Fálkinn - 02.03.1964, Blaðsíða 19
ÓHANNES ARASON
Mynd 1: Dyrnar á
húsi Carlsens — og
nafnið.
Mynd 2: Jóhannes og
hundarnir í vígahug.
Hundarnir liafa fengið
veður af mink, krafsa
og bíta jröðina og
gelta og góla en Jó-
hannes beitir járnkari-
inum.
Mynd 3: Prinsessa, —
vitur og göfug og á-
liugasöm og auk þess
ltynsæl með afbrigð-
um.
Mynd: 4: Carlsen með
alvæpni.
4
völdin við sér og bönnuðu frekara minkahald.
Minkurinn timgaðist ört og breiddist um land allt
eins og logi færi yfir akur og stóðust hvorki fyrir hon-
um fjöil né firnindi, eldhraun né djúpir álar. Það verð-
ur engum tölum talið hvilíkum usla minkurinn hefur
valdið í silungsám og varplöndum landshornanna á
milli og fugiavinir og stangaveiðimenn mega ekki til
hans ógrátandi hugsa. Hinsvegar hafa það tíðum ver-
ið viðbrögð íslendinga að gráta ekki Björn bónda allt
of lengi, heldur safna liði og í þessu tilviki er liðs-
foringinn Carl Carlsen minkabani, maður iöngu þjóð-
kunnur eins og hinn ferfætti og skottprúði óvinur
hans.
Carlsen stendur ekki einn að vígi því auk þess sem
bændur og atvinnuveiðimenn víða um land hafa lagt
sitt af mörkum til að útrýma minkinum, eru minka-
veiðar vinsælt sport, engu að síður en laxveiði og
rjúpnadráp.
Okkur datt í hug að rekja slochna eftir emn slík-
an sportveiðimann á minkaveiðum og fylgjast með því
hvernig Keir.pan bæri sig að: Fórnardýr okkai var Jó-
hannes /C’ason útvarpsþulur, landskt.nnur fyrir rödd-
ína. Hitt vissu færa að hana er veiðirraður góður
og hefu- oft gert hatða hrið að minknum með ágæt-
um árangri. Minkunum er eins gott að vera ekki mik-
ið á stjái ef þeir heyra einhvern annan en Jóhannes
lesa frétirnar í útvarpið. Því þá er eins víst að hann
sé á ferli um holt og heiðar með haglabyssu og
benzínbrúsa, járnkarl og skóflu og hafi sér til full-
tingis snuðrandi minkahunda.
„Einhverstaðar“ í Mosfellssveit hefur Carl Carlsen
aðsetur sitt þar sem hann býr einn ásamt með 55
hundum. Þangað förum við fyrst í því skyni að fá þjálf-
aða velsporrekjandi hunda til að þefa uppi minkinn.
FALKINN
19