Fálkinn - 12.10.1964, Blaðsíða 27
Kvenþjóðin
Skólapeysa handa Ola
Framhald af bls. 40.
(1 sl., 1 br.). Fellt af slétt og
brugðið.
Frágangur: Pressið allt nema
brugðningar lauslega á röng-
unni. Merkið fyrir handveg á
bolnum tilsvarandi ermavídd.
Saumið tvisvar í vél kringum
handveginn, klippið milli vél-
saumsins. Beygið innafbrotið
efst á bolnum inn að röngu,
brjótið um brugðnu umf., tyll-
ið. á röngunni. Saumið axla-
saumana saman á réttunni með
því að taka í brugðnu umf.
Saumið kragann saman nál. 3
cm á skammhliðina og saum-
ið hann við hálsmálið. Saumið
ermarnar í. Tyllið innafbrotun-
um niður. Pressið alla sauma.
Sígild telpupeysa
Framhald af bis. 40.
Ermar: Fitjið upp 32 (32)
34 (36) 36 1. á prj. nr. 4 og
prjónið 6 cm brugðningu. Sett
á prj. nr. 5 og prjónað slétt
aukið jafnt út í 1. umf. svo
38 (38) 40 (40) 42 1. séu á.
Aukið út um 1 1. hvorum meðin
í 6. hverri umf., þar til 52 (56)
60 (62) 64 1. eru á. Þegar
síddin er 26 (30) 34 (38) 41
cm er 1 1. tekin úr hvorum
megin innan við 3 kantlykkj-
urnar. Prjónið því næst: ★
1 umf. með úrtöku, 1 umf. án,
1 umf. með, 2 umf án úrtöku.
Endurtekið frá ★ bar til 42
(42) 42 (48) 48 1. eru eftir.
Þá er tekið út ofan á erminni
miðri þannig: Prjónið að 4 1.
í miðju 2 sl. saman, 1 sl. laust
fram af, 1 sl., dragið lausu 1.
yfir. Umf. prjónuð út. Endur-
takið þessar úrtökur í 6. hverri
umf. og í hliðunum eins og
fyrr segir. Þegar 8 1. eru eftir
eru þær felldar af í 2 umf.
Byrjið framan frá.
Kragi: Fitjið upp 52 .(52) 54
(56) 58 1. á prj. nr. 5 og prjónið
slétt. Eftir 4 umf. er aukið út
um 8 1.., jafnt á prjóninum og
þegar kraginn er 6 (7) 7 (8)
8 cm er 1 1. tekin úr hvorum
megin í 3. hverri umf. 3svar.
Bandið slitið frá. Byrjið nú þar
sem fitjað er upp og prjóna
upp frá réttunni á annarri
skammhliðinni 12 (14) 14 (16)
16 1. á prj. nr. 4, prjónið 6 1.
upp við hornið, haldið áfram
og prjónið 1. á langhlið kragans,
prjónið aftur upp 6 1. við hitt
hornið og síðan jafnmargar 1.
á skammhliðinni og þeirri
fyrri. Prjónið 5 umf. brugðn-
ing. Fellt af.
Frágangur: Leggið votan
klút yfir öll stykkin og látið
það þorna. Saumið peysuna
saman og festið kragann við.
Varpið kringum hnappagötin
og festið hnappana í.
Ei heldur máninn ...
Framhald af bls. 9.
svikinn af því þetta stutta sam-
tal hafði verið svo gleðivana.
Var Rusty vingjarnlegur við
hana? Rusty sem áður en Flóra
yfirgaf hann hafði verið svo
léttur í lund, hafði herzt með
árunum. Hann varð stirðlynd-
ur ungur maður, lukkuriddari
sem karlmenn dáðust að og
konum fannst aðlaðandi og til-
búinn að njóta þeirra nautna
sem á vegi hans urðu og
gleyma síðan. Aðeins í viður-
vist barna eða særðra dýra
komst viðkvæmni að í svip
hans.
— Ég þekki hana nóg til að
giftast henni.
— Þetta er óráð.
— Því það? Forfeður okkar
giftu sig konum sem þeir nóföu
aldrei séð. Heilu skipsfarmar
af brúðum komu tii nýlendn-
anna og þeir freistuðu gæfunn-
ar. Svona er hjónabandið, þú
varst óheppinn . . .
— Blandaðu mér ekki i mál-
ið! Minnstu ekki á Floru!
Svo djúpt hafði skilnaður-
inn sært og eitrað allan lifs-
skilning Rustys, trú hans á ást-
ina og sjálfan sig. Andréw
hafði ekki sagt meira,
En Andrew átti ekki annarra
kosta vöi en biðja Rusty að
taka á móti Alice í Duikers
Drift og fylgja henni gegnum
hið friðaða svæði til Búða III.
Rusty hafði fallist á það gegn
vilja sínum. Andrew hafði
heyrt fjandsamlegan raddblæ
hans í talstöðinni en ekki tekið
neitt mark á því. En það hafði
styrkt hans eigin hugsun og
það jókst með hverjum degi
sem leið. Nú var Alice þó á leið
hingað með Rusty. Hann átti
engan annan að hér i þessu
villta landi og ef hann sveik
hana þá var hún yfirgefin.
Andrew var ákveðinn i að
svíkja hana ekki.
í Búðum I vermdi Alice
hendurnar yfir eldinum. Þó
Framhald á bls. 35.
FÁLNi ininI