Fálkinn


Fálkinn - 25.10.1965, Side 11

Fálkinn - 25.10.1965, Side 11
Já, þér vilduð gjarnan vera orðin nokkrum kílóum léttari. Reynið þá þennan megrunarkúr sem hefur það til síns ágætis að vera hollur og ríkur af vítamínum og málmsöltum. MORGUNVERÐUR Á HVERJUM DEGI: Ein appelsína eða hálft greipaldin, eitt linsoðið egg, ein þunn sneið af heilhveitibrauði eða hrökkbrauði með einni teskeið af smjöri, ein sneið af osti, kaffi eða te sykurlaust. HÁDEGISVERÐUR Á HVERJUM DEGI: Eitt soðið egg, ein til tvær sneiðar af mögru kjöti, grænmeti (tómatar, agúrkur, blómkál, gul- rætur eða salat), eitt glas af tómat- safa, ein sneið af osti, sykurlaust og rjómalaust kaffi. MILLI MÁLTÍÐA EF ÞÉR ERUÐ MJÖG SVÖNG: Eitt epli eða ein pera. í STAÐINN FYRIR EFTIRMIÐDAGSKAFFIÐ: Safi úr einni appelsínu eða eitt glas af tómatsafa. KVÖLDVERÐUR: Súrmjólk með nokkrum rúsín- um í staðinn fyrir súpu, græn- metissalat, soðnar gulrætur, blóm- kál og rófur, magurt kjöt eða fisk- ur, ávextir, eitt glas af mjólk. Sneiðið hjá steiktum og brösuð- um réttum, borðið ekki of mikið af kartöflum og brauði og látið kökur og sætindi aldrei freista yðar. VEL KLÆDD KONA FYLGIR TÍZKUNNI EKKI í BLINDNI segir Marc Bohan, einn af frægustu tízkuteiknurum heimsins. Fáir karlmenn á þessum hnetti vita jafnmikið um kventízkuna og Marc Bohan, eftirmaður Christians Dior í París. Tvisvar á ári vekur hann athygli úti um allan heim með djörfum nýjungum sínum á aðalsýningum haust og vor. En þótt hann skapi í sífellu ný afbrigði, óvenjuleg og jafnvel sérvizkuleg, af kvenfatnaði, er hann ekki hrifinn af konum sem eltast við tízkuna án tillits til hvað þeim sjálfum fer vel. „Vel klædd kona fylgir tízkunni ekki í blindni,“ segir hann og leggur áherzlu á orð sín. „Hún þekkir sjálfa sig of vel til þess, veit hvað henni fer bezt og hvað dregur fram hennar sérstöku kosti. Hún kann að undir- strika persónuleika sinn með fötunum sem hún gengur í og velja og hafna í samræmi við það. Ekkert er eins ósmekklegt og að klæðast fötum sem eru í hróplegu ósamræmi við persónuleika hennar sjálfrar.“ Marc Bohan og nokkur sýnishorn af tízku sem hann hefur skapað ÞREYTIST ÞÉR I FÓTUNUM af að standa við straubrettið? Þá þurfið þér ekki ann- að en fá yður mottu úr þriggja sm. þykku svampgúmíi og standa á henni skólaus eða í létt- um töfflum meðan þér strauið. Þannig getið þér staðið ó- trúlega lengi án þess að þreytast.. FÁL.KINN 11

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.