Fálkinn


Fálkinn - 24.04.1963, Blaðsíða 27

Fálkinn - 24.04.1963, Blaðsíða 27
1 femingur = 2 þræðir, NALAPUDI — sem auðvelt er að sauma Framhliðin á nálapúðanum er saumuð í hvítan java eða léreft, 6 krosssaumsspor = 1 cm, en stærð púðans er nál. 'IVz'/.l % cm. Saumið miðnystrið fyrst og saumið með föl- um lit og 2þættu áróragarni. Það eiga að vera 4 þræðir á milli allra 9 mynztranna, en utan um þau eru saumaðar 3 krosssaumsrendur og eiga einnig að vera 4 þræðir milli þeirra. Saumið ferkantaðan púða (JIV2. úr efni, sem er eins á litinn og ísaumsgarnið. Fyllið púð- ann með ullarafgöngum eða frauðgúmmíi. Festið útsaumuðu framhliðinni ofan á kappmelluspori. Ágæt hetta til að bregða yfir hár- ið, þegar steikt er eða verið að taka til. Sníðið kringlótt stykki úr bóm- ull eða plasti. Faldið brúnina. Búið til 4 cm. breitt fall. Stingið hettuna í vél með 1 cm. millibili. Dragið teygju í, athugið að hafa hana ekki of þrönga, svo að hárið klessist ekki of mikið saman. i Þegar tekið er til í skúffum og skápum, kemur margt fram í dagsljósið, efnisafgangar, gömut gluggatjöld, sokkar o. s. frv. Það er gott að hagnýta slíkt, flétta úr því teppi úr 5 lengjum eins og myndin sýnir. Hafið lengjurnar af svipaðri gerð og lit. Síðan eru flétturnar saumaðar þannig sam- an í hring eða sporöskjulagað að vel fari. Flestir eiga nóg í heilt teppi, en þá er t. d .hægt að rífa niður lök, sem hafa lifað sitt feg- ursta og lita síðan. Þetta er fljót- leg og skemmtileg vinna og teppin ágæt í sumarbústað og svefnher- bergi. Eplaflesk. 250 g. reykt flesk. 4 laukar. 4 epli. ' 1 tsk. sykur. Fleskið steikt á velheitri pönnu, fitunni hellt frá. í fitunni er laukur- inn brúnaður og flysjaður og epla- bátar, sem stráð hefur verið á ör- litlum sykri. Borið fram raðað fallega á fat með góðum hrærðum kartöflum og grænum baunum. FÁLKINN 27

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.