Fálkinn - 24.01.1962, Page 36
Hendurnar... Frh. af bis 15
skammlífi. Því fleiri og dýpri
sem hrukkurnar eru, því heit-
ari eru ástríðurnar. Þverlína
á vöðvunum merkir að einhver
varnar viðkomanda hamingju
í ástamálum.
Júpitervöðvinn.
Eðlilega þroskaður Júpiter-
vöðvi merkir metorðagirni,
heiðarleika, trúrækni, ást á
náttúrunni og gott skap. Sá,
sem hefur eðlilega þroskaðan
Júpitervöðva, hefur marga
góða eiginleika, honum vegnar
vel í lífinu og giftist aðeins
þeim, sem hann .elskar, og
hjónabandið verður hamingju-
samt. Fólk með mikinn Júpi-
tervöðva verður í mörgum til-
fellum sköllótt. Ef vöðvinn er
óeðlilega þroskaður, merkir
það dramb, sjálfsálit og hjá-
trú. Ef vöðvinn sést alls ekki,
■ber hann vitni um minnimátt-
arkennd, tilfinningaleysi og
sjálfselsku. Hrukkulaus vöðvi
•merkir hamingju, rólegt og
þægilegt líf. Bein lína án nokk-
urra greina merkir velgengni,
hrukkur bera vitni um metn-
aðargirni, sem leiðir til vel-
gengni.
Satúrnusarvöðvinn.
Óeðlilega þroskaður Satúrn-
usarvöðvi ber vitni um angur-
værð, innhverfa skapgerð,
meinlæti, samvizkukvalir og
oft tilhneigingu til sjálfsmorðs.
Ef hann sést ekki, verður líf
viðkomanda gleðisnautt. Eðli-
lega þroskaður vöðvi merkir
að eigandinn er mjög mótfall-
inn hjónabandi, en hefur ríka
þolinmæði og iðni til að bera.
Oft merkir hann líka mikla
spilaástríðu. Ef vöðvinn er
sléttur og þykkur, verður lífið
rólegt og tilbreytingalítið,
hvorki sérstaklega hamingju-
eða óhamingjuríkt. Ein, bein
lína á vöðvanum boðar mikla
gæfu, margar línur aftur á
móti ógæfu.
Sólvöðvinn.
Eðlilega þroskaður sólvöðvi
ber vitni um gáfur, bók-
mennta- og listaskyn, fegurð-
ardýrkun og stundum snilli-
gáfu. Sálarþroski, hjartagæzka
og umburðarlyndi eru eigin-
leikar, sem fólk með eðlilega
þroskaðan sólvöðva, hefur ætíð
til brunns að bera. Óeðlilega
þroskaður vöðvi merkir pen-
ingagræðgi ásamt eyðslusemi,
36 FÁLKINN
þrá eftir frægð.og hviklyndi.
Sjáist vöðvinn ekki, ber eig-
andinn ekkert skýnbragð á
göfugar hugsjónir. Sléttur
vöðvi merkir innri ánægju, ró-
legt líf án mikilla viðburða
eða frægðar. Ein lína á vöðv-
anum merkir hæfileika og
samræmi, tvær línur í kross
merkja gáfur, sem oft fá ekki
að njóta sín.
Merkúrvöðvinn.
Eðlilega þroskaður Merkúr-
vöðvi merkir vizku og dálæti
á vísindum, hæfileika til and-.
legar sköpunar, mælsku, verzl-
unarvit, orðheppni, snarræði
og fyndni. Óeðlilega þroskað-
ur vöðvi merkir ósannsögli,
lævísi, hvinsku, óskammfeilni
og heimskulega heimtufrekju.
Ef vöðvinn sést ekki, skortir
viðkomandi alla góða eigin-
leika. Sléttur og þykkur vöðvi
ber vitni um gáfur og skarp-
skyggni. Ein eða tvær línur
merkja, að í lífinu skiptist á
skin og skúrir. Djúpar línur
merkja hvinsku.
Marzvöðvinn.
Eðlilegur þroski , Marzvöða
ber vott um kjark, dirfsku á
hættustund, hæfileika til að
taka ákvarðanir, þolinmæði,
geðstillingu og skapgerðar-
styrk. Óeðlilega þroskaður
vöðvi merkir hörku, bráð-
lyndi, óréttvísi, áfergju þrætu-
girni, grimmd, hefnigirni. Ef
vöðvinn sést ekki, skortir við-
komanda sjálfstraust. Ef vöðv-
inn er sléttur, er viðkomandi
djarfur og stöðuglyndur, djúp-
ar línur bera vott um ákaf-
lyndi.
Mánavöðvinn.
Eðlilega þroskaður mána-
vöðvi ber vott um skírlífi, hóg-
værð, fjörugt ímyndunarafl,
getspeki og tilhneigingu til til-
finningasýki og draumóra. Sé
hann sléttur, ber hann vott um
rólega skapgerð, en sé hann
hrukkóttur, taugaveiklun,
duttlungasemi og óráðþægni.
Óeðlilega þroskaður vöðvi
merkir angurværð, ástæðu-
lausa örvæntingu, ófullnægð-
ar þrár og hjátrú. Ef vöðvinn
sést ekki, er það merki um
skort á ímyndunarafli, skyn-
bragði á skáldskap og tiltrú.
