Fálkinn - 06.09.1965, Qupperneq 35
að hún væri eftir yður, O’Brien,
elskan.“ Hann kreisti hana en
viðbrögð hennar voru alls
engin.
Við svaladyrnar stanzaði
O’Brien og þurrkaði varamark
Marianne af andliti Tracy. „Það
mun verða mér mikill léttir,
þegar ég get skilað yður til
móður yðar,“ sagði hún. „Þegar
ég er með yður finnst mér ég
vera eins og barnfóstra.“
; Tracy var að athuga útlit
barnfóstrunnar frá sér numinn
og með endurnýjuðum áhuga.
Öður rauða hársins ómaði í
taugalögn hans. Hún var hríf-
kndi fögur. Hann sagði henni
það.
„Þér eruð indæll, herra
prennan, ég vissi ekki.. .“
„Ég má til að biðja þig að
fylgja mér út á svalirnar,“
sagði Tracy í einlægni. „Útsýn-
ið er alveg morð.“
„Ég veit ekki, herra Bren ..“
„Kallaðu mig Tracy.“
Hin fallegu, grænu augu
O’Brien urðu tárvot af við-
kvæmni. Hún horfði í andlit
honum og las tilfinningar hans.
„Undir allri kaldhæðninni,
herra Brennan, eruð þér góð-
ur, indæll og meinlaus maður.
Þér eruð horaður og hröx-legur
og gjaldþrota og klæðið yður
eins og landshornaflakkari en
fjárinn hafi það, þér eruð samt
töfrandi strákur. Þér vekið í
mér ýmislegt." Hún dró djúpt
andann. „Tracy, bjóddu mér
aftur út á svalirnar.“
Djúpt snortinn leiddi Tracy
hana með sér framhjá starf-
sömu fólkinu á svölunum unz
þau fundu auðan blett nálægt
handriðinu. Þar tók hann hana
orðalaust í faðm sér og kyssti
hana með lokuðum augum af
innilegri ákefð. Þegar hann
rétti úr sér, hvildi O’Brien
rauðhært höfuðið við brjóst
hans.
„Jeremías minn! Þetta verð-
ur að taka enda,“ sagði hún.
„Er það ekki?“ Það tók ekki
enda.
„Það batnar með æfingunni,
finnst þér ekki?“ sagði hún.
„Hamingjan góða, Tracy, ég er
með Ai’nie. Hvað heldui'ðu að
hann hugsi? Þetta er ekki
fallegt,.. . gagnvart Arnie, á
ég við.“
„Til helvítis með Arnie,“
sagði Tracy, „nú byrjum við
aftur.“
„Einhver nefndi mig á nafn,“
sagði Arnie við hlið þeirra.
„Einhver sagði: „Til helvítis
með Arnie.“ Varst það þú,
betlari? Humm-m-m"
Betty varð fyrri til að átta
sig og gekk á milli þeirra.
„Þetta var ekki sök herra
Framh. á bls. 37.
Einsmannssvefnsófi, stœrS 145 cm lengist
upp í 185 cm meS púðunum, sœngurfata-
geymsla undir, stólar fóst í stíl viS sófann.
SEDRUS sL
íitttjltjsir:
SEDRUS sfi.
húsgagnaverzlun
Hverfisgötu 50 — Sími 18830.
i stjörnurnar
Kæri Astró,
Ég hef skrifað þér áður en ekki fengið svar, og í þetta
sinn vona ég að hcppnin verði nieð.
Ég er fædd 1943 og er gift og á eitt barn. Hjónabandið
er gott, en það vill oft brenna við að við viljum bæði hafa
síðasta orðið.
Mig langar til að vita það helzta, sem framtíðin ber í skauti
sér, og einnig hvaða störf henta mér bezt. Ég er mjög skap-
bráð og er oft ákaflcga afbrýðisöm án minnsta tilefnis.
Ég vonast eftir svari sem fyrst. Með fyrirfram þökk.
Salóme.
Svar til Salóme:
Fyrir alla muni reyndu að
halda aftur af afbrýðisemi
þinni. Einn versti galli þess
merkis, sem þú ert fædd í er
einmitt afbrýðisemi. Þessi þátt-
ur er mjög rikur í eðli þínu
og þarf því átak til að komast
fyrir það, en það er þess virði
að reyna því afbrýðisemi hef-
ur eitrað líf margra og eyði-
lagt mörg hjónabönd. Ég er
þó ekki að spá illa fyrir þínu
hjónabandi heldur benda þér
á hversu mikilvægt það er að
reyna að draga úr þessu. Mað-
urinn þinn metur heimilið og
fjölskyldulífið of mikils til þess
að hann vilji leggja út í ævin-
týri sem mundu kollvarpa
þessu. Hans eðli er þó þannig
að honum geðjast vel af að
konur renni til hans hýru auga.
Karlmenn fæddir í Hrútsmerk-
inu eru oft ákaflega barnalegir
og hégómagjarnir í ástamálun-
um og þá um að gera að reyna
að taka þá þannig. Þó þú sért
skapbráð og tilfinningarík get-
ur þú þó verið nokkuð kulda-
leg stundum. Þú ert ekki það,
sem kallað er heimilismann-
eskja svo það væri alveg eins
heppilegt fyrir þig að vinna
utan heimilis að minnsta kosti
að einhverju leyti heldur en
að vera allan daginn heima og
ergja þig yfir störfum sem þér
falla ekki. Þau störf, sem væru
einna heppilegust fyrir þig
eru ýmis skrifstofustörf, einnig
störf í sambandi við klæða-
gerð og tízkuverzlun. Þar sem
Venus er í tíunda húsi bendir
það til að þér muni vegna vel
í starfi. Störf í sambandi við
lækningar og hjúkrun einhvers
konar ættu einnig vel við þig.
Þú ættir að láta eiginmanninn
hafa með fjármálin að gera og
reyna að komast hjá árekstr-
um varðandi þau.
Þó þú sért fædd í frjósömu
merki muntu eignast fremur
fá börn. Eftir um það bil þrjú
ár verður mjög gott tímabil
hjá manninum þínum og þá
auðvitað hjá þér um leið. Þessi
áhrif standa aðallega í þrjú
til fjögur ár og munu líklega
aðallega koma fjármálunum
við. Þér mundi vegna vel er-
lendis og heppilegur tími til
utanlandsferða er frá miðju ári
1966 — seinni hluta 1967. Þessi
tími passar þó aðeins ef þú
hefur gefið mér upp réttan fæð-
ingartíma, en það getur skakk-
að nokkru ef svo er ekki.
Leyfðu manninum að hafa
síðasta orðið eða að minnsta
kosti láta hann halda að hann
hafi það.
FALK.INN
35