Fálkinn - 23.05.1962, Side 7
Þegar unglingar
rotta sig saman.
.... Ég las það um daginn
í blöðunum, að nokkrir ung-
lingar hefðu verið teknir af
lögreglunni inni á sjoppu á
Laugaveginum. Voru þeir
sagðir vera undir áhrifum
áfengis. En stúlka, sem ég
kannast við, segir að þessu
sé öðruvísi varið. Þeir setji
magnyltöflur út í kóka kóla
og verði eins og ölvaðir af
því......
S.
Svar:
Þaö er vijög áríöandi, aö fólk
komi slíkum fréttum á framfceri,
því aö þá er ef til vill hœgt aö
koma í veg fyrir ófögnuöinn.
Ólyktin á vorin.
.... Mikil plága eru þessir
garðeigendur, sem bera skít
og skarna og annan álíka ó-
þverra í garða sína á vorin.
Maður er bókstaflega alveg
að farast, þegar maður geng-
ur framhjá þeim.
Svar:
Hvernig vceri aö reyna aö
lialda fyrir nefiö.
Kærasti fegurðar-
drottningarinnar.
Kæri Fálki. — Ég skrifa þér
nokkrar línur af því að ég
vona, að þú getir gefið mér
nokkrar upplýsingar. Hvernig
er með þennan kærasta henn-
ar Sigríðar Geirs? Það komu
alveg ljómandi myndir af
henni í blaðinu fyrir skömmu
og voru sumar þeirra teknar
á heimili unnusta hennar.
Hvað gerir hann og hvar í
veröldinni er hann? Það væri
nógu gaman að fá að sjá mynd
af honum ekki síður en henni.
Bless.
Gömul sveitakona.
Svar:
Unnusti Sirrý Geirs lieitir
Magnús Skúlason. Hann hefur
dvalizt viö háskólanám erlend-
is, nánar tiltekiö í Skotlandi.
Þar leggur hann stund á liúsa-
Ferðalög.
Þar sem vikublað eitt í
Reykjavík virðist hafa sérrétt-
indi til að birta myndir af
fegurðardrottningum okkar,
datt mér í hug að benda Fálk-
anum á, að það væri spenn-
andi að fá í Fálkanum útdrátt
úr dagbók eða ferðaþætti með
myndum frá ferðalagi einnar
af geðþekkustu fegurðar-
drottningum okkar, Sigrúnar
Ragnars.
Ein af 18 aðdáendum hennar.
Svar:
Þegar þetta bréf kom hing-
aö, höföu þegar birzt greinar
og viötöl viö Sigrúnu Ragnars
ásamt myndum frá feröalagi
hennar. ViÖ teljum, aö þaö vceri
aö bera í bakkafullan lœkinn,
ef viö birtum einnig slíka grein.
H.
Andlegt þrek.
Kæri Fálki. — Mér datt
svona í hug að senda þér línu
í pósthólfið, af því að ég las
í dagblöðunum um daginn
einhverja grein eða öllu held-
ur frétt um að þrek íslend-
inga færi stöðugt minnkandi.
Var sagt frá mælingum þar
að lútandi, og að því er virt-
ist, höfðu menn aðeins mælt
líkamlegt þrek. Andlegt þrek
höfðu þeir auðvitað ekki
mælt, en ég hélt nú að það
væri fyrir mestu.
B.
Svar:
1 þrekraunum er ekki síöur
mikilsvert, aö menn liafi and-
legt þrek aö minnsta kosti til
jafns á viö lúö líkamlega, og
margir halda því fram, aö ef
menn hafi nóg andlegt þrek í
mannraunum, þá skipti hiö lík-
amlega litlu máli.
Ofn í strætisvagnabiðstöð.
Kæri Fálki. — Nú ligg ég
í rúminu og það er rétt svo,
að ég get skrifað þetta bréf.
Mér varð of kalt um daginn
í norðanáttinni og varð að
leggjast. Meðal annars varð
ég að bíða eftir strætisvagni
niður á torgi í næstum tuttugu
mínútur. Ég ætlaði að segja
frá því að mér varð hrylli-
lega kalt, svo álpaðist ég inn
í skýlisómyndina þarna á
torginu. Þar var enginn ofn,
en skjól var þar. Mér finnst
að Strætisvagnar Reykjavík-
ur ættu hið fyrsta að setja
ofn þar inn.
Passíusálmar
HALLGRIMS PÉTURSSONAR
a r
Formáli eftir Sigurbjörn Einarsson biskup.
Fimmtíu heilsíðumyndir eftir Barböru M. Árnason.
Þessi nýja og glæsilega útgáfa hins þriggja alda
gamla snilldarverks er komin í bókaverzlanir.
SÁLMALÖG
við Passíusálma Hallgríms Péturssonar.
Sigurður Þórðarson safnaði og raddsetti.
Friðrik A. Friðriksson skrifaði nóturnar.
Lögin, sem sungin voru í útvarp á föstunni.
BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS
geröarlist. Hins vegar sjáum viö Stjáni.
okkur ekki fœrt aö birta af Svar:
honum mynd aö svo stöddu. Þaö finnst okkur Hka.
FALKINN
7