Fálkinn


Fálkinn - 15.02.1965, Page 32

Fálkinn - 15.02.1965, Page 32
I Kortið, sem Landmæling- ar íslands hafa gert. Krossinn sýnir staðinn, þar sem Björn Pálsson lenti Lóunni. í hægra horninu sést afstaða Surtseyjar miðað við Vestmannaeyjar og stærðarmunur. 2 Hér er flugbrautin, gjörð af náttúrunnar höndum. Lendingarskilyrði eru mun betri þegar snjóföl er, því ójöfnurnar skera sig frekar úr á fann- breiðunnL 3 Hraunið rennur hér í sjó fram. Eyjan breikkar hægt, því mikið dýpi er allt uin kring. Kortið af Surtsey sem birt er hér á síðunni, er géfið út af Landmælingum íslands og teiknað eftir flugmyndum frá 23. október 1964. Kortinu fylgja skýringar á íslenzku og ensku eftir Guðmund Kjartansson, jarðfræðing. Við tökum okkur það bessaleyfi að endurprenta þennan texta: „Hinn 14. nóvember 1963 hófst eldgos upp úr sjó um 5 km VSV frá Geirfuglaskeri, sem þá var enn syðst Vestmanna- eyja og þar með syðsti hjari ísjands. Þar hafði verið um 130 m dýpi, en þegar daginn eftir bryddi á gígbörmum ofan sjávar, og hefur þar síðan verið ey, hin syðsta, sem telst til íslands. Þcssi nýja eldstöð hefur hlotið nafnið Surtur (eftir jötni þeim, er einna óvægilegast mun herja jörðina í ragna- rökum) og eyin Surtsey. — Allan veturinn fram í apríl- byrjun hélzt þarna sprengigos með svipuðum hætti og litlum hvíldum. Þá hlóðust upp allar mestu hæðir Surtseyjar, ein- göngu úr s'mdurlausum og mest smámuldum gosefnum. Hinn 4. apríl breyttist gosið í hraungos. Síðan hefur gígurinn oftast verið tjörn úr glóandi hraunkviku, sem þeytir upp björtum eldstrókum, en þaðan flæðir kvikan, ýmist í opnum rásum eða undir storknu hraunþaki, breiðist út, storknar í blágrýti og færir út ströndina. mest til suðurs. — Flatarmál Surts- eyjar var orðið 2.4 ferkílómetrar 23. október. Fullur helming- ur þess er hraun, hitt að mestu gosmöl, sem á eftir að harðna í móberg, en á köflum strandlengis lág ræma af fjöru-r sandi. Mesta hæð eyjarínnar mældist (1. ág.) 173 m y. s. —-r Þegar þetta er ritað. 13. desember, er enn ekkert lát á gosinu." Fálkinn ræddi við Björn Pálsson, flugmann, og innti hanrt eftir lendingarskilyrðum í Surtsey. Björn sagði, að það væri vel hægt að lenda á eyjunni, en það yrði áð viðhafa 1 1 .. —.... 1 ...................... 111 ;—■■■■ • •••••••••••••••••••••• Framh. á bls. 40. 32 FALK.I nn

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.