Fálkinn - 02.03.1964, Qupperneq 15
en aðrir reyndu að bægja þeim frá áhrifum, eins lengi og kostur væri. Republik-
anar gengu á lagið og buðu Gyðingum og ítalska þjóðarbrotinu samstarf. Sakir
óvinsælda utanrikisstefnu Woodrows Wilsons meðal ýmissa þjóðarbrota, tókst
Republikönum með þessu móti að ná völdum um skeið úr höndum demókrata.
Yfirhöndinni náðu demókratar þó aftur, þegar A1 Smith var í framboði í forseta-
kosningunum 1928. Á kreppuárunum var uppgangur demókrata svo mikill, að
þeir unnu allflestar kosningar í Massachusetts. Þó tapaði Michael Curley fyrir
Henry Cabot Lodge, þá þrjátíu og fjögurra ára gömlum, í kosningum til öldunga-
deildarinnar 1936. Demokrataflokkurinn i Massachussets var samt sem áður laus
í reipunum. öðrum fremur var flokkurinn samsteypa samtaka þjóðarbrota og
einstaklinga. Um þetta leyti voru flestir forystumannanna af írskum ættum.
Enginn þeirra bar höfuð og herðar yfir aðra. Eftir einum þeirra hefur verið
haft: „Flokkur okkar í Massachusetts er ágætur. Gallinn er bara sá, að við höf-
um tíu þúsund foringja."
Þegar Jack skráði sig til prófkosninganna, sagðist hann eiga heima hjá afa
sínum, John F. Fitzgerald. Þótt hann hefði fiutzt frá Boston með foreldrum
sínum drengur að aldri, var hann allvel kunnugur í borginni. Og báðir foreldrar
höfðu fæðzt i kjördæminu. Þegar framboðsfrestinum lauk, voru frambjóðendurnir
orðnir tíu, en prófkosningamar skyldu fara fram í júní.
Jack hóf kosningabaráttuna fyrstur frambjóðendanna. Liðlega ár var liðið,
síðan hann hafði farið af sjúkrahúsinu. Hann var enn mjög grannur og fölur.
Fyrir áhrif mýraköldunnar og þeirra meðala, sem hann hafði tekið inn, var allt
að því gul slikja á hörundi hans. Hann var allsendis óvanur ræðuhöldum. Þá,
sem hlýddu á mál hans, mun ekki hafa órað fyrir, að innan sex ára væri hann
orðinn áhrifamesti ræðumaður á kosningafundum, sem um gæti í sögu Massa-
chusetts. 1 fyrstu var hann tregur til að taka kjósendur tali, því að hann var
hlédrægur að eðlisfari. Brátt hafði hann þó unnið bug á þeirri tregðu og gengið
jafnvel iengra í þeim efnum en aðrir frambjóðendur. Einn stuðningsmanna
hans í kosningabaráttunni hefur sagt svo frá: „Hann fór um hliðargötur og gekk
upo stiga fjölbýlis-leiguhúsa, þar sem stjórnmálamenn höfðu ekki áður stigið
fæti inn fyrir dyr. Hann áttaði sig ekki á, hve hissa fólkið varð, sem hann
barði uppá hjá, og hver áhrif heimsókn hans hafði á það.“ Stjórnmálalegar
bollaleggingar létu honum straks vel. Við kjósendur ræddi hann oftast um
vandamál kjördæmisins, atvinnumál, húsnæðismái, verðlag og sjúkrahjálp. Að-
eins eitt utanríkismál bar á góma, lán Bandaríkjanna til Bretlands. Jack studdi
lánveitinguna, en margir frambjóðendanna voru henni andvígir.
Vinir Jacks og skólafélagar hópuðust til Boston til að styðja hann í kosninga-
baráttunni. Meðal þeirra var Torbert Macdonald, Ted Reardcn og Lemoyne Bill-
ings. skólafélagi Jacks i Coate-menntaskólanum, og nokkrir skipsfélaga hana.
