Fálkinn - 29.09.1964, Blaðsíða 30
Æ uðvitað ailtaf
PE31
pe
Er geysisterkt
„Long-play“
segulband.
Sérstaklega hent-
ugt fyrir t. d.
skóla, verzlanir
og hótel.
PE 41
PE 41
Er „Double-play"
segulband fyrir
öll 2ja og 4ra
rása segulbands-
PE 65
PE 65
Triple Becord. Er
þunnt, en sterkt.
Er þrefalt lengra
en venjuleg segui-
tæld.
bönd.
Heildsölubirgðir:
STEFÁM rHORARENSEN hJ.
Laugaveg 16
HVAÐ GERIST j NÆSTU VIKU?
Hrútsmerkiö (21. marz—20. aprílj.
Þér ættuð að fara gætilega í þessari viku og
leggja ekki í óþarfa hættu því afstöðurnar eru
ekki sem heppilegastar fyrir yður um þessar
mundir. Þetta veruður sennilega róleg vika.
NautsmerlciÖ (21. avríl—21. maí).
Þegar líður á þessa viku er allt útlit fyrir að
þér þurfið að fara gætilega í viðkvæmu máli, sem
ekki er auðvelt úrlausnar. Þér ættuð að hafast
sem minnst að en sjá hvað situr.
TviburamerkiÖ (22. maí—21. júní).
Þessi vika verður á margan hátt skemmtileg
fyrir yður. Þér munuð að líkindum lenda í
skemmtilegum ævintýrum eftir því sem þau ger-
ast nú á dögum og þér verðið sennilega sáttir
við tilveruna.
KrabbamerkiÖ (22. júni—22. júli).
Þessi vika verður ekki með neinum sérstökum
glæsibrag fyrir yður en hún verður heldur ekki
neitt sérlega leiðinleg. Þér ættuð að fara gæti-
lega í fjármálum og eyða ekki að óþörfu.
LjónsmerkiÖ (23. júlí—23. ápúst).
Þessi vika sem nú fer í hönd verður yður hag-
stæð með ýmsu móti. Þér munuð að líkindum
verða fyrir óvæntu happi á fjármálasviðinu og
leiðindamál á vinnustað verður úr sögunni.
Jómfrúarmerkiö (2U. ár/úst—23. sept.).
Nú er um að gera fyrir yður að notfæra yður
það tækifæri, sem yður kann að bjóðast i þessari
viku. Þér skuluð samt minnast þess að flas er
ekki til fagnaðar heldur fara gætilega.
Vociarskálamerkiö (2h. sept.—23. okt.).
Það kann svo að fara að þér verðið fyrir nokkr-
um vonbrigðum í þessari viku en við þvi verður
lítið að gera fyrir yður. Þér verðið að sætta
yður við þessi vonbrigði en hugsa sem svo að
komi timar og komi ráð.
Sporödrekamerkiö (2h. okt.—22. nóv.).
Fyrri hluti þessarar viku verður skemmtilegur
fyrir þá. sem fæddir eru í október. Fyrir aðra
sem fæddir eru i þessu merki er hætt við að vikan
verði heldur tilbreytingalítil.
BocjamannsmerkiÖ (23. nóv.—21. des.).
Þér ættuð ekki að blanda yður i deilumál, sem
kann að koma upp á vinnustað. Þér verðið að
gæta þess vel að halda vður fvrir utan þessar
deilur þvi annars kann illa að fara.
Steinc/eitarmerkiö (22. des.—20. ianúar).
Nú fara góðir tímar fyrir yður í hönd og þér
skuluð gæta þess vel að notfæra yður þá eftir
Því sem frekast er kostur. Fyrri hluti vikunnar
verður skemmtilegur.
VatnsberamerkiÖ (21. janúar—18. febrúar).
Oft er svo að betra er að hafast eitthvað að en
að sitja kyrr þótt litið kunni að miða. Þér ættuð
að sinna áhugamálunum meira en þér hafið gert
enda þótt Þér kunnið að hafa áhuga til þess.
FiskamerkiÖ (19. febrúai—20. marz).
Þessi vika verður að mörgu leyti skemmtileg
fvrir yður. Þér verðið talsvert upptekinn þegar
l'ður á vikuna og persóna sem þér hafið mikinn
áhuga fyrir mun gefa yður meiri gaum en undan-
farið.
FALKINN