Fálkinn - 12.10.1964, Blaðsíða 5
Sumir eru mjög liprir og vilja
allt fyrir mann gera en aðrir
eru þannig að við þá er ekk-
ert hægt að tjónka. Þeir eru
bæði ókurteisir og sína fyllstu
óliðlegheit að ekki sé meira
sagt. Mér finnst að þegar menn
vinna hjá opinberum fyrirtækj-
um þá eigi þeir að vera kurt-
eisir og veita mönnum alla þá
fyrirgreiðslu sem þeir mega.
Þetta eru menn í opinberri
þjónustu og þeim ber að vera
kurteisir í starfi. Þetta lítur
svolítið öðruvísi út þegar menn
vinna hjá einkafyrirtækjum.
L. P.
Svar:
Það er nú svo að menn eru
ceði misjafnir hvort peir vinna
hjá opinberum fyrirtækjum eða
ekki. Og það fer eftir gerð manna
hvernig þeir eru í afgreiðslu. Og
málið lítur ekki öðruvísi út þótt
menn vinni hjá einkafyrirtcekjum
því þeim ber að kappkosta góða
þjónustu.
Erlendar bækur
Pósthólf Fálkans!
Ég veit ekki hvort allir eru
mér sammála en mér þykir
úrval erlendra bóka í bóka-
verzlununum hér heldur lítið.
Þetta á sérstaklega um skáld-
sögur og það furðulega er að
skáldsögur af Norðurlöndun-
um fást hér naumast og alls
ekki eftir unga höfunda. Þó
finnst mér að það ætti að vera
kappsmál bókaverzlana að hafa
sem mest úrval á boðstólum.
T. R.
Svar:
Segja má að úrval erlendra
' bóka í bókaverzlunum hér sé yfir-
• leitt gott en að sjálfsögðu fer það
nokkuð eftir hvaða bókaverzlun
á í hlut. Skáldsögur hafa á seinni
árum selzt mjög lítið hér að
minnsta kosti innlendar og það er
eðlilegt að bólcaverzlanir fari var-
. lega í lcaup á erlendum bókum
, eftir óþekkta liöfunda. En ef það
er einhver sérstök bók sem þú
, hefur áhuga fyrir, panta bóka-
, verzlanir hana fyrir þig. Og l
bókaverzlunum getur þú fengið
lista yfir nýútkomnar bækur er-
lendis.
Almcnningssalerni.
Háttvirta Pósthólf!
Það er furðulegt hvað al-
menningssalerni eru á fáum
stöðum hér í borginni. Þó
skyldi maður ætla að mönnum
gæti orðið brátt á fleiri stöðum
en í Bankastræti. Að vísu get-
ur maður brugðið sér inn á
veitingahús og notað salerni
þar en engu að síður er heldur
leiðinlegt ástand í þessum mál-
um hér — eins og raunar fleir-
um.
Þið þurfið ekki að birta þetta
bréf frekar en þið viljið, það
má alveg eins fara í bréfa-
körfuna hjá ykkur.
Með beztu kveðjum.
Steini.
Svar:
Þetta er alveg rétt hjá þér
Steini minn, það mœtti gjarna
fjölga hér i borginni almennings-
sálernum. En svo er önnur hlið
á þessu máli og hún kannski ekki
lítil og það er umgengni manna
á salernum. Sú umgengnismenn-
ing er heldur á lágu stigi hér
— eins og raunar margt annað..
Um Vesturbæinga,
utanbæjarmenn og Þingeyinga.
Það er reglulega gaman að
lesa um þetta skítkast og sjálfs-
hól hjá Vesturbæingum og
sveitamönnum. Fleiri svona rit-
snillinga fram á völlinn.
Verst að Þingeyingar skuli
ekki láta í sér heyra, því þeir
slaga hátt upp í Vesturbæinga.
Austurbæingur.
Svar:
Það mun skoðun Þingeyinga að
þeir „slagi" ekki upp i Vestur-
bæinga lieldur standi þeim tölu-
vert framar. Það er ekki sjálfs-
hól frd þeirra sjónarhóli héldwr
augljóst mat á staðreyndum.
Aðalniíljtjandi
pólskrar vefnaðarvöru til fatnaðar
Sienkiewicza %, Lódz Pólland
Sími: 285-33 — Símnefni: CONFEXIM, Lódz
,C0NFEXIM'
HEFUR Á BQÐSTÓLUM:
★ Léttan sem þykkan íatnað
fyrir konur, karla og
börn.
★ Prjónavörur úr ull, bóm-
ull, silki og gerfiþráðum.
★ Sokka, allar gerðir.
★ Bómullar- og ullarábreið-
ur.
★ Handklæði „frotte“.
★ Rúmfatnað. ^
★ Hatta fyrir konur og
karla.
★ Fiskinet af öllum gerðum.
★ Gólfteppi.
★ Gluggatjöld.
Gæði þessara vara byggist á löngu starfi þúsunaa pjálf-
aðra sérfræðinga og að sjálfsögðu fullkomnum nýtízku
vélakosti.
Vér bjóðum viðskiptavinum vorum hina hagkvæmustu
sölu- og afgreiðsluskilmála.
Sundurliðaðar, greinilegar upplýsingar geta menn fengið
hjá umboðsmönnum vorum:
ÍSLENZK ERIÆNDA
VERZLII!\AKFGLA«I» ILF.
Tjarnargötu 18, Reykjavík eða á skrifstofu verzlunar-
fulltrúa Póllands Grenimel 7, Reykjavík.
falm nn
5