Fálkinn - 24.04.1963, Page 4
Christina Kaufmann, þýzka stjarnan, gifti sig í febrúar s.l., Toni
Curtis. Brúðkaupið fór fram með mikiili prýði í Riviera-Hotelinu
í Las Vegas. Meðal viðstaddra var Kirk Douglas og kona hans.
Toni Curtis var eins og kunnugt er, áður kvæntur Janet Leigh.
Hér að ofan er mynd af Douglas-hjónunum ásamt brúðhjónunum.
Á RÉTTUM STAÐ.
Yves Montand ræður sér
ekki fyrir fögnuði imi þessar
mundir yfir að vera farinn að
sýna listir sínar á gamla, góða
sviðinu í Etoile leikhúsinu í
París. Það eru firnm ár síðan
að hann hefur komið fram á
þessu sviði og kunna Parísar-
búar vel að meta afturhvarf
hans.
FJÖLSKYLDUMYND.
Mills systur, Haylay og
Juliet leika mjög í enskum
kvikmyndum. Þær eru ung-
ar og Haylay er ekki enma
14 ára. Samt hefur hún
þegar leikið í tveimur mynd-
um, Tiger Bay og Pollyana.
Þær systumar eiga nú að
leika saman í kvikmynd,
sem gerð hefur verið eftir
skáldsögu móður þeirra,
Whistle in the Wind. Eldri
systirin, Juliet er ekki eins
fræg og sú yngri en hún er
síður en svo einhver græn-
ingi í leiklistinni. Hún er
19 ára gömul og hefur bæði
leikið á leiksviði í Lundún-
um og Nýjork.
PRÓFESSORARNIR.
Enskur prófessor var að leita sér að íbúð í Oxford. Hann sneri
sér til leigumiðlunar og fékk skrá yfir leigjendur hennar. Þegar
hann sá nafn eins af nemendum sínum á listanum, sagði hann við
umboðsmanninn: „Vilduð þér gera svo vel að láta mig hafa þessa
íbúð þegar hún losnar. Hún losnar bráðum og leigjandinn fer burt
úr borginni. Eg er nýbúinn að fella hann á prófi.“
4 FÁLKINN
Þýzka vikublaðið
Quick leggur stund-
um spurningar fyr-
ir frægt fólk. Fyrir
ári eða svo spurði
það frægar konur,
hvernig þær færu
að því að láta börn-
in hafa nóg að
starfa, þegar rign-
ing' væri úti. Jacque
line Kennedy svar-
aði svo:
— Þegar ég sé, að dóttir mín Caroline
rýkur úr einu í annað, af því að það er
rigning úti, þá segi ég henni að koma til mín,
og að við skulum skemmta okkur saman. Nei,
við leikum okkur ekki í mömmuleik, heldur
ræði ég við hana eins og fullorðna manneskju.
Og þegar hún verður leið á því, þá lána ég
henni léreft, pensla og olíuliti, set hana upp
á háan stól og lofa henni að mála við málara-
grindina mína. Hún verður oftast nær yfir
sig hrifin af þessu og gleymir sér alveg. Og
ég held auk þess að hún hafi hæfileika í
þessa átt.
★
Séra Jóhann Þorkelsson dómkirkjuprestur
náði hárri elli. Löngu eftir að hann lét af
embætti, hitti hann séra Bjarna og segir við
hann:
— Ertu nú ekki farinn að kalka, Bjarni
minn?
— Ekki finn ég nú til þess, svaraði séra
Bjarni.
— Það er nú einmitt byrjunin, sagði þá
★
Harry S. Truman fyrr-
verandi forseti Banda-
ríkjanna ræddi eitt
sinn um stjórnmál við
nokkra stúdenta. Meðal
þeirra var einn, sem var
sonur eins auðugasta
manns Bandaríkjanna.
Hann spurði Trúman:
— Afsakið, en hvernig
haldið þér, að ég geti
bezt komizt áfram í
stjórnmálunum.
Truman gaut til hans augunum og svaraði:
— Það getið þér strax. Þér eruð þegar
byrjaður að nota annarra manna peninga.
★
í Rússlandi fór nýlega fram skoðanakönn-
un á vinsældum einstakra hljómplatna.
Númer eitt á vinsældalistanum var L. P. —
plata með þessum listamönnum: Ella Fitz-
gerald, Louis Armstrong, Frank Sinatra og
Bing Crosby. Meðal hinna 10 efstu á listanum
var plata með rússneska skáldinu, Yvgeni
Yevtushenko. Las hann þar upp eitt af
baráttuljóðum sínum.