Fálkinn - 25.10.1965, Side 21
EIXMAM SÖIVIJR
SLÉTTEMAR
UTUSAGAN
EFflR V
WIUY BR0NHOIST
Og nú er það lítil, lærdómsrík saga
frá villta vestrinu. Það er sagan um
óviðráðanlega konu, sem varð manni
sínum góð kona, af því að hann skyldi
þegar í upphafi, að hann varð að láta
bera virðingu fyrir sér.
Sjá. ef þér fylgið Rio Grande svo
langt inn í Aiizona og þér komizt, og
haldið því næst vestur eftir meðfram
Rio Salado komið þér, eftir 3—4 sólar-
hringa reið, til lítils afskekkts sléttu-
bæjar, sem kallaður er Pie Town. Um
það bil 100 mílum norðan við Pie Town
bjó eitt sinn cowboy, sem hét Joe
Harmony. Það er hann, sem er hetjan
í þessari sögu.
Á hverjum degi stökk Joe upp á
hnakkinn og þeysti út yfir slétturnar.
Yuppe-ye-e-e, söng Joe og klemmdi sig
fastan í hnakkinn. Svo þeysti hann
áfram um slétturnar þangað til sólin
gekk niður á bak við Newhope Mount-
ains. Þá fyrst steig hann af baki, henti
frá sér baksekknum og tók. fram gítar-
inn. Svo söng hann alla gömlu góðu
cowboysöngvana, en sléttuúlfarnir ráku
upp söngelsk gól.
Svona leið hver einasti dagur hjá
hinum einmana syni sléttunnar. En
dag einn birtist konan í lífi hans. Hann
var á leið til barsins í Pie Town til þess
að skola niður slétturykinu, þegar hann
fyrir utan pósthúsið, kom auga á þá
glæsilegustu stúlku, sem hann hafði
nokkurn tíma séð. Þetta var dóttir nýja
lögregluþjónsins, hún hét Clementine.
Hún brosti til hans, og þá rann það upp
fyi'ir honum. Það ólgaði í bi'jósti hans,
og það sauð í blóði hans. Auðvitað varð
hann að fá sér konu.
Það var einmitt það, sem hann vant-
aði á sléttukvöldunum. í einu handtaki
hafði hann tekið snöi-una, og áður en
Clementine gat talið upp að þremur,
hafði hann fangað hana, sleppt henni,
fengið já og sleppt henni aftur fyrir
framan altarið í litlu timbui'kirkjunni
við hliðina á pósthúsinu. Þegar prest-
urinn hafði sagt amen, lyfti Joe ungu
bi’úðinni upp í hnakkinn og reið stolt-
ur gegnum Pie Town.
— Þú ert nú sjóðandi vitlaus, hróp-
aði hjólbeinóttur cowboy, sem hékk
upp að stoðunum fyrir framan barinn.
— Stelpan er óviðráðanleg, þú get-
ur aldrei tamið hana.
— Aumingja strákurinn. Þú hefur
fengið greiðu í hárið þitt hrópaði póst-
meistarinn.
— Gott að ég missti hana, sagði lög-
reglustjórinn. — Ég hefði ekki getað
ráðið við hana, þótt ég hefði átt 400
hektara lands. En Joe tók þessu rólega.
Hann lét sem hann heyrði ekki þessar
upphrópanir. Hann reið út á sléttuna,
fullkomlega ánægður með tilveruna. En
allt í einu hrasaði hesturinn um stein,
og Joe var nær dottinn af baki með
brúðina.
— Þetta var í fyrsta skipti, sagði
hann og kom hestinum á lappirnar.
Tíu mínútum seinna, einmitt þegar
hann var kominn að Salt Fork, hrasaði
hesturinn aftur. Hann var ekki vanur
að hafa meira en einn í hnakknum.
— Þetta var í annað skipti, sagði
Joe.
Við Sweed Water hrasaði hesturinn
í þriðja skipti.
Þá steig Joe af baki, lyfti Clementine
af baki og skaut hestinn.
Clementine varð öskuvond.
— Hvað átti þetta að þýða, sagU
hún. Við verðum að ganga það sem
eftir er leiðarinnar. Og það eru fimm-
tíu mílur eftir. Ég vil ekki hafa að þú
gerir svona, heyrirðu það, fíflið þitt.
Joe hvessti brýnnar og leit fast á
konu sína.
— Þetta er í fyrsta skipti, sagði
hann svo.
FÁLKINN 21