Fálkinn - 14.09.1964, Blaðsíða 7
Góður strákur Jerry
Jerry kai’linn Lewis getur tekið upp á ýmsu. Dag nokkurn þegar verið
var að taka kvikmyndina „Who’s Minding the Store“, sagði Jill St. John
að henni fyndist fílsungar svo óskaplega fallegir. Og þegar hún kom til
vinnunnar daginn eftir beið einn eftir henni. Og sá sem staðið hafði
fyrir þessu var auðvitað Jerry Lewis. Það sem er þó hvað merkilegast
við þessa mynd er að á henni er Jerry eins og hann á að sér án þess að
vera með nokkrar glennur.
Ekki aldeilis
í rénun
Dóttir Ingrid Bergman
leikur í sinni fyrstu mynd
Pia, dóttir Ingrid Bergman, hefur nú leikið í
sinni fyrstu kvikmynd og það var enginn annar
en Vittorio de Sica sem stjórnaði þeirri mynd.
Pia heitir raunar Joan en hefur tekið upp þetta
leikkonunafn. Hún stundaði nám í Bandaríkjun-
um og var gift þar í eitt og hálft ár. Með Pia
leikur í myndinni Sophia Loren og sjáum við þær
hér í hlutverkum sínum.
Predikarinn og púkinn
Hve glöð er vor
æska.
Það er sagt svo já.
Þeir eru margir sem halda
því fram að bítlaæðið sé í
rénun og þótt það kunni eitt-
hvað að minka á næstunni þá
er það víst að bítlarnir frá
Liverpool eru á grænni grein
því þeir ku leika ágætlega í
kvikmynd. En hér birtum við mynd sem sýnir að vin-
sældir þeirra eru hvergi nærri að dala. Þessi unga stúlka
er í kjól með myndum af þeim á bakinu og svona kjól-
ar ku kosta um fimmtíu krónur danskar. Og við höfum
það eftir öruggum heimildum að svona kjólar finnist
einnig hér í Reykjavík.
DOIXIIXII
James Bond
Um daginn spurði
sonurinn: Er það satt
pabbi að Adam hafi
verið skapaður á
undan Evu svo hann
gæti sagt nokkur orð
áður en hún byrjaði að
þrasa?
Einhver mest seldi höfundur um
þessar mundir er tvímælalaust Ian
Fleming sem nýlega er látinn. Aðalpersónan
í bókum hans er njósnarinn James Bond
sem með yfirnátúrulegum hætti vinnur hverja þrautina á fætur annarri.
Nokkrar sagnanna um James Bond hafa verið kvikmyndaðar og bráðlega
mun ein þeirra sjást hér Dr. No.
Sean Connery heitir sá sem leikur Bond á hinu hvíta tjaldi og gerir
hann það með miklum glæsibrag. Þótt Fleming geti nú ekki lengur skrifað
þarf hann engu að kvíða því Alfred Hitchock hefur tekið hann upp á sína
arma og fengið honum hlutverk svo framtíðinni ætti að vera borgið.
En nógu gaman væri að sjá hetjurnar þrjár saman á kvikmynd James
Bond, Basil fursta og Percy hinn ósigrandi.
FALKINN
7