Stuðningsmenn Jacks og starfsmenn í kosningabaráttunni voru flestir fyrrver-
andi hermenn. I New Yorker birtist frásögn um stríðsafrek Jacks, Mannbjörg,
eftir hinn víðkunna blaðamann John Hersey. Frásögninni sérprentaðri var dreift
um kiördæmið. Fitzgerald og nokkrir vina hans studdu Jack með ráðum og dáð-
um. bótt ekki væru þeir allskostar ánægðir með, hvemig á kosningabaráttunni
var haldið. Joseph Kennedy mun hafa fylgzt jafnvel enn betur með kosninga-
baráttunni en Jack var Ijóst. Þegar á hana leið, réð hann Jack sem kosninga-
stióra Frank Morissey. sem verið hafði ritari Maurice Tobey. fyrrum borgar-
stjóra Boston og ríkisstjóra í Massachusetts. I lok kosningabaráttunnar höfðu
Kennedy-hjónin boð inni fyrir konur á kjörskrá. Til boðsins komu um tvö þús-
und konur. A kjörstað fór Jack í fýlgd með afa sínum Fitzgerald og ömmu
sinni. Seint á kjördag skrapp hann i kvikmyndahús og sá „A Night in Casa-
blanca". Prófkosninguna vann Jack glæsilega. Hann hlaut 22.183 atkvæði, en
hinir frambjóðendumir hlutu samtals 32.541 atkvæði.
Um kvöldið, sem úrslitin urðu kunn, steig Jack upp á borð í kosningabæki-
stöðvum Jacks og söng ,3weed Adelaine". Um það atvik sagði síðar í Time:
„Það voru síðustu svipmerki hefðbundinnar írsk-bandarískrar stjómmálabaráttu
í stjómmálaferli Jacks Kennedys, hins langsamlegasta sigursælasta allra írskra
stjórnmálamanna." Þessi ymmæli munu vart orðum aukin. Straks í þessari fyrstu
kosningabaráttu Jacks kom í ljós, að hann réð ráðum sínum einn. Og utan fjöl-
skyldu sinnar gerði hann fáa að trúnaðarmönnum sínum. BanSanskur binE'mað-
ur hefur sagt um Jack: „Það, sem skilur á milli Kennedys og annarra írskra
stjómmálamanna og raunar stjómmála-
mar bvar sem er, er það, að honum
finnst tiann aldrei vera neinum skuld-
bundinn." Með þessum orðum mun vera
átt við, að Jack hafi verið tamt að
setja stefnumál ofar greiðasemi við vini
og stuðningsmenn. I Boston sem víðar
var það vani stjómmálamanna að finna
skjólstæðingum sínum störf eða bitlinga
Það forðaðist Jack hins vegar ávallt eft-
ir beztu getu. 1 Boston var lengi haft
orð á því, að móðurbróðir hans, Thom-
as Fitzgerald, vann sem tollþjónn við
Mystic River Bridge. Þegar Jack fór um
kjördæmið, kappkostaði hann að koma
fram sem látlaus og hæglátur maðvr,
eins og honum var eiginlegt. Hann lagði
ávallt mikla vinnu í ræður sínar. Hann
vitnaði gjaman í sígild rit og sagnfræðj-
rit. Á ræðupalli flutti hann mál sitt ró-
lega og skýrt. Áheyrendum virtist hann
oft fremur vera að halda fyrirlestur en
stjómmálaræðu.
Þar sem Jack átti ekki yfir höfði sér
hörð átök i kosningunum í nóvember,
dvaldist hann mestallt sumarið í Hyann-
is Port. Republikanar voru að vinna á
víðast hvar í Bandaríkiunum undir for-
ystu Roberts A. Tafts. Kjörorð þeirra
var: ,,Er ekki nóg komið?“ f fyrsta sinn
í nær tvo áratugi náðu Republikanar
meirihluta i báðum þingdeildum í nóv-
ember 1946.
Jack fót til Washington í janúar 1947.
Hann var þá á þrítugasta ári, en hann
sýndist vera enn yngri. Einn fyrsta dag
hans í þinghúsinu var hann fyrstur
manna i lyftu. Þeir sem á eftir komu,
óskuðu eftir að fara á fjórðu hæð.
Jack kunni fljótiega vel við sig á þingi.
Hann kom sér upp skrifstofu að sið
bandarískra þingmanna. Skrifstofu hans
veitti forstöðu Ted Reardon. Jack lók á
leigu hús í Georgetown. Um það sá
roskin kona, sem lengi hafði verið í
þjónustu Kennedy-fjölskyldunnar ásamt
þjóni hans, Eunice, systir hans, dvaldist
þá líka í Washington og var Jack tíður
gestur hennar. En fyrstu ár sín á þingi
brá hann ekki fyrri lífsvenjum sínum.
Hann gekk stundum meira að segja til
knattspymuleika.
Skömmu eftir að Jack tók sæti á
þingi kom fyrir kynlegt atvik, sem ým-
ist hefur verið til vitnað Jack til lofs
eða lasts. James Curley varð sakfelld-
ur fyrir misferli í fjármálum. Og nú sat
James Curley, borgarstjóri í Boston, í
hegningarhúsi. Heilsa hans var ekki með
bezta móti. John McCormac safnaði þá
Framhald á bls. 28
FÁLKINN 15