Fálkinn - 14.09.1964, Blaðsíða 6
IIR
-y-wgx'<m .
: - f
A» ium
John og John
Þeir hafa unnið saman töluvert um ævina
þessir tveir sem við sjáum á myndinni. Báðir
heita þeir John annar Ford og hinn Wayne.
John Ford er einn af beztu kvikmynda-
leikstjórum Bandaríkjanna. Hann er fæddur
árið 1895 í Californiu. Hann hóf fyrstu störf
sín við kvikmyndir sem Ijósmyndari en 1917
stjórnaði hann fyrstu mynd sinni og hefur
til þessa stjórnað alls um fjörutíu myndum.
Fjórar mynda hans hafa hlotið Oscar-verð-
laun. Margar mynda hans eru taldar með
því bezta sem gerðar hafa verið á sviði kvik-
myndanna og nægir í því sambandi að benda
á mynd eins og Rising of the Moon sem hann
gerði árið 1957. Þótt John Ford sé kominn
fast að sjötugu vinnur hann enn af fullum
krafti. Hið raunverulega nafn hans er Seam
O’ Fearna.
Daninn Dirch Passer mun vera
einn vinsælasti skopleikarinn hér um
þessar mundir. Kvikmyndahúsin
keppast við að sýna myndir með
honum og þær eru flestar ekki mjög
gamlar þegar þær eru teknar til
sýningar hér — gagnstætt mörgum
öðrum. Og þessi afstaða kvikmynda-
húsanna kann að vera skiljanleg
þegar það er haft í huga að myndir
með Passer ganga mjög vel — jafn-
vel margar vikur.
Passer er fæddur 18. maí 1926 og
er því nýorðinn 38 ára. Hann hóf
að starfa við leikhús rúmlega tvítug-
ur. Hann nam í leikskóla leikhússins
í Frederiksberg. Hann lék mikið í
revýum um tíma en nú seinni árin
hefur hann mest unnið í kvikmynd-
um. Fyrsta mynd hans var „Dorte“
en hún var tekin 1959. Nú mun
hann hafa leikið í um þrjátíu mynd-
um.
Meðfylgjandi mynd er úr einni af
seinni kvikmyndum sem hann hefur
leikið í og heitir „Majorens oppasser"
og sú sem er með honum á myndinni
er Judy Gringer.
sá bezti
Það er mikið talað um það nú um þessar mundir að
ef til vill muni þau ganga í heilagt hjónaband Rex
Gildon og Gitte Hænning. Þau hafa fyrir stuttu síðan
leikið saman í kvikmynd og þau hafa sést mikið saman
að undanförnu. Og nú eru menn að velta því fyrir sér
hvort hér sé aðeins á fe»-ð)nni kunningsslr*>v>iir eða hin
sanna ást.
úrklippusafnið
Sendið okkur spaugilegar
klausur, sem þér rekizt á I
blöðum og tímaritum. Þér fáið
blaðið, sem klausa yðar birtist
í, sent ókeypis heim.
verða. Sýningin verður opnuði
á aírriSjlisdégi; skáldsins, scm or
;i morgun kl. 7,15, en um kvðldk
ið verður Svo hátíðasýning i
ÞjóOleikhúsinu á Hamlot og
: verður það 35. sýning leiksins, :
: llamlelt var sem kunnugt er
rv-;; Thlaðið 24. maí 1964.
‘ - ' 'ðdís Björnsdóttir.
Bæir þeir sem nú fengu raf- :
magn fiestir venYi rafmagnslaus-
ir til þessa, aðeins stöku beer
íslendingur 14. ágúst 1964.
Sond,: Svanberg Laxdal.
SímJ 11-1-82
ÍA Harð Day’s Nlght)
Bráöfyndtn, ný msk eðngva-
og gamannaynd mefl hinum
heirnsfrægu „The Beatles"
aðalhlutvericum.
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9
Mlðasala irá
Þjóðvi’vinn 23. ágúsí Í964.
Serrd • Hilmar Karisson.
Durabé-svxlvH hvfer vn&nfer,
te iMtna vfs« i os é
8<»»f»íltn«il vlS Bffvrtes&r vi;v
Mðloir, «n i veturna i Akratmi.
taýjgsiP-áM&a-
n 25. júli
iunnar Gu-v s.
Borðið kjÖf
Kennari var í eðlisjrœðitíma að útskýra,
að hlutir þenjast út við hita, en dragast sam-
an við kulda.
Getur þú nejnt mér dœmi, Siggi minn? spurði hann einn
drenginn?
— Já, á sumrin er heitt og þá eru dagarnir langir. En á
vetrum er kalt og þá eru þeir stuttir.
mennt nútíma sveitaheimiii.
, Sérherbfcrgi. Tilboð. ásamt
kuupkröfu, sendút Mbl., sem
fyrst, merkt: „Húnavatns-
sysla — 4307“.
Morgunblaðið 20. ágúst 1964.
Send.: Sigrún Stefánsdóttir.
Galdra - Loftur sýndur í
sambandi við aðalfund KEA
- 'SsM
Vísir 4. maí 1964.
Send.: B. V.
6
FALKINN