Fálkinn - 04.10.1965, Qupperneq 27
i
kgasta allra verka, að taka
mannslíf.
Vald. Hann öðlaðist það með
ofbeldi, og hann elskaði það.
Hann elskaði það á sama hátt
cg aðrir elska stúlkur eða vélar
eða íþróttir. Gegnum ofbeldið
kynntist Chuck í fyrsta sinn
sinu ófrjóa lífi, sköpunarmætt-
inum.
Vitfirring?
Það sagði verjandinn. Ákær-
andinn var á öðru máli. Ákær-
andinn staðhæfði, að Chuck hefði
einkenni sálsýki, en væri ekki
geðveikur. Hann kunni vel að
greina rétt frá röngu. Hann
kærði sig bara ekki um það.
Og gegnum öll réttarhöldin
jVar Chuck kaldur og óhræran-
legur eins og ísjaki. Með Finelli-
morðið komust þeir ekki lengra
en að annarri gráðu, svo hann
þurfti ekki að óttast dauðadóm.
Hann fékkst ekki til að með-
ganga neitt. Hann hæddist kurt-
eislega að allri vitnaleiðslunni
og sakaði okkur öll um lygi.
Hann virtist algjörlega öruggur
í þeirri trú, að hann myndí
sleppa vegna þess að hann var
Chuck Landry og hvað hann
snerti, kæmi ekkert annað til
mála.
1 vissum skilningi slapp hann
vel. Hann hafði mjög færa lög-
fræðinga. Hann fékk fimm til
tuttugu ára fangelsisdóm en það
táknar, að hann verður kominn
út aftur eftir fimm ár, jafnvel
þótt áfrýjun hans verði synjað.
Til þess er ætlazt, að þetta komi
honum á rétta braut. Ég vona
að það geri það; en þó efast ég.
Þegar ég virti fyrir mér andlit
hans og reyndi að kánna köld
hulinsdjúpin bak við það, efað-
ist ég um, að nokkuð gæti orð-
ið til þess að breyta honum.
Mér finnst eins og ég hafi beð-
ið ósigur.
Svo mörg voru þau orð. Einka-
Vandamál mín, sem til urðu í
þessu sambandi, eru leyst. Kona
mín og ég höfum skapað á mil’i
okkar dýpra og göfugra sam-
band, sem byggist á sameigin-
legum raunum okkar. Fótur
minn er nú gróinn að fullu, þótt
ég haltri enn örlítið, þegar raki
er í lofti. Og læknirinn tjáir
mér, að jafnvel það muni hverfa
með tímanum eða allt að því.
Og þegar á allt er litið, hvað
eru fjórir, fimm mánuðir úr
heilli ævi?
Artie Clymer er dauður, en
hann var einskis virði, hvort eð
var. Nokkrir umrenningar fengu
barsmíð. Og Finelli, sá öðlings-
maður, er látinn, en menn deyja
á hverjum degi og eru jarðaðir
og heimurinn snýst sem áður.
Og hvað ætlið þér að gera í
málinu?
Sennilega ekkert.
En fari það bölvað, eitthvað
ætti að gera.
Ég á ekkert svar við því. Ég
á sjálfur tvö börn og það kemur
í minn hlut að sjá um, að þau
vaxi upp sem nýtir þjóðfélags-
þegnar. Vera má, að svo færi,
ef . ég yrði var við eitthvert
grimmdareðli hjá Pudge, sem
engin venjuleg tamning fengi
upprætt, að ég yrði tregur til að
horfast í augu við það. En ég
held samt, að minningin um nótt-
ina, þegar ég lá i illgresinu við
Williamsgötu, muni neyða mig
til þess.
Ég held, að fyrr eða seinna
verði okkur nauðugur einn kost-
ur að finna svarið. Vegna þess
að nú búum við öll í nánara
sambýli, háðari hvort öðru og
tengdari en nokkru sinni fyrr,
og tígrisdýrið vex og dafnar
meðal okkar.
Á hverjum degi lesið þér um
ofbeldisverk þess og fórnardýr.
En auðvitað dettur yður aldrei
í hug, að þér kynnuð að verða
næstur.
Mér kom það heldur ekki til.
hugar.
ENDIR.
-/>^/2 &LEYM£>U£> ATxZ/rrA
| HALLUR SÍMONARSON skrifar i jm
s-mm m = f = =L = = iws
SKEMMTILEGT SPIL.
Suður gefur. Allir á hættu.
A G-9-7
V D-6
♦ Á-9-5-4-2
* 6-6-4
A 10-2
V G-10-9-4
♦ K-10-8-6
* K-G-4
A Á-K-D-8-6-4-3
V 7-2
♦ G
* Á-9-5
A 5
V Á-K-8-5-3
♦ D-7-3
* D-10-7-2
Suður
1 A
4 A
Sagnir:
Vestur Norður
pass 2 A
pass pass
Austur
pass
pass
Vestur spilaði út hjartagosa.
Sum spil eru sjálfspilandi. Sagnhafi hefur i byrjun
ákveðinn slagafjölda, sem hann fær án fyrirhafnar. Önnur
eru ekki eins örugg, þar sem árangurinn fer eftir skipt-
ingu hjá mótherjanum eða úrspili spilarans.
Þessi spil eru miklu skemmtilegri og eitt af þeim er
spilið hér að ofan. Austur-Vestur byrja á því að taka tvo
slagi á hjarta og Austur spilar síðan laufi. Svo virðist sem
sagnhafi tapi einnig tveimur slögum á lauf og verði einn
niður — en Suður hefur góða möguleika til að vinna spilið.
Hann hefur ástæðu til að ætla, að hægt sé að fría tígul í
blindum og vinna því á laufaásinn, spilar tígli á ásinn og
trompar tígul heima.
Sagnhafi þarf að eiga þrjár innkomur í blindan til að
geta nýtt tígulinn, og spilar því spaða og svínar sjöinu,
þegar það á slaginn er tígull trompaður heima. Spilar
spaða á gosann og trompar fjórða tígulinn heima.
Spilinu er nú raunverulega lokið. Blindum er spilað
inn á spaðaníu og tapslag í laufi kastað á fría tígulinn —
og tiu slagir eru i höfn. Það var nauðsynlegt að svína i
trompinu og án þess var ekki hægt að vinna sögnina. Það
er betra að svina fyrir tíunni í sjötta slag en spila gosan-
um í von um að spaða 10 falli. Meiri líkur eru til þess,
að Vestur eigi spaða 10-5-2 eða 10-2, en að Austur eigi
tíuna einspil.
FAukvi NN
27