þær fyrir sér. Viðar mundi ekki horfa á þær með ásökunar- svip. Hún minntist þess hvernig hann hafði strokið um fætur hennar og hún opnaði bílhurðina og steig út. Hún leit í augu Þóris: — Vertu sæll, elskan. Það er ég sem passa ekki fyrir hringinn, en ekki hring- urinn, sem passar ekki fyrir mig. Og því verður ekki breytt. Hún gekk hnarreist burt, ákveðin í hvert fara skyldi. Það var einmitt um þetta leyti, sem Viðar tók sér hvíld. Hún herti gönguna og taldi saman aur- ana, sem hún hafði í vasanum. Kann- ski hún ætti að kaupa kótilettur. Það var eftirlætismaturinn hans. En svipur unga mannsins, sem hall- aðist fram á stýrið í nýjasta bílmódeli ársins og horfði á eftir henni, var undr- unarfullur. Hann blístraði langdregið og rótaði í hárinu á sér, en svo varð honum litið í sætið, þar sem hún hafði skilið eftir ösku af sígarettu. Svipur hans lýsti vanþóknun og síðan fegin- leika . . . ☆ Hálfa öld á hafinu - Frh. af bls. 14. skipi þar. Margir skipsfélagar m,ínir á Estonía höfðu sagt mér frá því hvernig væri að vera í Síam og það var stað- reynd, að mjög fáir gátu verið þar lengi. Sumir urðu drykkjuskap að bráð, en aðrir fengu hitabelissjúkdóma og misstu heilsuna. Annar stýrimaður á Estonia var t. d. illa farinn af Malaríu. Nú, ég asnaðist um borð í Gullfoss til að kveðja. Þar hitti ég Jón Eiríksson. Hann spurði hvern fjandann ég ætlað að fara að þvælast þarna suður eftir. Ég mundi eflaust drepa mig á því. „Komdu held- ur með okkur til íslands,“ sagði hann. Ég lét til leiðasl og fór með þeim heim. Fékk þá fast stýrimannspláss hjá Eim- skip. AU STF J ARÐ ASIGLIN GAR. Eftir heimkomuna var ég stýrimaður á Gullfossi unz ég fór yfir á Lagarfoss árið 1927. Lagarfoss var þá í sigling- um milli Kaupmannahafnar og Austur- og Norðurlandsins. Við tókum land á Djúpavogi og komum við á hverri höfn allt til Norðurfjarðar. Þar var snúið við og sömu viðkomur á bakaleið, unz látið var í haf frá Djúpavogi á ný. Þetta voru 36 hafnir í hverri ferð. Það var oft lítill tími til að sofa, sérstak- lega á Austfjörðunum, því stutt var á milli hafna og enginn úr landi kom um borð til þess að vinna að uppskip- un. Það gerðu skipverjar að öllu leyti. Hásetar fengu yfirvinnukaup, en þriðji stýrimaður, sem einnig vann í lestun- um, ekki. — Þetta var á bannárunum. Reyndu menn ekki að smygla víni? — Það var eflaust reynt, en eftirlit fatrc Akrifat FRÁ SJÓNARHÓLI STJÖRNUSPEKINNAR Ég er fædd 1920 að morgni milli klukkan átta og tíu á Norð-Vesturlandi. Fór úr föð- urhúsum átján ára. Giftist 21 árs og var í hjóna- bandi 5 ár og átti þrjár dæt- ur með þeim manni. Síðan skildum við af völdum áfengis árið 1947. Fór ég þá út til Svíþjóðar og var þar við nám í þrjú ár að læra matreiðslu. Er ég kom heim aftur, þá gifti ég mig í annað sinn, en það hjónaband varð mér hreinasta kvöl. Átti ég með þeim manni tvö börn, dreng og stúlku, sem ég verð nú að sjá fyrir. Þau eru tveggja og fimm ára. Ég er hlédræg og feimin mjög að eðlisfari, neyti hvorki áfengis né tóbaks. — Nú um tíma hef ég haft samband við mann, sem er fimm árum yngri en ég og þykir mér vænt um hann, en hann drekkur, og það versta er, að ekki er hægt að, treysta honum. Hann er fæddur 1926. Eins og aðr- ar manneskjur þrái ég öryggi, því ég er fjarska einmana og hef orðið fyrir þungum raun- um. Svo kveð ég yður með von um að fá svar sem fyrst. Getty. Svar til Gettyar, Eins og þér er vafalaust kunnugt um, ertu fædd undir sólmerkinu Sporðdrekinn. Þeir, sem fæddir eru hér, hætt- ir mjög til að gera úlfalda úr mýflugunni og ímynda sér allt mikið verra en það er. Afleið- ingarnar af þessu gætu verið athafnir, sem síðar yrði sár- lega iðrazt eftir. Þetta sól- merki virkar einnig þannig, að þeir, sem þar eru fæddir, eru mjög hneigðir til samlífis við hitt kynið á yngri árum, en þessi tilhneiging breytist með tímanum og þetta fólk fer að kynna sér ýmsa dulspeki og því um líkt. í korti vinar þíns er sólin í Ljónsmerkinu, ásamt þrem öðrum plánetum, þar á meðal Venus. Þessar afstöður gera vin þinn mjög vingjarnlegan og ágætan í framkomu oft á tíðum. Hann hefur þó við ó- venjumiklu örðugleika að stríða andlega og efnalega. Hann er með svokallaðar Stór Kross afstöður, sem er sérlega erfitt merki og aðeins fyrir mjög þroskað fólk að yfirstíga og komast áfram í lífinu. Eitt þeirra fáu tilfella er Dr. Al- bert Schweitzer. Þessar afstöð- ur leiða af sér öllu venjulegu fólki, alls konar ágalla, t. d. sviksemi, eins og þú talar um. Ég mundi því alls ekki ráð- leggja þér að taka saman með þessum manni, því með því værir þú að endurtaka það sama og þú hefur áður gert í fyrri hjónaböndum. Þú mundir ná í beztu makana undan sólmerkjunum: Fiska- merkið, Krabbamerkið og Meyjarmerkið. Einnig kæmi Steingeitarmerkið til greina r , ■ V hja þer. Eg mundi eindregið ráðleggja þér að hugsa ekkert um samneyti við neinn mann, sem þú ert ekki fyllilega á- nægð með á alla kanta. Afstöður Venusar í korti þínu benda til þess að þér hætti til að vera ekki við eina fjölina felld í ástamálunum. Ef til vill er sökin ekki hvað minnst sjálfri þér að kenna, í sambandi við fyrri eigin- menn þína. Það er ekki nægi- legt að hvorkj reykja né drekka og vera reglusamur, ef maður hefur erfitt lundar- far. Framkoma manns hefur ákaflega mikið að segja. Ást- úð og þolinmæði er það, sem þú þarft öðru fremur að til- einka þér í þessu lífi, sem öðr- um. Ég álít, að þér mundi vegna miklu betur erlendis en hér á íslandi, sérstaklega á þetta þó við um ástamálin. FÁLKINN 31

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.