Fálkinn


Fálkinn - 06.09.1965, Side 25

Fálkinn - 06.09.1965, Side 25
far góðæris og velmegunar. Menn brosa gjarna í kampinn og gera góðlátlegt grín að sér* vitringum sem ympra á hlut- um einsog þjóðarmetnaði, sjálf- stæðisvitund og íslenzkri menn- ingarviðleitni. Slíkt tal þykir mörgum harla gamaldags á miðri tuttugustu öld! Til þess er hörmulegt að vita, að þeir sömu stjórnmálaleið- togar, sem í skálaræðum tala um nauðsynina á látlausri sjálf- stæðisbaráttu, skuli hafa orðið til að vega að rótum íslenzks sjálfstæðis með því að veita vinveittu en voldugu stórveldi, sem hefur fullan hug á að vinna hugi okkar og hjörtu, einka- rétt til að reka hérlendis áhrifa- mesta áróðurstæki sem sögur fara af, þannig að það nær' til meirihluta landsmanna. Mönn- um sem slíkt gera kinnroða- laust, jafnvel þó þeir afsaki sig með skarhmsýni eftirá, er naumast treystandi til að halda vakandi þeirri sjálfstæðisvið- leitni sem ein getur komið í veg fyrir að þessi litla og af- skekkta þjóð drukkni í hinu engil-saxneska úthafi sem um- lykur hana. Að undanförnu hafa verið á döfinni afdrifaríkar ákvarðan- ir í sambandi við stórmál sem vissulega varða sjálfstæði og þjóðerni íslendinga. Má þar nefna hugsanlega inngöngu ís- lands í Efnahagsbandalag Evr- ópu (þó málið hafi verið salt- að í bili) og heimild til handa erlendum auðhringum til að hefja stóriðju hér. Ekki er kyn þó mörgum þjóðhollum íslend- ingi hrjósi hugur við þeirri til- hugsun, að gengið verði frá þessum málum af sama and- varaleysi, skammsýni og handa- hófi einsog sjónvarpsmálinu sæla. Vonandi verður gæfuleysi íslendinga ekki slíkt, að það eigi eftir að sannast. íslenzka þjóðin verður nú að horfast í augu við þann beiska sannleik, að stjórnmálaleiðtog- ar hennar hafa afsalað sér for- ustuhlutverkinu í hinni nýju og mjög tvísýnu sjálfstæðis- baráttu, og nú kemur til kasta landsmanna sjálfra að hrista af sér værðina og peningaslenið og skera upp herör gegn hvers- konar undanlátssemi og af- slætti. Sjálfstæðið var dýru verði keypt, þó núlifandi kyn- slóðir virðist hafa gleymt því, að það verður ekki varðveitt nema með svita og tárum. lÁÍKIW flýí; ii ii LT • Farþegmn Framh. af bls. 21. „1 Guðs bænum, hættið að baula eins og móðurlaus kálf- ur. Svona, leyfið mér að sjá.“ Tracy lyfti andlitinu við henni. Hægra auga hans var á litinn eins og nýslátrað nýra. „Ég ætla að snúa augnalok- inu við,“ sagði hún, „sýnið nú hugrekki.“ „Haldið þér, að hægt verði að bjarga auganu, læknir?“ spurði Tracy. „Þegið þér.“ Hún fletti augnalokinu upp og þerraði það með vasaklútnum. „Þarna náði ég því. Ofurlítil arða. Getur ómögulega hafa verið eins sárt og ég var að vona.“ Tracy deplaði auganu og þurrkaði af sér tárin. „O’Brien, ég óska eftir að láta í Ijósi við yður gætilega aðdáun mína. Þér eruð falleg, dugandi, — nefs- og augnayndi." „Gleymið ekki að þér talið við konu með hjarta kyrki- slöngunnar." „Kyrkislöngunnar.“ „Ó.“ Hún fór að brosa og Tracy fannst eins og sólin hefði komið upp. Henni varð litið á minnisbókina. „Ég sé að yður þykir gaman að reikningi.“ „Ég er nokkurs konar eðlis- fræðingur.“ „Líklega eruð þér samt at- vinnulaus,“ sagði Betty og roðn- aði við. „Ég á við, að þér lítið út fyrir að vera það, ef ég má gerast svo djörf.“ Tracy viðurkenndi, að hann ynni ekki fyrir "heinn. „Það er sannarlega hart, herra Brennan. Fyrst rúir kon- an yður inn að skyrtunni, og nú hafið þér enga vinnu.“ Sam- úðin lifnaði í andlitssvip henn- ar. „Eigið þér einhvern að i Los Angeles, sem getur hjálpað yður, þangað til þér hafið kom- ið undir yður fótunum á ný?“ Hann kvað svo vera. „Það er prýðilegt. Það væsir þá ekki um yður. Þegar þér hafið fengið vinnu aftur og keypt yður eitthvað af nýjum fötum og sokkum, þá losnið þér við geðvonzkuna og kven- hatrið. Þér eruð bráðgreindur, herra Brennan, en þessa stund- ina þjáist þér af hugarvillu og víli.“ Með þessari skarplegu athugasemd yfirgaf hún hann til þess að búa sig undir lend- ingu á Denver-fiugvelii, sem Framh. á bls. 32 HEILDSOLUBIRGÐIR: KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ H.F. SIMI 24120 mSBr CONSUL CORTIXA bílaleíga magnnsar skipliolti 21 síinar: 21190-21185 Uaukur ýuimuH<(jMH HEIMASÍMI 21037 FÁLKINN 25

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.