Fálkinn - 25.10.1965, Blaðsíða 24
TRYLLI-
TÆKID
TORONADO
EKLEND blöð ræða mikið um bílateg-
undirnar 1966. Bandaríkjamenn gera
ráð fyrir mjög góðu árferði hjá bílaverk-
smiðjunum sínum og talið er, að sam-
keppnin hjá Ford, Chrysler og GM verði
mjög hörð og spá Fordmenn því að þeir
muni selja Ford betur en GM Chevrolet,
en það hefur ekki gerzt síðan 1959.
Sá bíll, sem einna mesta athygli vekur
á bandaríska markaðnum, er Oldsmobile
TORONADO, sem er með drifi á fram-
hjólum og með keðju frá vél niður í gír-
kassann. Gírkassinn og drifið er sambyggt
og það eru framhjólin sem toga bílinn
áfram. TORONADO á að geta tekið beygju
á 100 km hraða eins auðveldlega og marg-
ir aðrir bílar á 55 km hraða. Óþarfi er
að nota keðjur eða snjódekk á veturna,
og þeir segja, að næsta ómögulegt sé að
hvolfa honum, vegna þess hve hann er
lágbyggður.
Framleiddir verða um 60 þúsund bílar
af þessari tegund.
Mótorinn er V-8 385 hestöfl, gírkass-
inn sjálfvirkur og 3ja þrepa. Bíllinn veg-
ur 2040 kg og þar af hvíla 60,3% á fram-
hjólunum. Verðið verður um 5000 dollar-
ar, og mundi þá líklega kosta hér 650—
700 þúsund krónur.
Bílasýnandi danska blaðsins BT er ekki
á því, að þessi bíll sé fyrir viðvaninga
og hann sé í rauninni stórhættulegt trylli-
tæki.
TORONADO er arftaki CORD, sem var
fyrsti framhjóladrifni ameríski bíllinn og
hér á landi á einn slíkur að vera til —
um 30 ára gamall.
F0RD BR0NC0
RENNUR ÚT
Bandaríski fólks- og fjallabíllinn FORD
BRONCO rennur víst út eins og heitar
lummur, því að þetta er bíllinn sem hent-
ar okkur íslendingum sérstaklega vel.
Sveinn Egilsson og Kr. Kristjánsson eru
báðir um að selja bílinn, en Ford hefur
víðast hvar tvo aðila til að keppa innbyrðis
um markaðinn. Hefði bíllinn verið tveim
tommum lengri á milli hjóla hefði hann
lent í öðrum tollaflokki og verðið orðið
það hátt, að flestum hefði orðið ofviða að *
kaupa hann.
CKEVY SIDEWINDER
BÍLLINN, sem við sjáum hér á mynd-
inni, á eiginlega að geta farið hvaða
torfærur sem er. Hann heitir CHEVY
Sidewinder og er skipt í þrjá hluta
með vél í miðjunni og er sá hluti tengd-
ur fram og afturparti með snúnings-
liðum. Bíllinn er 16 feta langur með
lágþrýstidekk 14X20 og vélin er 8
sýlindra. Gírkassi er sjálfskiptur. Þótt
FORD Bronco sé seigur, er hætt við að
hann hefði lítið að gera í samkeppni
við þennan furðubíl.
24
h iMná