Fálkinn - 14.09.1964, Blaðsíða 8
LISTIN
GÖFGAR
Eins og allir vita eru aparnir, forfeður
okkar allra í þráðbeina karl- og kvenleggi,
hin greindustu dýr eins og afkomendur
þeirra, og kemur sú greind fram á ýmsum
sviðum, jafnt listum sem geimferðum.
Þeir bera gott skynbragð á tónlist og ku
þykja bítlamúsikin bráðskemmtileg og
jafnvel kunna að meta sinfóníur líka, ;
ef þær eru ekki því Iengri, en grípa hins-
vegar fyrir eyrun, ef elektrónísk músik
er framin. Og þá er alkunna, að þeir
eru afbragðs listmálarar og standa þar sízt
að baki ýmsum afkomendum sínum, hér-
lendum sem erlendum. Það hefur meira
að segja komið fyrir, að sprenglærðir
listfræðingar hafa talið verk beirra verk
afkomendanna og jafnvel reiknað út
skyldleika við ákveðnar stefnur, gott ef
ekld borið þeim stælingu á brýn í ofanálag.
Að maður minnist nú ekki á hvað
snobbunum fundust þær bráðsnjallar
myndirnar, sem sýndar voru eftir apann
um árið, þegar hann var titlaður prófessor,
svona í gamni.
Og hérna sjáum við einmitt einn forföður
okkar að störfum. Hann heitir Pierre
Brasseau, þekktur listmálari í heimalandi
sínu, Svíþjóð. Svo látum við myndirnar
tala (að m^stu).
8
---.t-X'-:- •'
Ugg-ugg-ugg-ijepp! segir Pierre Brasseau,
en það þýðir: Gúdda, þú er fimmtugasti
og fjórði blaðamaðurinn, sem biður
um viðtal þessa vikuna.
4Já — hvernig var það nú aftur, sem ég
ætlaði að bafa þetta. Ég vil helzt nota
rautt dálítið, því ég eyddi bláa litnum
í síðustu myndina mína.
FALKINN