Fálkinn


Fálkinn - 13.06.1962, Page 35

Fálkinn - 13.06.1962, Page 35
 Vortízkan 1962 Hrútsmerkiö (21. marz—20. apríl). Það verður óvenjulega mikið um skemmtanir hjá yður í þessari viku og þér munuð fá óvænta gjöf eða styrk. Annars verður vikan ósköp venjuleg ög svipuð þeim, sem á undan eru gengnar. Nautsmerkiö (21. apríl—21. maí). Miðvikudagur, föstudagur og laugardagur verða beztu dagar vikunnar. Þér munuð fá heimsókn, sem er hvortveggja í senn skemmtileg og hagstæð fyrir vinnu. Þér skuluð ekki hampa um of hugmyndum yöar og framtíðaráformum. Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní). Þessi vika verður hagstæð, en krefst mikillar vinnu og erfiðis og andlegrar áreynslu, sem þér skuluð ekki láta yður vaxa í augum. En það sem úrslitum ræður er, að leiðin sé rétt og það mun koma í ljós síðar hjá yður. Krabbamerkiö (22. júní—22. júlí). Strax 1 byrjun vikunnar fáið þér ný og erfið verk- efni að glíma við. Það ríður á að þér beitið til hins ítrasta mælsku yðar og orðfimi og veljið veg og ráð að vandlega athuguðu máli. Þet.ta heppnast yður. En ofmetnist ekki. LjónsmerkiÖ (28. júlí—28. ágúst). Brjótið odd af oflæti yðar og leitið aðstoðar mann- eskju, sem er öll af vilja gerð til að rétta yður hjálparhönd. Farið á fund hennar og látið ekki lítils háttar móðgun standa í vegi fyrir því. Sú heimsókn verður til góðs. Jómfrúarmerkiö (2U. ágúst—28. september). Strax í byrjun vikunnar fáið þér því framgengt, sem yður hefur lengi dreymt um. Þér getið þakkað hyggindum yðar þennan góða árangur. Mjög mikil- virk persóna fær áhuga á yður og starfi yðar og gerir yður tilboð. Vogarskálarmerkið (24. september—24. október). Fyrri hluti næstu viku verður rólegur og mein- hægur, en í vikulokin verður ofurlit.il sprenging í einkalífi yðar. Þá gerist sitthvað sem kemur flatt upp á yður. Þetta verður erfitt fyrst, en jafnar sig síðan smátt og smátt.. SporÖdrekamerkiö (24. október—22. nóvember). Loksins kemur að því að þér sýnið hvað í yður býr. Þér verðið aldrei þessu vant vel upplagður og sýnið atorku, bæði á vinnustað og heima fyrir. Þetta kemur ekki aðeins vinum yðar og kunningjum á óvart heldur einnig yður sjálfum. Bogamannsmerkið (28. nóvember—21. desember). Þér munuð sæta harðri gagnrýni og skilningsleysi gagnvart aðstöðu yðar, svo að þessi vika verður ögn óhagstæð frama yðar. En það er engin ástæða til að missa kjarkinn. Einkalífið verður mjög ánægju- legt þrátt fyrir þessa erfiðleika. Steingeitarmerkiö (22. desember—20. janúar). Fyrir algera tilviljun fáið þér tækifæri til að rjúfa hið vanabundna og hversdagslega líf yðar. Yður gefst tækifæri til að bregða á leik og skemmta yður duglega. En hversdagsleikinn vitjar yðar aft.ur. Vatnsberamerkiö (21. janúar—19. febrúar). Þér fáið tækifæri til að leysa vandamál, sem lengi hefur svift yður allri sálarró. En aðstaða yðar er samt lítið breytt fyrir það. Ef yður tekst að hafa hemil á skapi yðar, tekst. yður að leysa vanda yðar til fulls. Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz). Svo virðist sem yður veitist mjög erfitt að komast í snertingu við mann sem er yður mjög mikilvægur. Á einhvern hátt skuluð bér berjast áfram að tak- marki yðar, án þess að hafa of mikið orð á því. Allur er varinn góður ef illa skyldi t.il takast. fálkinn 35

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.