Fálkinn - 25.10.1965, Page 31
otykki sem þeir vefja um sig
miðjan, og í Egyptalandi ganga
menn ef til vill í skósíðum
skyrtum einum fata. Annars er
ekki þörf. Og húsaskjól er ekki
endilega nauðsynlegt heldur.
Sumt fólk elur allan aldur sinn
úti á götum, leggur sig hrein-
lega á gangstéttina er það fer
að sofa.
Þvagan væri sennilega minni
ef það væri kaldara. Það er
ekkert annað en matarskortur-
inn sem við er að berjast —
hungrið. Og í þvögunni sér
maður skortinn og eymdina á
mörgum andlitum.
Við allar götur að kalla í
flestum löndum það syðra er
fólk sem betlar. Sumt er horað,
sumt er bæklað, sumt er sjúkt
—sumt er í því ástandi að það
er engin mannsmynd á því, af-
skræmd andlit þar sem ekkert
er þekkjanlegt nema augun,
eins og gluggi inn í hyldýpi
þjáningar og kvíða.
Jafnvel úti í kyrrlátum sveit-
um vofir hungrið yfir.
Þar lifir fólk í sambýli við
jörðina og himininn. Og meðan
guð lætur rigna yfir réttláta og
rangláta silast tíminn áfram
stórslysalítið. En stundum
bregzt regnið, jörðin skræinar
og verður ófrjó, kýrnar og geit-
urnar hætta að mjólka og fólk-
ið sveltur. Eða hús og akrar
eyðileggjast af flóðum þegar
of mikið rignir.
Fyrrum hrundi fólkið niður
í hallærum og var ekkert um
það fengizt. En nú er önnur
öld. Menn spyrja: hvað er hægt
að gera?
Það er í rauninni ekki hægt
að gera nema eitt: Það þarf
að styðja þetta fólk tif sjálfs-
bjargar, og það er ekki hægt
nema með meiri þekkingu og
menntun. Það er sannmæli hið
fornkveðna, að fávísin er allt
böl mannkynsins.
Á hverju ári er veitt miklu
fé til að bæta úr skortinum,
með matvælagjöfum og tækni-
hjálp, og læknisaðstoð er veitt
um allan heim, en víða kemur
þetta ekki nema að hálfum not-
um enn sakir þess að þeir sem
verið er að hjálpa skilja ekki
sinn eigin vanda. Verkfæri
liggja ónotuð eða hálfnotuð,
nýjum vinnubrögðum er ekki
beitt nema á meðan sá sem
kenndi var viðstaddur. Það
standa því mikil vandamál í
vegi þeirra sem vilja hjálpa.
Stærsta vandamálið er þó
víða um heim annars eðlis.
Það er ekki lengur liðið að
fólk farizt unnvörpum úr
• • » • • