Fálkinn


Fálkinn - 25.10.1965, Qupperneq 16

Fálkinn - 25.10.1965, Qupperneq 16
— Maður heyrir svo marga bölva hettumáv- inum? — Já það eru til ótal sögur um skaðsemi þeirra, til dæmis eiga þeir að éta svo mikið af eggjum, en það hef ég aldrei séð og er óhætt að fullyrða að þeir taki aldrei egg, enda hef ég ekki trú á því að endurnar sæktust þá eftir nábýlinu við þá, eða aðrir fuglar. — En hvað um ránfugla hér? — Hettumávurinn rekur aðra ránfugla burtu, til að mynda kjóann, sem við annars skjótum hvenær sem færi gefst, og svo er það svartbakur- inn, en hann gerir mikið að því að éta ungana. í fyrsta sinn sem ég sá svartbak, það var árið 1906, einn einasta fugl, vissi ég ekki hvaða fugl þetta gat verið. Svo fór þeim að fjölga hér og árið 1915 voru þeir talsvert algengir hér við Mývatn. Ástæð- an til þess að þeir fóru að leggja leið sína hingað, held ég að hafi verið meðal annars stíflun Laxár. Þegar hún þornaði átti svartbakurinn hægt með að ná í silunginn úr ánni og þá komu þeir í veiðiferðir upp með ánni, allt upp í vatnið og fannst gott að vera hér við Mývatn, eins og fleirum. — Verpir svartbakurinn hér? — Flest árin verpir hann eitthvað. Það er reynt að útrýma honum eins og hægt er, en gengur illa, þetta eru mest flækingar sem eiga sér ekki hreiður hér. — En hvað um minkinn? — Hann er mesti vágesturinn, en þó hefur tek- izt að halda honum í skefjum. Það hefur sann- fært mig um, að þá muni vera hægt að útrýma honum annarsstaðar á landinu, ef samtök um það eru nógu sterk. Um áramótin er venjulega búið að útrýma honum alveg hér í Mývatnssveit. Þegar vetrar sjást slóðirnar hans vel, og allir sem þær sjá, gera sér að skyldu að láta minkaeyðinn, Finn- boga Stefánsson á Nónbergi, vita, en hann er orðinn sleipur við að ná þeim. Finnbogi notar boga, gildr- ur og hunda við veiðarnar Þegar líður á vetur- inn fer minkurinn að streyma annarsstaðar frá, til dæmis ofan úr öræfum, þar sem alltof lítið er gert að því að útrýma honum, en þar er það mun auðveidara en hér, það er varla hægt að hugsa sér verri aðstæður til slíkra hluta, en hér í sveit. En sá árangur sem náðst hefur. sannfærir mig um, að takast megi að útrýma minkinum að mestu hérlendis, ef samtökin um það eru nógu almenn og sterk. — Er eitrað fyrir minkinn? — Nei, nei, það er ekki gert. — Hvað um fálkann, er ekki mikið af honum hér? — Honum fjölgar stöðugt. — Er hann mikill vágestur? — .Tp nokkuð, en þó held ég að hann komist ekki í námunda við svartbakinn, sem gleypir ungana hvern af öðrum. En hrafninn vinnur mikið ógagn með eggjaþjófnaði sínum, sömuleiðis kjó- inn, sem gerir mikið tjón, og það sem verra er, að hann lætur sér ekki nægja að taka eitt egg í hreiðrinu, heldur brýtur hann göt á öll hin, máski til að velja það bezta. En það er auðvelt að skjóta kjóann, hann er forvitinn og létt verk að ginna hann í skotfæri við sig. — Hefur Slútnesinu farið aftur, hvað varpið snertir? — Já, það eyðilagðist alveg af mink. Reyndar átti ferðamannastraumurinn sinn þátt í afturför- inni, sem orðin var í varpinu áður en minkurinn kom í eyjuna, en svo kom minkurinn, gerði sér greni í eyjunni, og útrýmdi varpinu alveg. Til dæmis í fyrra voru tekin aðeins 12 egg í Slútnesi, en við tókum 10 þúsund egg í eyjunni hér á ár- unum. Svo í vor var enginn minkur í Slútnesi, og þá glæddist varpið á ný og hef ég góða von um að það nái sér að nýju, ef tekst að halda minkinum frá því. — Eg hef séð tvær uglur hérna. — Já, branduglur eru nýir landnemar hér. Þær eru ljósgulbrúnar og dröfnóttar en máske mis- Ijósar eftir aldri. Þær hafa ekki verið hér að neinu ráði fyrr en séinni árin, eftir 1930 fóru þær fyrst að verða algengar hér í sveitinni. Ég hef farið að haustlagi umhverfis vatnið í bifreið, og við hvern bæ sem við fórum hjá, komu uglur í ljósin frá bílnum en þær voru á músaveiðum. Þær sitja stundum hér á símastaurnum fyrir utan gluggann minn á nóttunni, og þá vakna ég við vælið í þeim, þær eru þá að kallast á og bíða eftir að músunum bregði fyrir. — Þær eru stórar? — Þær sýnast nokkuð stórar, en það er ekki alveg að marka, fiðrið er svo mikið á þeim og þegar þær eru að athuga eitthvað eða hlusta, reisa þær fiðrið og sérstaklega á hausnum þegar þær opna hlustirnar. — Heyra þær í músunum? — Já, heyrnin er með afbrigðum góð, og ég hef tekið eftir þvi, að þær líta upp við minnsta skrjáf. — Og þær lifa eingöngu á músum? — Fyrst og fremst, en þær taka unga og ýmsa smáfugla, ef þær hafa ekki nóg af músum. — Hvar ver’pa þær helzt? — Aðallega í mýrum, held ég, og þær finnast sjaldan ef þær liggja í hreiðrum, það er hér LambafjöII, séð frá Vesturklettum. (Málverk eftir Jóhannes.l FÁLKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.