Fálkinn


Fálkinn - 25.10.1965, Page 13

Fálkinn - 25.10.1965, Page 13
*»• HANN VAR GJÖRSAMLEGA ABYRGÐARLAUS, EN STULKURNAR VDRU ALLAR YFIR SIG HRIFNAR AF HDNUM Dauði Önnu varð mikið áfall fyrir Marius. Óviljandi hafði hann verið ófyrirgefanlega grimmur, en hann var ekki slærqur maður — og hann var mjög miður sín yfir þessum hræðilega atburði. Marius gjörbreyttist. Hann varð afundinn og fór einförum. Það leit út fyrir að hann hefði misst allan áhuga á kvenfólki, og hann forðaðist allt samneyti við kunningja sína. Ég var sá eini sem hann umgekkst. Þegar versta áfallið var liðið hjá, varð hann í fyrsta skipti á ævinni niðursokkinn í námið, og við lásum saman af kappi. Þegar komið var að lokaprófi og leiðir okkar myndu brátt skiljast, var dauði Önnu fjar- lægur, og ég álít, að Marius hafi ekki hugsað mikið um hann, a. m. k. ræddi hann aldrei um þennan at- burð. Þegar við höfðum lokið kandidats- árinu á spítalanum, keypti Marius hlut í læknishéraði úti á landi. Ég gekk í félag með eldri lækni í bæn- um, þar sem við höfðum lært. f fyrsta skipti síðan við hófum læknis- fræðinámið skildust leiðir okkar. Næstu ár skrifuðumst við á við og við, en hittumst aldrei. Svo var það dag nokkurn, er ég af tilviljun var í embættiserindum í nágrenni við bæinn þar sem hann var búsett- ur, að ég ákvað að heimsækja hann. Ég hitti hann í móttökuherberg- inu. Hann varð glaður yfir að sjá mig, en hann átti mjög annríkt og bað mig um að bíða á meðan hann lyki við að tala við sjúklinga sína. Það var erfitt fyrir mig að trúa því er ég leit þennan rólega og alvar- lega mann, sem tók á móti sjúkling- um sínum af slíkum innileik, að þetta væri gamli kæruleysislegi Marius. Það olli mér kvíða að sjá, að hann virtist hafa hrörnað líkamlega, hann leit veiklulega út. Ég hugsaði með mér, að þetta gæti stafað af ofþreytu, en samt gat mér ekki dulizt, að eitthvað alvarlegra var að baki — það var næstum þvi eins og hann væri rekinn áfram af hræðslu við eitthvað. Þegar ég hafði verið þarna í hálftíma eða svo, tók ég eftir undar- legri hreyfingu. Hann hreyfði höndina alltaf upp að hægra auganu, eins og hann væri að reyna að bægja einhverju frá. í hvert skipti, sem hann tók á móti sjúklingi í dyragættinni, tók ég eftir þessari hreyfingu. Þegar við síðar gengum heim til hans, var ég enn að hugsa um þetta. Á meðan við töluðum saman, færði hann höndina oft upp að hægra auganu. Hann nuggaði augnhárin með visifingri og með skjálf- andi fingrum greip hann um augnalokin. — Er eitthvað í auganu á þér, Marius? spurði ég loks. Hann var mjög fölur og ég tók eftir því að hönd hans tók að hristast, þegar hann enn einu sinni lyfti henni í átt að auganu. — Já, þú hefur þá tekið eftir því, sagði hann. — Ég veit ekki hvað ég á að taka til bragðs, John. Hann virtist örvæntingarfullur. — Það er hér alltaf. Ég get ekki náð því burt. — Finnst þér eins og eitthvað sé í auganu? spurði ég. Hann kinkaði kolli. — Það hreyfist við augnlokið. Svo finnst mér eins og það sé á sjálfum augasteininum og ég sé allt í þoku. Augað fyllist af tárum og þetta reynir svo á taugarnar að ég er að verða vitskertur. — Hafa einhverjir skoðað í þér augað? — Já, svaraði hann stuttur í spuna. — Þeir hafa ekkert fundið. Það leit út fyrir að hann vildi ekki ræða þetta mál frekar, þegar við höfðum setið dálitla stund, bað ég um að fá að líta á augað. Ég fann ekkert. Augað var fullkomlega eðlilegt. — Þú heldur að þetta sé hugarburður. Hann starði á mig og fól síðan andlitið í höndum sér. — Það gæti verið, sagði ég að lokum. — Þú ert ef til vill of þreytt- ur. Þú veizt hvernig getur farið ef maður vinnur of mikið. Hvenær tókstu fyrst eftir þessu? — Það leið löng stund þar til hann svaraði. Svo sagði hann lágum rómi: — Það byrjaði stuttu eftir að Anna dó. — Af hverju hefurðu ekki sagt mér frá þessu fyrr? — Það byrjaði svo smátt, að ég tók næstum ekki eftir því. En svo hefur þetta versnað með árunum og nú veit ég ekki hvað ég held þetta lengi út. Skjmdilega brast hann í grát. Ég dvaldi hjá honum næstum viku. Ég hefði gjarnan viljað vera lengur, en ég varð að snúa aftur til vinnu minnar. Ég hafði þó þá ánægju að sjá, að hann virtist glaðari og hressari síðustu dagana. Hönd hans leitaði ekki eins oft til augans með þessari ógnvænlegu og þreytulegu hreyfingu. Þegar við kvöddumst, gat hann meira að segja hlegið að þessu, og hann sagði, að manni gæti ýmislegt dottið í hug þegar maður byggi einn, og það hefði orðið sér til mikils góðs að fá mig í heimsókn. Ég hafði ekki eins miklar áhyggjur út af honum þegar ég hélt aftur heim Það var ekki fyrr en ég fékk boð frá honum, að það rann upp fyrir mér hvað langur tími hafði liðið frá því að ég hafði séð hann. Ég hafði að sjálfsögðu ekki gleymt honum, en hafði skrifað honum oft. Stundum var eins og hann vildi komast undan því að svara spurningum Framh. á bls. 25. FÁLKINN 13

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.