Fálkinn


Fálkinn - 25.10.1965, Blaðsíða 20

Fálkinn - 25.10.1965, Blaðsíða 20
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl: Þú ættir að forðast að hlaupa úr einu verkefni í annað, en einbeita huganum að bví að Ijúka að minnsta kosti einu þeirra alveg. Allar skemmtanir er réttara að geyma þar til um helgina, ef þær eiga ekki að hafa of truflandi áhrif á störf þín. Nautiö, 21. apríl—21. maí: Einhver ykkar mun áreiðanlega komast i hjónabandshugleiðingar í þessari viku. Heimilisfeður ættu að skipuleggja betur fjármálin og eiginkonur ættu að varast að reyta menn sína til reiði því þær gætu látið þau orð falla sem betur væru ósögð. Tvíburarnir, 22. mal—21. júní: Þessi vika virðist tilvalin til að koma i framkvæmd glæsilegum áformum þínum bæði efnahagslegum og félagslegum. Það gætu þó verið einhverjir vankantar í heim- ilislífi þinu eða varðandi yfirmenn þína sem ekki féllu sem bezt í heildarmyndina. Krabbinn, 22. júní—23. júlí: Varastu að láta þér eldra fólk hafa þau áhrif á þig að þú framkvæmir hluti, sem þú ert i vafa um að séu heiðarlegir. Það er betra að eiga einum kunningja færra held- ur en að breyta gegn eigin sannfæringu. Helgin ætti að geta orðið ánægjuleg. LjóniÖ, 2b. júlí—23. ágúst: Jafnvel þótt þetta sé langt frá Því bezti tími ársins hjá þér mun hann samt sem áður færa þér ýmislegt ánægjulegt. Gættu þess samt að skapið hlaupi ekki með þig í gönur. Vinum þínum væri ánægja í heim- boði frá þér um helgina. Meyjan, 2i. ágúst—23. sept.: Það er ekki aðeins æskilegt heldur nauð- synlegt fyrir þig að halda þér í jafnvægi og forðast að gera nokkuð, sem gæti hnekkt áliti annarra á Þér og skaðað fjölskyldu þina. Einhver aðili, sem er nógu rólegur gæti orðið þér hjálplegur ef þú leitar eftir því. Vogin, 2h. sept.—23. okt.: Þú kannt að þurfa á öllu þínu viljaþreki að halda til að ráða fram úr vandamáiun- um. Og þó einhverjir peningar berigt þér i hendur, munt þú fljótt þurfa að sjá af þeim aftur. Þér er nauðsynlegt að varð- veita sálarró þína. Drekinn, 2h. okt.—22. nóv.: Persónuleg málefni þin eru mest áber- andi þessa viku og mun ýmislegt ganga Þér í haginn. Þó er hætt við einhverjum erjum varðandi peninga og skyld málefni, milli þín og vina þinna og félaga. Þú getur orð- ið þínum nánustu til mikillar ánægju. Bogmaöurinn, 23 nóv.—21. des.: Jafnvel þó þú eigir erfitt með að vera i öðru sæti, væri hyggilegt að láta aðra sjá um framkvæmd mála þessa viku, því þér mundi hætta við að verða of fijótfær og gætir þannig skaðað framgang viðkomandi málefna. Steingeitin, 22. des.—20. janúar: Það er í þér nokkur kvíði sem þó er al- gjörlega ástæðulaus. Ef þú vinnur vel að því að bæta starfsaðstöðu þína og koma þér vel við yfirmennina þá er þér vel borg- ið í náinni framtíð. Það er ekki nóg að bíða heima eftir tækifærunum. Vatnsberinn, 21. janúar—19. febrúar: Upphaf vikunnar virðist ætla að verða gott, en það munu einhverjir reyna að hafa áhrif á þig varðandi fiármálin, sem gætu leitt til þess að þú yrðir fyrir tapi. Treystu ekki um of loforðum annarra. Fiskarnir, 20 febrúar—20. marz: Ný áhugamál munu skjóta upp kollinum ] þessari viku og átt þú kannski úr mörgu að velja og er vandinn sá að velja eitthvað sem er raunveruiega við þitt hæfi og þai sem þú eetur fullnæ"* „i,;;..,■ H;nrií í i PHILIPS FERÐA SEGFEBA JVDSTÆKÍ Auðveld í notkun — Bandið sett í með einu handtaki — þræðing óþörf. Handhægur rofi á hljóðnema sem nota má til þess að kveikja og slökkva á tækinu. Leðurtaska með ól, sem hafa má um öxlina. — Hægt er að komast að öllum stillingum án þess að taka tækið ur tös^kunni. Spennubreytar fáanlegir, svo að nota megj tækin fyrir 220 volt. SEGULBAJXDS- TÆKl Fjórar rásir Tveir hraðar leika allt að 16 klukkustundum af einni segulbandsspólu. Allar gerðir af Philips segul- bandsspólum. — Einnig allar stærðir af tómum spólum. RADIÓVER sf. Skólavörðustíg 8 — Sími 18525. * 20 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.