ÚR LÍNUNUM LESIÐ ÞÉR
ÖRLÖGIN.
Lífslínan.
Því lengri og greinilegri sem
lífslínan er, því meiri hlunn-
indi færir lífið yður: góða
lyndiseinkunn, heilbrigði og
langlífi. Ef hún er mjög stutt,
lifið þér áreiðanlega ekki
lengi. Sé línan slitrótt í báð-
um höndum, merkir það sjúk-
dóm, sem dregur til dauða.
Hafi línan greinar, sem liggja
að höfuðlínunni, merkir það
heiður og auðævi, greinar, sem
liggja niður á við, heilsu- og
peningaleysi. Ef lífslínan er
tvöföld, ber hún vott um auð-
sæld og langt og gæfuríkt líf.
Djúpur og greinilegur depill
á línunni boðar skyndilegan
og voveiflegan dauða.
Örlagalínan.
Ef línan byrjar við úlnlið-
inn og liggur beint niður í átt-
ina að Satúrnusarvöðvanum,
boðar hún heppni og fyrir-
hafnarlitla velgengni. Ef hún
liggur í áttina að Júpitervöðv-
anum, lætur viðkomandi mest
stjórnast af metnaðargirni
sinni. Ef línan slitnar við
hjartalínuna, táknar það ást-
arsorg, slitni hún við höfuðlín-
una, boðar hún óskynsamleg
viðskipti eða tap vegna mis-
taka. Nái hún niður að Satúrn-
usarvöðvanum, táknar hún
hæfileika til landbúnaðar-
starfa, nái hún niður að mars-
berginu, táknar það bráðlyndi,
drottnunargirni og yfirgangs-
semi.
Hjartalínan.
Því greinilegri og reglulegri
sem hjartalínan er, því göfugri
og hjálpfúsari er eigandi hand-
arinnar. Djúp, rauð lína, tákn-
ar örar og ofsafullar tilfinn-
ingar, en einnig tryggð. Sé lín-
an föl og breið, táknar hún
veikleika, sem stafar af gjálífi
og skorti á siðgæði. Sé línan
stutt, er viðkomandi ágeng
persóna. Ef línuna vantar, er
viðkomandi tilfinningalaus,
sjálfselskufullur og efagjarn,
vanti línuna í aðra höndina,
táknar það hjartasjúkdóm og
skammlífi. Líkist hjartalínan
keðju, ber hún vott um hverf-
lyndi og undirferli í ást og
vináttu, sé hún klofin, er við-
komandi angistar- og áhyggju-
fullur. Liggi línan yfir Merk-
úrvöðvann, er eigandi handar-
innar gæddur ótvíræðum leik-
hæfileikum.
Höfuðlínan.
Ef línan er löng, jöfn og vel
löguð, ber hún vitni um heil-
brigða og skarpa dómgreind,
gáfur, sjálfstraust og vilja-
festu.Nái línan niður að Mána-
vöðvanum, liggur viðkomanda
einhvern tíma við drukknun.
Hvítir og rauðir blettir á höf-
uðlínunni tákna að viðkom-
andi er haldinn morðfýsn.
Vanti linuna, eða falli hún
saman við líflínuna, er það
versta táknið, sem unnt er að
sjá í lófa, viðkomanda mis-
tekst allt, sem hann gerir.
Heilsulínan.
Byrji línan í námunda við
lífslínuna, er það merki um
hreint blóð, hreysti, gott minni
og hreina samvizku. Slitrótt,
dökk lína, táknar ákaflyndi og
gallsýki. Sé hún slitin á mörg-
um stöðum, sýnir hún að mag-
inn er langt frá því að vera
í lagi. Kross á línunni merkir
einnig veikindi. Sé heilsulínan
tvöföld, er eigandi handarinn-
ar ástríðufullur í ástum.
Sóllínan.
Ef sóllínan er greinileg og
opin að sólvöðvanum, boðar
hún frægð í bókmenntum eða
listum, auð og viðurkenningu.
Slitrótt eða þverskorin mei’k-
ir hún hindranir, er öfund-
sjúkt fólk leggur í götu manns.
Vanti sóllínuna, hlotnast við-
komanda aldrei frægð eða góð-
ar stöður, hversu mikið, sem
hann erfiðar. Hafi sóllínan
margar hliðarlínur, ber hún
vott um mikinn áhuga á list-
um. Kvísllaga klofning boðar
auðsæld.
Armbandið.
Innanvert á úlnliðnum er
ein eða fleiri línur, er liggja
eins og armband. Hver lína
táknar þrjátíu æviár. Sá, sem
hefur tvöfalt armband, á sem
sagt kost á að lifa í sextíu ár
eða um það bil. Þrjár skýrar
línur eru nefndar „þrefalda
töfrabandið" og tákna heil-
brigði og langt og hamingju-
ríkt líf. Sé armbandið stutt,
getur það táknað ógæfu og fá-
tækt.
★
Skattstofa
í Vestur-Þýskalandi er
skattstofa alveg eins og hér.
Frá henni hafa komið ýmsar
snjallar hugmyndir. Skatt-
stofa þessi sendi nýlega 522
meðlimum ríkisþingsins stór-
an rauðan blýant með þessari
áskrift:
— Gætið peninga skatt-
borgaranna. Strikið yfir ó-
nauðsynleg útgjöld.