Fálkinn


Fálkinn - 24.04.1963, Blaðsíða 26

Fálkinn - 24.04.1963, Blaðsíða 26
húsmæðrakennari. Allar viljum við ganga léttklæddar á sólríkum sumardegi, en ský getur dregið fyrir sólu. Þá er gott að hafa fallega peysu við hendina og þessi hérna ætti að vera ágæt. Efni: nál. 550 g frekar gróft ullargarn í dökkum lit og 50 g í ljósum, 6 hnappar. 'Prjónar: Nr. 4 og 4%, hringprjónn nr. 3V2. 18 1. — 10 cm. 5 umf. = 2 cm. Mynstrið: 9 umf. slétt prjón (byrjað á brugðnum prjóni). 10. umf.: * 8 sl., prjónið 10. 1. slétt tekið aftan í lykkjuna, látið lykkjuna vera kyrra á prjóninum, prjónið 9. 1. venjulega slétt, takið báðar 1. fram af prjóninum. Endurtekið frá *. — 9 umf. slétt prjón. 20. umf.: 3 sl., * prjónið 5. 1. slétt tekið aftan í lykkjuna, látið lykkjuna vera kyrra á prjóninum, prjónið 4. 1. venjulega slétt, takið báðar 1. fram af prjóninum. Endurtekið frá *, endað með 3 sl. Bakið: Fitjið upp 88 1. á prjón nr. 4 og prjónið 8 umf. brugðningu (1 sl., 1 br.) sett á prjón nr. 4y2 og mynstrið prjónað. Aukið út um 1 1. hvoru megin með 5 cm millibili, þar til 98 1. eru á. Þegar síddin er 36 cm eru 8 1. geymdar hvoru megin (handvegur). Nú er tekið úr á þennan hátt: 1 sl., 2 sl. saman, prjón- ið út prjóninn, þar til 3 1. eru eftir, þá eru 2 1. prjón- aðrar, snúnar slétt saman, 1 sl. Tekið úr í annarri hverri umf., þar til 38 1. eru eftir. Síðan í hverri umf., þar til 30 1. eru eftir. Lykkjurnar geymdar. Vinstri boðangur: Fitjið upp 40 1. á prj. nr. 4 og prjónið 8 umf. brugðningu, sett á prjón nr. 4V2 og mynstrið prjónað. Aukið út eins og á bakinu, þar til 45 1. eru á. Þegar síddin er 32 cm er tekið úr að framan verðu 1 1. í 8. hverri umf. 6 sinnum. Þegar síddin er 36 cm eru 8 1. geymdar fyrir handveg. Tekið úr eins og á bakinu, þar til 3 1. eru eftir. Fellt af. Hægri boðangur prjónaður sem spegilmynd af þeim vinstri. Ermar: Fitjið upp 52 1. á prjón nr. 4V2, prjónið 8 umf. brugðningu því næst mynstrið. Aukið út um 1 1. hvoru megin í 6. hverri umf. þar til 74 1. eru á. Þegar síddin er 33 cm eru 8 1. geymdar hvoru megin. Þá er tekið úr á sama hátt og á bakinu, þó í 4. hverri umf. 3svar þar til 32 1. eru á og síðan í annarri hvorri umf., þar til 6 1. eru á. Fellt af. Hin ermin prjón- uð eins. Frágangur: Pressað lauslega á röngunni. Allir saum- ar saumaðir saman og ermar festar í. Saumið hand- veginn saman með sem prjónað væri. Prjónið nú lín- ingu á hringprjón nr. 3%. Takið upp 238 1. slétt þannig: 90 1. meðfram hægri boðangi, 6 1. við ermina, 26 1. á bakinu (prjónið 1. saman, svo að lykkjufjöld- inn passi), 6 1. við hina ermina og 90 1. á vinstri boð- ang. Prjónið 1 umf. brugðna til baka með ljósu garni, 2 umf. brugðningu (1 sl 1 br.) með ljósu garni 1 umf. slétt með dökku garni, 2 umf. brugðningu með dökku garni, 1 umf. brugðning með dökku garni, þar til 60 1. eru eftir, þá eru hnappagötin búin til, * fellið 2 1. af brugðið, prjónið 9 1. með brugðningu, endurtekið frá * út umferðina endið með 3 1. brugðningu. í næstu umf. sem er prjónuð sem brugðning, eru 1. fitjaðar á ný. Þá eru prjónaðar 2 umf. brugðning, síðan fellt af sl. og br. og þess gætt vel að brúnin hvorki flái né sé of kröpp. Hnappar saumaðir í.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.