Fálkinn - 24.01.1962, Blaðsíða 28
í fyrsta blaði þessa árs hófst BINGÓKEPPNI FÁLK-
ANE og Bingóspjaldið fylgdi blaðinu þá. Eins og skýrt
var frá, þá er tilhögun keppninnar sú, að tölur verða
birtar í tíu blöðum og lesendur eiga að klippa þær út
hverju sinni og bera rækilega saman við tölurnar á
spjaldi sínu. Verðlaun eru hundrað talsins: konfekt-
kassar, undirföt, frá Kóral og Ceres, bækur, hárgreiðsl-
ur frá Permu, ársáskriftir að Fálkanum og sitthvað
fleira. Allir Bingóhafar fá jafnframt tvö ókeypis spjöld
í LOKAKEPPNI BINGÓSINS, sem fram fer í Breið-
firðingabúð á sumardaginn fyrsta. Þar verður meðal
annars keppt um Kelvinator-kæliskáp að verðmæti
14 000 krónur. Þeir, sem hljóta Bingó, eiga jafnóðum
að gefa sig fram á skrifstofu Fálkans.
Takið þátt í þessari glæsilegu og spennandi keppni.
Ef þér hafið ekki fengið yður blaðið með Bingóspjald-
inu, þá er eins gott að hafa snör handtök, því að í
fyrra seldist það upp á örskammri stundu.
Hér kemur þriðji hluti hins glæsi-
lega BINGÓSPILS FÁLKANS.
Spjaldið fylgdi 1. tbl. ’62, en tölur
birtast alls í tíu blöðum. Vinningar
eru 100 og á sumardaginn fyrsta
fer fram lokakeppni í Breiðfirðinga-
búð. Þar verður keppt um Kelvinator
kæliskáp að verðmæti 14 000 kr.
10 59 109 210
121
137 190
143 196
150
28 FÁLKINN