Fálkinn - 13.06.1962, Síða 8
■
OLLUM
HLUTUM
Það er búsældarlegt í Tungunum.
Þar er víða reisulegt heim að sjá og
augsýnilegt, að þar býr fólk, sem þykir
vænt um sveitina sína. Dag nokkurn
þegar túnin voru rétt tekin að grænka
og æmar nýfarnar að bera, flaug Fálk-
inn heim að Vatnsleysu og hitti Þor-
stein Sigurðsson bónda að máli. Hann
var reyndar önnum kafinn, enda höfðu
þeir verið að jafna niður sköttunum í
sveitinni þann dag.
— Ég hef alltaf sagt, að mér væri illa
við blaðamenn, segir Þorsteinn. —
Eitt sinn er ég var staddur á fundi í
Noregi og brá mér út, þá varð einhver
kauði fyrir mér. Hann sagðist vera
blaðamaður og vildi tala við mig. Ég
vildi ekkert við hann tala, en hann
gafst ekki upp og að lokum varð ég
að láta undan.
— Segðu mér eitt, hvað ertu búinn
að búa lengi á Vatnsleysu?
— Núna eru það fjörutíu ár. Við skul-
um annars sleppa því að tala um minn
búskap.
— Gengið vel? O, ekki get ég nú
sagt að það hafi gengið vel á kreppu-
árunum. Það hefur gengið svona upp
og niður.
-—■ Hvað hefurðu stórt bú?
— Ég er að draga saman seglin, ég
er að draga saman seglin smátt og
smátt. Einn sonur minn er farinn að
búa með mér og annar hefur stofnað
nýbýli þarna niður frá. Sjáðu, það heit-
ir Heiði.
— Hvað hefurðu margar kýr í fjósi?
— 14 kýr.
— En hvað hefurðu margt fé?
— 180 fjár, ég er að draga saman
seglin. Það þarf að hugsa vel um bú
til þess að það beri góðan ávöxt.
— Hverjir eru aðalkostir þessarar
jarðar?
— Þetta er beitarjörð, hér er ákaf-
lega gott beitarland, segir Þorsteinn —
og hér má rækta 80—90% af jörðinni
með góðu móti. Flyzt fólk úr sveit-
inni? — Það flyzt alltaf fólk úr sveit-
inni, segir Þorsteinn og brýnir raust-
ina. — Sveitina vantar fjármagn til þess
að halda öllu fólkinu. En fólkinu hér
hefur aðeins fjölgað. Það er hér nú um
470 manns. Þessi sveit hefur ákaflega
mikla framtíðarmöguleika.
— Vantar fjármagn?
— Það vantar fé. Hvað heldurðu að
það kosti að byggja nýbýli? Hálfa
aðra milljón, jafnvel meira, tvær
milljónir.
— Og í hvað fer allt það fé?
— Það þarf að byggja íbúðarhús,
gripahús, fjós, fjárhús og hlöður. Hvað
heldurðu að það kosti?
— Ja, góð íbúð í Reykjavík kostar
svona 700 þúsund.
— Er nú ekki hægt að fá góða íbúð
fyrir minna? Við getum alltaf reiknað
með um milljón í húsakost.
— Þarf ekki að kaupa vélar og bústofn?
— Jú, það þarf að kaupa vélar fyrir
svona 200 þúsund. Það er lágmark, seg-
ir Þorsteinn, — það er algjört lágmark.
Svo er bústofninn eftir og jarðræktin.
Á efri myndinni sér heim að Vatns-
leysu, hinu reisulega búi Þorsteins Sig-
urðssonar, stórbónda. Stóra myndin
hér til hægri er einmitt af honum. Hann
segir m. a. í viðtáli við FÁLKANN:
„Okkur bændurna vantar alltaf fé í
veltuna. Staðreyndin er sú, og það gerir
ekkert til þótt ég segi þér það, — við
bændurnir fáum ekki nóg fyrir afurð-
irnar. Þess vegna erum við ekki sam-
keppnisfærir á almennum vinnumark-
aði.“
FÁLKINN
bregður sér að þessu sínni
feðgana Þorstein Sigurðsson og Sigurð
út á iand og heimsækir
son hans að Vatnsieysu
FALKINN
8