Fálkinn - 25.10.1965, Page 27
Sem pólitísk samtök á Sósíalistaflokkurinn það sam-
merkt við bræðraflokka sína erlendis, að hann er
hreinn afturhaldsflokkur (þrátt fyrir allt byltingarhjal),
sem um skipulag allt og hugsjónafræði hefur tekið
sér til fyrirmyndar pólitíska skipan Austrómverska
ríkisins, og er útaf fyrir sig mjög fróðlegt að gera saman-
burð á Sovétríkjunum og Býzans í þessu tilliti. Það
breytir hinsvegar engu um, að í röðum sósíalista eru
margir íhaldssamir hugsjónamenn, sem unna þjóðlegum
hefðum og andlegu frelsi og vilja standa vörð um inn-
lendan menningararf.
Sjálfstæðisflokkurinn er í reynd sósíaldemókratískur
hentistefnuflokkur, sem sameinað hefur innan sinna
vébanda sundurleitustu öfl, og er sú sambúð einatt dá-
lítið óróleg, einsog vænta má. f flokknum er mikið
af óforbetranlegum afturhaldsseggjum, sem kysu helzt
að koma hér á lénsskipulagi miðalda til að geta stundað
brask sitt og bitlingasnap í friði, þó aðrir úr þeirra hópi
mundu sennilega heldur velja ,,frelsi“ frumskógarins til
að tryggja forréttindi sín. En í þessum flokki er líka
álitlegur hópur góðra íhaldsmanna sem eiga djúpar ræt-
ur í íslenzkum menningararfi og vilja varðveita það
bezta úr fortíðinni jafnframt því sem reynt er að auka
félagslegt jafnrétti og öryggi. Þessi hópur ætti, ef allt
væri með felldu, að vera kjarni Sjálfstæðisflokksins,
en einsog aíþjóð er kunnugt eru það ekki slíkir menn
sem til forustu og áhrifa veljast í íslenzkum stjórnmála-
flokkum, heldur hentistefnumennirnir sem sífellt aka
seglum eftir vindi, hinir pólitísku ævintýramenn sem
eiga engar hugsjónir eða sannfæringar aðrar en þær að
þóknast misvitrum foringjum og koma sér í mjúkinn
hjá valdhöfunum. Slíkir menn þekkja ekki annað sið-
gæði en það sem ákvarðast af frama- og ábatavonum.
Strangt tekið er þessi stóri jábræðrahópur íslenzkra
stjórnmálaflokka, þetta allsherjárbræðralag um ósóm-
ann, hið eiginlega afturhald í landinu, því þessir menn
grafa undan raunverulegu lýðræði (þó þeir hafi það
á vörunum dagsdaglega) og róa að því að koma hér á
höfðingjaveldi með sæg þægra og tungumjúkra skó-
sveina á þönum kringum gerráða og duttlungafulla vald-
hafa.
Alþýðuflokkurinn er mjög í sama báti og Sjálfstæðis-
flokkurinn, néma hvað einstakir afturhaldsseggir hafa
■ náð meiri þrælatökum á honum og að heita má þurrk-
að út hvern snefil af góðu íhaldi innan hans. Þar er
hentistefnan og bitlingagræðgin orðin hið alráða afl,
sem gengið hefur af flestum hinum gömlu hugsjónum
dauðum. Hinsvegar mætti segja mér, að með fráfalli
eldri afturhaldsmanna innan flokksins væri tiltölulega
auðveldast að gera Alþýðuflokkinn að sönnum íhalds-
fiokki, og gæti hann þá átt þörfu og merkilegu hlut-
verki að gegna i íslenzkum þjóðmálum.
Framsóknarflokkurinn er sennilega hreinræktaðastur
og sjálfum sér samkvæmastur i ómenguðu afturhaldi þó
innan hans kunni að leynast einstaka góður íhaldsmaðnr.
Framh. á bls. 35.
HEILDSÖLUBlRGÐlR:
KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ H.F.
Síftll 2 4120
KI.VSII lOKIIVA
liílak‘i<4a
ma^miKar
21
síinar: 2llf)0-2IIK5
Haukut (juðtfu/hcfóácn
HEIMASTMI 21037
FÁLKINN 27