Fálkinn - 24.01.1962, Qupperneq 3
H.f. Eimskipafélag
íslands
AÐAL
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands verð-
ur haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík
laugardaginn 2. júní 1962 og hefst kl. 1,30 eftir hádegi.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og fram-
kvæmdum á liðnu starfsári og frá starfstilhögun
á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og
leggur fram til úrskurðar endurskoðaða reksturs-
reikninga til 31. des. 1961 og efnahagsreikninga
með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórn-
arinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoð-
endum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórrsarinnar um
skiptingu ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins í stað
þeirra sem úr ganga samkvæmt samþykktum fé-
lagsins.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins (ef
tillögur koma fram).
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem
upp kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum
og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykja-
vík, dagana 29.—31. maí næstk. Menn geta fengið eyðublöð
fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu fé-
lagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og aftur-
kallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í
hendur til skráningar, ef unnt er, viku fyrir fundinn.
Reykjavík, 9. janúar 1962.
8t}órnin
Vikublað. Útgefandi: Vikublaðið Fálk-
inn h.f. Ritstjóri: Gylfi Gröndal (áb.).
Frakvæmdastjóri: Jón A. Guðmunds-
son. Auglýsingastjóri: Högni Jónsson.
— Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar:
Hailveigarstíg 10, Reykjavik. Símar
12210 og 16481 (auglýsingar). Verð i
lausasölu kr. 15.00. Áskrift kostar á
mánuði kr. 40.00, á ári 480.00. Mynda-
mót: Myndamót h.f. Prentun: Félags-
prentsmiðjan h.f.
35. árg. 3. tbl. 24. jan. ’62 - 15 kr.
GREINAR:
Hvernig verða menn ríkir? Nýr
greinaflokkur hefst. í þessu
blaði segir Sigurður Árnason í
Teppi h.f. sina reynslu. Næsta
grein: Rætt við Þorvald i Síld
og fisk.................... Sjá bls. 8
Hendurnar afhjúpa okkur. Itar-
leg og fróðleg grein um lófa-
lestur og hvernig á að spá í
lófa ..................... Sjá bls. 14
Saga nunnunnar í Borley. Grein
um mesta draugahús, sem
nokkru sinni hafa farið sögur
af .......................... Sjá bls.
Jörðin er flöt eins. og pönnu-
kaka ... Grein og myndir um
Herranótt Menntaskólanem-
enda ...................... Sjá bls. 20
Gunna grallari, svipmynd af kyn-
legum kvisti .............. Sjá bls. 25
SÖGUR:
Vindur, sérkennileg saga eftir
Ray Bradbury .............. Sjá bls. 12
Orðan, bráðskemmtileg smásaga
eftir hinn fræga franska rit-
höfund Guy de Maupassant .. Sjá bls. 18
Gabriela, hinn óvenjulega spenn-
andi framhaldssaga eftir Hans
Eric Horster ................ Sjá bls. 22
GETRAUNIR:
Bingóspil Fálkans. 100 vinningar
og lokakeppni í Breiðfirðinga-
búð, þar sem keppt verður um
Kelvinator-kæliskáp........ Sjá bls. 28
Heilsíðu verðlaunakrossgáta .... Sjá bls. 24
ÞÆTTIR:
Dagur Anns skrifar skopþátt um
Velvakanda á horninu ...... Sjá bls. 11
Kristjana skrifar kvennaþátt um
hárgreiðslu og tvær skemmti-
legar húfur ............... Sjá bls. 26
Panda, ný myndasaga.......... Sjá bls. 4
Otto, ný myndasaga........... Sjá bls. 37
Forsíðumyndin er úr
væntanlegri Herranótt
Menntaskólans í Reykja-
vík þetta árið. Að þessu
sinni leika þeir Enarus
Montanus og myndin á
forsíðunni er einmitt of
honum og ástmey hans,
1 Elizabetu. Þau eru leik-
in af Andrési Indriða-
syni og ICristínu Jóns-
dóttur.