Fálkinn - 14.09.1964, Blaðsíða 34
HUJWDUTERTA
IV8EÐ SÍTRÓNUÍS
Deigið:
150 g saxaðar hnetur
150 g flórsykur
150 g smjör eða smjörlíki
2 msk. hveiti nokkuð
fullar
2 msk. mjólk
ísinn.
3 eggjarauður
7 5 g flórsykur
Rifinn börkur afsítrónu
2 tsk. sítrónusafi
3—4 dl þeyttur rjómi
Hrærið egg og
sykur, blandið
þeytta rjómanum
saman við. Krydd-
að með sítrónuberki
og safa.
Hnetubotnar:
Sjoðið allt saman i
þykkum potti, þar
til deigið fer dálítið
að þykkna.
Deigið sett á smurð-
ar og hveitistráðar
plötur. Mótaðar kringl
óttar kökur (renna
út). Bakið við meðal-
hita.
5Rétt áður en kakan er borin fram eru botnarnir
lagðir saman. ísinn tekinn úr mótinu með skeið.
Flórsykri stráð yfir. Skreytt með vínberjum ef
til er.
SLÖNGUKÖKUÁBÆTIR
Slöngukaka:
3 egg
100 g sykur
1 tsk. lyftiduft
80 hveiti
Aprikósumauk
Innan í:
2 egg
100 g sykur
Vz sítróna, safi, börkur
5 bl. matarlím
4 dl þeytur rjómi
Niðursoðnir ávextir.
Egg og sykur hrært létt og Ijóst, hveiti og lyftidufti blandað
saman við með steinselju. Deigið bakað í velsmurðri pappírs-
skúffu. Athugið að hafa deigið þykkt í brúnunum annars
harðna þær. — Kakan bökuð fallega ljósbrún nál. 10 mín.
við 200°. Hvolft á sykristráðan pappír. Mótið tekið af. Vilji
það ekki losna er það bleytt. Smyrjið strax volga aprikósu-
maukinu á og vefjið kökuna saman. Látið pappír utan um
hana og látið hana liggja á samskeytunum.— Þegar kakan
er köld er hún skorin í jafnar sneiðar, sem raðað er upp um
hliðarnar í skál eða móti. Það á ekki að hylja botninn.
Nú er fyllingin útbúin: Eggjarauðurnar þeyttar vel með
sykri hrærið sítrónusafa, berki og bræddu matarlíminu saman
við. Blandið stífþeyttum eggjahvítunum og % af þeytta rjóm-
anum saman við. Hellt í mótið, rétt um það bil, sem búðingur-
inn fer að hlaupa. Geymt á köldum stað, þar til búðingurinn
er fullhlaupinn. Losið varlega um brúnirnar og hvolfið ábæt-
inum ó fallegt fat. Sprautið afgangnum af þeytta rjómanum
ofan á og skreytið botninn með niðursoðnum ávöxtum.