Fálkinn


Fálkinn - 14.09.1964, Side 23

Fálkinn - 14.09.1964, Side 23
» sem stjórna umferðinni í loftinu, segja til um flughæðir véla, gefa héimild til lendingar og flugtaks. Þeir segja okkur að alltaf þegar hver flugvél fari í loftið gefi hún upp flugáætlun. Áætlaðan flug- tíma, eldsneytisbirgðir og þess háttar. Ef veðurskilyrðin eru þannig að verði að fljúga blind- flug þá er flugvélunum „staflað“ í ákveðnar hæðir og þeirri hæð fá þær ekki að breyta nema með samþykki flugumferðarstjórnar- innar. Flugumferðarsvæði flugstjórn- armiðstöðvarinnar í Reykjavík er m<?ginhluti norður Atlantshafsins Hin nýja vél Eyjaflugs. og allar þær vélar sem um það leggja leið sína verða að hafa samband við flugstjórnarmiðstöðina. Þegar t. d. flugvél fer frá New York og flýgur til Evrópu er öllum flugumferðar- stjprnum á leiðinni gefin flugáætlunin áður en flugvélin fer af st^ð. Öll viðskipti flugturnsins við flugvélar eru tekin upp á segulbönd og þau segulbönd eru í gangi allan sólarhringinn. Flugstjórnarmaður hefur líka bent símasamband við næstu urpferðarstöðvar svo sem Gander og Prestwick. Okkar var sagt að síminn í Gander væri 1959. f herbergi inn af salnum eru fjarritararnir og þeirra gætir einn maður. Þessir fjarritarar eru til ýmsra aðila. Til veður- stofunnar, í Gufunes, suður á Keflavíkurflugvöll og til flug- umsjónar fflugfélaganna. f gegnum þá fara mikil viðskipti fram. _ Þessi nýlegu húsakynni eru mjög vistleg. Allt er hreint og fágað og aðbúnaður starfsmanna virðist vera mjög góður. Á Þeir sögðu okkur að það væri mikill munur að vinna í þessum húsakynnum eða hinum gömlu í gamla turninum. Við fylgdumst aðeins með viðskiptunum. Um morguninn ^klukkan rúmlega sjö hafði rússnesk flugvél af gerðinni TU- 114 farið frá Havana og var nú um það bil að koma inn á umferðarsvæði Reykjavíkur. Hún ætlaði að koma til Moskvu klukkan rúmlega eitt eftir miðnætti. Yfir Löngumýri í Skaga- firði var þota af gerðinni DC-8 í 35.000 feta hæð og bað um heimild til að hækka um 2000 fet vegna ókyrrleika í loftinu. Austur á Egilsstöðum var flugvél frá Flugfélaginu að fara í loftið og bað um blindflugsheimild því þungbúið var yfir hálendinu. Upp í Borgarfirði var flugvél að tilkynna breytta stefnu. Sverrir Ágústsson varðstjóri sem var á vakt þegar okkur bar að garði fór með okkur upp á efstu hæðina. Þar voru tveir menn að störfum og stjórnuðu umferðinni í nágrenni vallarins. Umferðin var mikil þennan dag því flugveður var gott og margir skruppu á litlu vélunum í loftið, bæði til að halda áfram námi og svo sér til skemmtunar. Það er mikil umferð um svæði Reykjavíkur árlega. Og það er mikið eftirlit sem inna þarf af höndum til að ganga úr skugga um að allt sé í lagi. Tæki eru yfirfarin og reynd á ákveðnu millibili og þeir menn sem þarna starfc. ganga reglu- lega undir hæfnispróf. Þarna verður allt að vera í fullkomnu lagi og ekkert má fara úr skorðum. Framh. á bls. 39 Þessir voru í stoðugu sambandi við flugvélar. Talið frá vinstri. Guðjón Ingvarsson, Ingvar Valdemarsson, Hjálmar Arnórsson og Jens A. Guðmundsson.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.