Fálkinn


Fálkinn - 25.10.1965, Side 28

Fálkinn - 25.10.1965, Side 28
Japanska þjúnustustúlkan Aika er augnayndi karl- mannanna sem sækja veitingahúsið „Tókíó-garðurinn.“ Meðal þeirra sem veita henni nána athygli er Kínverj- inn Chiang og Bandaríkjamaðurinn Larson, sem er liðs- foringi. Aika kynnist þeim báðum, með ólíkum hætti þó, og Larson og Chiang kynnast einnig eftir slagsmál í veitingahúsinu sem stöfuðu af ruddaskap nokkurra gesta í garð Aiku . .. Rigningin var að færast í auk- ana, þegar hann ók inn á upp- ljómaða aðalgötuna í Watson- ville. Umferðin var mikil þar eins og venjulega og fólksmergð á gangstéttunum þrátt fyrir úr- komuna. Chiang lagði bílnum í hliðargötu og gekk aftur til aðal- götunnar. Hann dró hattinn nið- ur á ennið, smeygði upp frakka- kraganum og tróð sér inn í mannþröngina. Þegar hann kom í kinversku matstofuna, heils- aði veitingamaðurinn honum með orðunum: „Gleðilegt nýár og græddu mikla peninga," á kanton-máli, en þetta var hin venjulega nýárskveðja. Chiang svaraði í sömu mynt og fékk sér sæti í einum smábásnum. Þjónn færði honum te og kínverskt dag- blað. Hann athugaði matseðil- inn og pantaði fjögurra rétta kvöldverð; slíkt óhóf átti að tryggja honum farsælt nýár. Þjónninn tók við pöntuninni brosandi og dró tjaldið fyrir. 1 næsta bás við Chiang sátu nokkr- ir Filipseyingar og mösuðu og hlógu. Af þeim fáu, ensku orð- um, sem þeir blönduðu saman við þjóðtungu sína, skildi Chiang að þeir voru að tala um hóru- hús í einhverjum bæ nálægt Watsonville. Hann hafði aldrei á ævi sinni heimsótt raunveru- legt vændishús og hugsaði sem svo, að það kynni að reynast fróðlegt. Hann var kominn á fremsta hlunn með að fara og afla sér nánari upplýsinga i næsta bás, en sá sig um hönd. Þetta var gamlárskvöld. Og það væri ills viti að heimsækja slík- an stað á gamlárskvöldi, hvort heldur var til fróðleiks eða ann- arra erinda. Þegar hann hafði lokið við kvöldverðinn, skoðaði hann leif- arnar. Það var kjúklingur, fisk- ur, svínakjöt, nautakjöt og grænmeti eftir í skálunum. Fyr- irtak. Þá átti honum að vera tryggt nóg af þessum fæðuteg- undum á komandi ári. Honum varð allt í einu léttara um hjarta- ræturnar og hann skildi eftir ríf- legt þjórfé á borðinu þegar hann fór út úr veitingahúsinu. Það var hætt að rigna. Hann stóð á gangstéttinni og leit til hægri og vinstri og reyndi að ráða við sig hvað gera skyldi næst. Enn var of snemmt að fara á bjórstofu, svo hann brá sér í næsta kvikmyndahús og sá þar myndina Blackboard Jungel. Hann naut myndarinnar allvel, en fannst þó að heppilegra hefði verið að horfa á glaðlegri mynd á gamlárskvöldi. Hann var sí- fellt að verða hjátrúarfyllri og hugsaði um, af hverju það gæti stafað. Hann hafði aldrei áður tekið eins mikið mark á hvers konar fyrirboðum og nú. Jafn- vel óhugnanleg kvikmynd gat vakið hjá honum kvíða og ugg um að hún kynni að vita á eitt- hvað illt. Var hann að verða gamall? Eða var öryggisleysið að ónáða hann? Þvættingur, — hann var aðeins þrjátiu og átta ára gamall og stálhraustur og yfir honum vofði ekki önnur hætta en sú, að missa kennslu- starfið. Og í þessu landi gat hvaða lúsablesi sem var unnið fyrir lifinu, að því er sagt var. Hann hafði heyrt um fólk, sem dó af ofáti í þessu landi. en aldrei heyrt minnzt á neinn, sem hefði dáið úr sulti; utan einu sinni fyrir fimm árum, að hann hafði lesið um gamla konu, sem hafði látizt úr næringarskorti í lítilli herbergiskytru, með tutt- 4. HLDTI ugu þúsund- dali í tösku undir rúminu sínu. Það var hlægilegt, að finna til öryggisleysis, nema hungurdauðinn biði manns bók- staflega á næsta leiti eins og hann hafði þráfaldlega orðið fyrir í Kína á stríðsárunum. Og þá hafði það aldrei valdið hon- um áhyggjum. Fyrst hann hafði engu kviðið þá, hvers vegna ætti hann þá að gera það nú? Hann herti sig upp og gekk út úr kvikmyndahúsinu. Þegar út á götuna kom, hóf hann leit að mexicanskri bjórstofu, sem ekki væri þegar troðfull af fólki, en þær voru fáar. Þá mundi hann eftir stórri vínstofu í einni hliðargötunni, sem kölluð var Chico og þangað hélt hann hik- laust. Hjá Chico var glatt á hjalla og mannþröng mikil en hann fékk þó sæti við borð hjá fleira fólki og undi þar yfir nokkrum bjórum næstu klukku- stundirnar. Þegar komið var fram yfir miðnætti var hann farið að svima af bjórnum, svo hann ákvað að læðast út frá Chico og halda heimleiðis. Hann gekk út í ferskt næturloftið og andaði djúpt að sér; hann var ánægður með kvöldið og sjálfart sig, því fallega, mexicanska þjón- ustustúlkan, sem dansaði við gestina gegn greiðslu, hafði virzt taka hann fram yfir aðra og hann hugsaði með sér, hvort þetta vissi á kvennalán í fram- tíðinni. Hún hafði jafnvel gefið honum kost á að bjóða sér út eftir lokun, en hann afréð að hirða ekki frekar um það, held- ur hverfa frá Watsonville og fá sér kaffibolla á leiðinni heim. Þegar hann kom heim til sín tveim tímum seinna, var farið að morgna. Hann opnaði bíl- skúrshurðina og kveikti ljósið og sá þá sér til undrunar hvar framandlegt bréf lá á gólfinu og virtist sem einhver hefði rennt því undir hurðina kvöldið áður. Hann tók það upp og sá að frú Thompson hafði hripað' nýárskveðju utan á umslagið. Þetta var bréf frá konu hans, blautt og snjáð, og hafði fyrrver- andi húsráðandi hans, frú Wang, eftirsent honum það frá San Francisco. Hann reif bréfið upp og las stuttaralega orðsendinguna, sem það hafði að geyma: „Fu, ég ætla að gifta mig. Ég beið eftir þér í sjö ár. Fyrst þú ætlar ekki að koma aftur til Nýja Kina þá lít ég svo á, að hugarfar þitt sé orðið eitrað af amerískri heimsvaldastefnu. Ég ætla að giftast ungum flokksbróður, sem hefur vakið mikla að- dáun hjá mér með hollustu sinni við þjóðina. Við þurf- um ekki skilnað, þar sem við Chiang virtist þessi uppástunga búa yíir leyndum loforðum og þrungin bráðlœti. Hann komst strax í uppnám og varð þvalur í lófun- um. Hann horfði á Aiku og bœldi niður hjá sér þrá eftir að kyssa hana.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.