Fálkinn


Fálkinn - 25.10.1965, Blaðsíða 6

Fálkinn - 25.10.1965, Blaðsíða 6
GAMANSAGA EFTIR INGIBJÖRGU JÓIMSDÓTTUR 7. KAFLI. BRÚÐKAUPSVEIZLAN. Ég sveif inn kirkjugólfið klædd hvítum skósíðum kjól og slörið mitt báru fjórar litlar brúðarmeyjar. Faðir minn gekk við hlið mér klæddur í kjól og hvítt og hjá prestinum beið hann Siggi hár og herðibreiður og glæsilegur. Ég hef aldrei séð neitt jafn glæsilegt og hann Sigga, enda er þetta í eina skiptið sem ég hafði séð hann til þessa dags klæddan í annað en KR-búning. Presturinn talaði yfir okk- ur allir sungu, og áður en ég vissi hvernig á mig stóð veðrið vorum við Siggi orðin hjón, maður og kona frammi fyrir Guði og mönnum. Við fórum í bíl til mynda- smiðsins og svo beint upp á Sögu, en það hafði reynzt eini staður bæjarins sem móður minni og mömmu hans Sigga fannst sæma undir brúðkaupsveizluna. Við stóðum þarna í for- stofunni og biðum eftir gest- unum. „Komið þið sæl,“ sögðum við. „Hvernig hefur hann bróð- ir þinn það? Er hann kom- inn heim af spítalanum?" „En hvað það var leitt að konan þín skyldi einmitt þurfa að liggja á sæng núna!“ „Jú, það verður spilað hérna á eftir, og allir geta dansað.“ „Setjið þið fötin ykkar i fatahengið.“ „Gaman að þú skyldir geta komið.“ „Farið þið beina leið upp.“ Ég var orðin dauðþreytt í handleggnum af hamingju- óskum og brosið var stirðn- að á vörum mínum svo við lá að ég gæti ekki lokað munninum aftur. Siggi tók þessu öllu eins og sannur KR-INGUR. Þegar við komum upp hópuðust konur KR-INGA utan um mig og þreifuðu á kjólnum mínum. „En hvað þetta er dásam- legt efni,“ sagði Abba. „Hvar fékkstu það?“ „I Parísartízkunni," sagði ég og fór hjá mér. ,,Og sniðið er hreint út dásamlegt. Hann klæðir þig alveg dásamlega,“ sagði Labba. „Þið Siggi voruð hreint það dásamlegasta brúðar- par, sem ég hef nokkurn tíma séð,“ sagði Lá. Ég hef aldrei heyrt orðið „dásamlegt" jafn oft og þennan eftirmiðdag. Aldrei. Allur Súlnasalurinn var skreyttur hvítum blómum og borðin báru fagurlegar skreytingar líka. „Það er allt fullt af KR- INGUM hérna,“ sagði Siggi við mig. „Já, og þeir eru ekki i æfingabúningum,“ sagði ég, því ég hafði tekið eftir fót- boltanum, sem hann hafði smyglað inn með sér í kirkj- una, tekið með sér til mynda- smiðsins og látið mig halda á í stað brúðarvandarins og sett svo upp á loft um leið og við komum út á Hótel Sögu. „Elskan mín,“ sagði Siggi sárþjakaður og leiður. „Ég ætlaði alls ekki að byrja á að spila fótbolta hérna núna.“ Stúlkurnar gengu um með kampavín og snittur stóðu á tveim langborðum. Nokkrir KR-INGAR stóðu úti í horni og Siggi dró mig beint þangað. Þeir voru með boltann hans Sigga. „Það er sko svona,“ sagði Maggi. „Undirstaða varnar- leiksins hefur ekki breytzt svo óskaplega mikið síðustu árin þó allir séu að tala um alls konar kerfi. Það er enn takmark leikmannsins að komast með boltann sem næst markinu og skora.“ Ung, Ijóshærð stúlka starði á Magga aðdáunar- augnaráði. „Væri það ekki auðveld- ara ef hinir væru ekki alltaf að flækjast fyrir honum?“ spurði hún. Maggi lét sem hann heyrði ekki til hennar. „Ég skal sýna ykkur það," sagði maðurinn minn elsku- legur og stilti boltanum upp fyrir framan tærnar á sér. „Það er sko alveg sama hvernig náunginn sem er með boltann hefur hann. Ef varnarleikmaðurinn er nægi- lega leikinn og hefur nægi- lega næmt auga fyrir bolt- anum reddar hann sér út úr öllu. Reyndu að ná bolt- anum af mér, Maggi.“ „Skal gert,“ sagði Maggi. „Sko sérðu,“ sagði Siggi, og lék sér að boltanum með tánum áður en ég vissi hvað á mig stóð veðrið hafði leik- urinn borizt út á dansgólf- ið. Gestirnir voru hættir að tala saman og allir störðu frá sér numdir á brúðgum- ann, sem dansaði sinn brúð- arvals ekki við brúðina eða B Magga heldur við elskunaF sína fótboltann sjálfan. „Það er alveg sama hvað þú gerir Maggi,“ sagði Siggi hátt mjög, „ég held boltan- um samt. Þarna sérðu bara góði hvort það er ekki satt sem ég segi að ég er leikn- asti varnarleikmaður sem íslendingar hafa nokkurn tíman átt þó svo að ég vilji ekki gerast atvinnuleikmað- ur með erlendum liðum.“ „Af hverju viltu það ekki?“ kallaði einhver. Siggi hætti að leika og starði út í salinn. „Hver spurði?" sagði hann reiðilega. Ungur og fölur maður gekk fram. „Ég,“ svaraði hann. „Það skal ég segja þér góði,“ sagði Siggi. „Einu sinni KR-INGUR, alltaf KR- INGUR. Ég fer sko ekki að spila með einhverju lásý út- lenzku liði eftir að hafa spil- að með fínustu náungum þessa heims, KR-INGUM.“ Hljómsveitin hóf að leika brúðarvalsinn og við Siggi svifum yfir gólfið. Mér er sama hvað aðrir segja um KR-INGA, fóta- hreyfingar þeirra eru sér- lega glæsilegar, og þeir dansa eins og englar. Ég hef náttúrlega aldrei dansað við Valsara, Víkinga, Frammara og bara við einn Þróttara, en samt segi ég: það er enginn og ekkert sem jafnast á við KR-INGA í dansi. Það klöppuðu allir fyrir okkur og almennur dans hófst. Við Siggi settumst augnablik tvö við borð úti í horni og kveiktum okkur í sigarettu. „Hvernig finnst þér að vera gift?“ spurði Siggi. „Gott!“ sagði ég. „Dásam- legt!“ „Finnst þér hljómsveitin; ekki spila vel?“ „Ægilega,“ sagði ég. Við reyktum þegjandi smá stund. „Siggi,“ sagði ég svo. „Allt þetta vesen. Finnst þér það ekki undarlegt? Veiztu hvað, ég hélt að menn héldu ekki svona veizlur í raunveru- leikanum?" Hann hló hátt og karl- mannlega. „Ég skil þig,“ sagði hann með sinni djúpu dödd. „Og það er enn dásamlegra vegna þess að við k'mnum að meta það. Það eru til þeir sem eru í KR og þeir FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.