Fálkinn - 13.06.1962, Blaðsíða 17
leikrit gerði hann frægan á örskömmum tíma. Það hefur
verið sýnt í þekktustu leikhúsum fjölmargra landa við
miklar vinsældir og kvikmynd hefur verið gerð eftir því.
Hún var sýnd hér í Stjörnubíó fyrir nokkrum árum.
Gunnar Eyjólfsson leikur nú aftur sitt gamla hlutverk,
en Herdís Þorvaldsdóttir fer með hlutverk konunnar.
Leikstjóri er Klemens Jónsson. Leiktjöldin eru gerð af
Guðna Bjarnasyni leiksviðsstjóra Þjóðleikhússins. Leik-
sviðsútbúnaður og búningar eru mjög skrautleg og
skemmtileg, enda oft skipt um svið í leikriti, sem nær
yfir fimmtíu ára tímabil.
FÁLKINN birtir á þessari opnu myndir úr hinni nýju
uppfærslu á „Rekkjunni“. Myndirnar fimm hér að neðan
eru teknar í réttri tímaröð, allt frá brúðkaupsdeginum
og til elliáranna. Á síðustu myndinni hugsar eiginmaður-
inn um látna konu sína og hún birtist honum í brúðar-
skartinu. Það má lesa sitthvað úr þessum fimm myndum.
Þær sýna okkur basði hið súra og sæta, sem öll hjón lifa
í langri sambúð. Stóra myndin hér að ofan er ef til vill
dæmigerðust fyrir „Rekkjuna" — þetta skemmtilega og
mannlega leikrit, sem höfðar til allra hjóna.
Myndirnar eru teknar af Þorvaldi Ágústssyni.