Fálkinn


Fálkinn - 02.03.1964, Blaðsíða 24

Fálkinn - 02.03.1964, Blaðsíða 24
SJÓNVARP Á NÆSTA LEITI Innlent sjónvarp er nú mjög á dagskrá. Sveinn Sæmundsson var fyrir skömmu staddur í Berlín og heimsótti þá sjónvarpsstöðina þar, „Sender Freies Berlin“. Hann segir hér frá þeirri heimsókn og í stuttu máli frá þróun sjónvarpsins. 1 einum upptökusalnum var verið að undirbúa upptöku bamatíma. Smiðir unnu að smíði lítilla húsa og landslags, sem lientaði í myndina. Langt er síðan menn dreymdi um að geta sent myndir milli fjarlægra staða og tilraunir til þess hófust þegar á öldinni sem leið. Enda þótt þeir, sem þessar tilraunir gerðu, yrðu margs vísari um slíkar mynda- sendingar, náðist þó ekki telj- andi árangur fyrr en á þriðja áratug þessarar aldar og þá þóttu þeir menn sérstak- lega bjartsýnir, sem töldu að sjónvarp yrði að veruleika fyrir öldina miðja. Þegar sjónvarp ber á góma okkar íslendinga, hvarflar hug- urinn tíðast vestur um haf. Kannski er þessu svo varið vegna þess að eina sjónvarpið, sem við höfum hér, á því herrans ári 1964 er fyrir til- stilli Bandaríkjamanna og allir vita hve snar þáttur sjónvarpið er í daglegu lífi þeirrar þjóðar. En það eru fleiri en Banda- ríkjamenn, sem telja sjónvarp meðal þeirra lífsins gæða, sem vert er að leggja eitthvað á sig til þess að eignast og njóta og víst er um það að Evrópubúar eru engir eftirbátar þeirra fyr- ir vestan í því að vilja eignast sjónvarpstæki og telja það nauðsynlegan hlut húsbúnaðar- ins. Mér er meira að segja ekki grunlaust um að notkun sjón- varpsins, sé með talsvert meiri menningarbrag austan hafs, sérstaklega í Vestur-Evrópu. Á fyrstu árunum eftir 1930 þótti sýnt að sjónvarp, enda þótt það á þeim árum væri lítið meira en skuggi þess sem síðar varð, myndi í mörgum tilfellum koma í stað venju- legs útvarps. Þó átti útvarpið eftir að fullkomnast og lang- drægni þess að aukast og það var t. d. fyrst 21. janúar 1930, sem Georg V Bretakóngur ávarpaði alla þegna sína í einu í útvarpi. Það var þá þegar álit þeirra, sem lengst hugsuðu um þessi mál, að sjónvarpið myndi ekki ná fullkomnun né útbreiðslu fyrr en upptaká og sendingar byggðust að öllu leyti á elek- tróniskum tækjum, en ,,scan- diskurinn“, sem þá var látinn setja línur í sjónvarpsmynd- irnar, myndi hverfa. Allir þeir tæknilegu sigrar, sem um 1930 höfðu verið unn- ir í sjónvarpstækninni áttu sér 24 falkinn

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.