Fálkinn - 24.01.1962, Síða 14
Lítið á hönd yðar! Vitið
þér, að lagið á höndum yðar
afhjúpar skapgerð yðar, seg-
ir sannleikann um persónu
yðar? Lítið á línurnar í lófa
yðar. Þær lyfta hulunni af
framtíðinni, tjá örlög yðar.
Þær skýra frá ást, dauða,
auðæfum, hamingju ...
14 FÁLKINN
Listrœna handlagið.
Listræna handlagið er næst
fallegasta handlagið. Listræna
handlagið má þekkja á löng-
um, jafnbreiðum fingrum og
hvössum fingurgómum. Það
ber fyrst vitni um hégóma-
girni, sjálfselsku, sérvizku,
losta, kæruleysi og yfirdreps-
skap.
Eigandi slíkrar handar er
sjaldan tryggur í ástamálum
og vill ógjarnan láta fjötra sig
í viðjar hjónabandsins, en
hann getur lika verið vingjarn-
legur og hjálpsamur. Þetta
handlag skiptist í þrjá flokka
eftir lófalaginu. Ef lófinn er
stuttur, þykkur og breiður,
ber hann vitni um þrá eftir
auði, hamingju og frægð, læ-
vísi og ímyndunarafli. Ef lóf-
inn er af meðal stærð, ber
hann vitni um fegurðarskyn,
sérstaklega fyrir formi og lín-
um. Ef lófinn er sérstaklega
breiður og þéttur, ber hann
vitni um holdsfýsn. Sameigin-
leg einkenni þessara flokka er
fjörugt ímyndunarafl, anda-
gift,, hverflyndi og sérstakt ó-
geð á að skipuleggja lifsbraut-
ina. Þeir eru yfirborðskennd-
ir, jafn fljótir til hryggðar og
gleði.
Handlag hinna hagkvœmu.
Þegar fingurnir eru klemmd-
ir saman, er höndin næstum
jafn breið við fingurgómana
og fingurræturnar. Höndin
myndar næstum því ferhyrn-
ing. Þetta handlag ber vitni
-um skyldurækni, framsýni og
athafnasemi. Eigandi slíkrar
handar er gefinn fyrir skipu-
lag ,en sneyddur ímyndunar-
afli og hugkvæmni; hann er
mjög skyldurækinn og sam-
vizkusamur. Hann fer alltaf
á fætur á sama tíma á morgn-
ana og borðar á ákveðnum
tíma. í stuttu máli, hann er
ákaflega vanafastur. Allur
dagurinn er vel skipulagður
og aldrei farið eftir skyndileg-
um hugdettum. Honum hentar
vel skrifstofuvinna eða em-
bættisþjónusta, en er ívið smá-
munasamur. Þetta handlag er
mjög algengt, en hvergi eins
algengt og í Kína.
Skynsemis handlagið.
Fingurgómarnir eru breiðir,
spaðalagaðir, eins og það er
nefnt. Ef þumalfingurinn jafn-
framt er stór, má lesa úr hönd
yðar eftirfarandi skapgerðar-
eiginleika, mikla ákveðni og
sjálfsálit. Þér eruð vinnusam-
ur og iðinn og leysið öll verk-
efni af meðfæddri skynsemi
yðar. En þér hrífist meira af
því, sem lítur vel út á yfir-
borðinu en því, sem í raun og
veru er mikilsvert. Þér viljið
helzt stunda útivinnu, t. d.
hentar sjómennska og veiðar
yður vel. Þér eruð skylduræk-
inn og hjónabandið er yður
OKKUR