Fálkinn


Fálkinn - 13.06.1962, Page 13

Fálkinn - 13.06.1962, Page 13
—- Hvað berðu á? —• Eg ber mykju í flögin, en svo út- lendan áburð og Kjarna á túnið. —• Þú hefur kindur, hvað hefurðu margar? — 130. — Og leggurðu stund á ullarrækt? — Nei, aðaláherzlan er lögð á kjötið. — Hefurðu gott beitarland? — Agætt, að vísu hefur verið anzi margt fé á afréttinum, en það er af- bragðs beit þar. — Við sáum áðan hjá þér hænur, hefurðu nokkuð hugsað um það að koma upp alifuglarækt? — Nei, ég held ég geri það ekki. Verðið á þeim afurðum er svo rokk- andi. — Hefurðu svín? —- Nei, mig vantar korn til þess að geta haft svín. Auk þess hef ég ekki nógu mikinn úrgang til þess að gefa þeim. Þú hefur þá ekki lagt út í kornrækt? — Maður hefur nú nóg með jarðrækt- ina enn. — Hvernig líkar konunni að búa í sveit? Frú Ölöf brosir við. Hún er úr Reykja- vík. •— Mér líkar það alveg prýðilega, svarar hún. — Hvernig er það, hafið þið Tungna- menn lagt niður reiðmennskuna? Áttu nokkra hesta, Sigurður? — Já, ég á fjóra hesta. Hér er nauð- synlegt að eiga hest. Bæði er langt að reka féð á fjall og smala afréttinn. —■ Já, svo er líka starfandi hesta- manna félag í hreppnum, bætir frú Ólöf við, þeir fara oft í útreiðar á sunnu- dögum. — Líkar þér ekki vel búskapurinn? — Maður er kominn yfir það erfið- asta, segir Sigurður. Og það bezta við búskapinn er, að maður er sjálfs síns herra. ☆ Bezt að vera sjálfs síns herra. Við kvöddum nú hjónin á Heiði og lögðum af stað niður Tungurnar. Hvar- vetna voru menn að starfi. Á einu býlinu var bóndinn að huga að fénu í túninu, á öðru var verið að plægja, og því þriðja var verið að aka mykju í flag. Mjólkurbíll ók eftir veginum og stanzaði við hvern brúsapall og tók mjólkurbrúsa og setti tóma á pallinn í staðinn. Ekki leið löng stund, unz ein- hver lagði af stað frá bæjunum og sótti brúsana. Ef til vill hefur verið eitthvað annað á brúsapallinum, sem nauðsyn- legt var að ná í. Jepparnir þutu fram hjá á veginum með hýrlegar stúlkur innanborðs. Jeppinn er eitt nauðsyn- legasta farartækið í sveitinni og hverj- um bónda er það kappsmál að eiga góðan jeppa. Sólin skein í heiði og það voru kyn- legar skuggamyndir, sem komu í ljós í hlíðunum. Rykið þyrlaðist upp af veginum. Það er víst töluverður áburð- ur í ryki, því að víða var grasið iðgrænt við vegarbrúnina, enda notuðu rollurn- ar það sér óspart. Við og við hlupu heimskir hundar í veg fyrir bílana og geltu að þeim. Erlendir hundar voru það, þeir eru víst fjarskalega heimskir og latir, þótt þeir nenni að gelta að bílum. Glæsilegar byggingar blasa við. Stórt og myndarlegt félagsheimili ber af öðrum húsum í þyrpingunni. Þar heitir Aratunga. Þeir búa vel að menningar- málunum, Tungumenn. Skömmu síðar ökum við í gegnum stórt gróðurhúsa- hverfi. Þar inni má sjá tómata, agúrk- ur og alls konar plöntur blómgast og dafna. Þetta er framtíðin. Þorsteinn Sigurðsson, bóndi á Vatnsleysu hefur þá rétt að mæla: — Þessi sveit hefur ákaflega mikla framtíðarmöguleika. Svetom, ☆ Börnin að Heiði fylgdust vel með ljósmyndaranum og gerð- um hans, enda varð sú raunin á, að hann tók þessa fyrir- taks mynd af þeim. Séð yfir fjósið á Heiði. Fremst á myndinni er bezta mjólkur- kýrin, sem gengur sjálfala í túni Sigurðar á sumrin. FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.