Fálkinn - 12.10.1964, Qupperneq 30
Æuðvitað alltaf
PE 31
PE 31
Er geysisterkt
„Eong-piay“
segnlband.
Sérstaklega hent-
ugt fyrir t. d.
skóla, verzlanir
og hótel.
WJfgRmm
PE 41
PE 41
Er „Doubie-play"
segulband fyrir
öll 2ja og 4ra
rása segulbands-
tæki.
PE 65
PE 65
Triple Record. Er
þunnt, en sterkt.
Er þrefalt lengra
en venjuleg segul-
bönd.
Heildsölubirgðir:
STEFÁIM THORAREIMSEN h.f.
Laugaveg 16
HVAÐ GERIST í NÆSTU VIKU ?
HrútsmerkiÖ (21. marz—20. avril).
Nú eru mun heppilegri afstöður en í vikunni
sem leið og þér ættuð að notfæra yður þessar
breyttu afstöður til að koma málum yðar í lag.
Þetta á sérstaklega við um fjármálin.
NautsmerkiÖ (21. avríl—21. maV.
Þau vandamál, sem þér þurftuð við að stríða í
síðustu viku verða líklega úr sögunni í þessari
viku en ef þau skjóta upp kollinum verða þau
ekki svo mjög erfið viðureignar.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní).
Það er hætt við að þessi vika verði ekki eins
skemmtileg og sú sem leið. Engu að síður verður
þetta á ýmsan hátt viðburðarrík vika og á það
sérstaklega við um vinnustað.
Krabbamerkiö (22. júní—22. júlí).
Þessi vika, sem nú fer í hönd verður mun
skemmtilegri en sú sem var að líða. Afstöðurn-
ar hafa breytzt mjög fyrir yður og á þetta sér-
staklega við rómaritíkina.
Ljónsmerlcið (23. júli—23. ápúst).
Enn sem. fyrr verður þetta yður hagfeld vika
á ýmsan hátt. Þér munuð að líkindum kynnast
fólki, sem á eftir að hafa mikil áhrif á yður til
hins betra. Fimmtudagur verður góður.
Jómfrúarmerkiö (2i. áaúst—23. sept.).
Ef þér haldið rétt á spilunum í þessari viku
kann svo að fara að yður bjóðist það tækifæri,
sem þér hafið lerigi beðið eftir. Þetta á einkum
við um fyrri hluta vikunnar,
VociarskálamerkiÖ (2i. sevt.—23. okt.).
Þótt þessi vika verði ekki með neinum sérstok-
um glæsibrag verður hún þó mun skemmtilegri
en sú sem var að líða. Þér ættuð að fara gætilega
í fjármálunum og eyða ekki um efni fram.
Sporödrekamerkiö (2i. okt.—22. nóv.).
Nú er allt útlit fyrir að yður muni takast að
framkvæma það sem þér hafið lengi haft hug
á að framkvæma. Ef þér farið rétt að og notið
þau tækifæri sem gefast mun þetta takast.
Bonamannsmerkiö (23. nóv.—21. des.).
Þessi vika verður sennilega ekki með neinum
glæsibrag hjá yður en hún verður heldur ekki
neitt sérlega leiðinleg. Það er hætt við vonbrigð-
um í seinni hluta vikunnar.
Steinneitarmerkiö (22. des.—20. janúar).
Enn sem fyrr eru afstöðurnar yður hagstæðar
á margan hátt og þér ættuð að notfæra yður
það. Fyrri hluti vikunnar kann að verða nokkuð
annasamur en við þvi er ekkert að gera nema
vinna vel.
Vatnsberamerkiö (21. janúar—18. febrúar).
Ef þér hafið ekki spilað rétt út I vikunni sem
leið mun það koma niður á yður i þeSsari viku
og kann að valda yður töluverðum erfiðleikum.
Farið því gætilega að öllu.
FiskamerkiÖ (19. febrúar—20. marz).
Þessi vika verður sem hin fyrri skemmtileg
og þægileg og ekki er ólíklegt að þér verðið fyrir
óvæntu happi þegar líða tekur á vikuna. Annars
verður fyrri hlutinn betri.
30
FALKINN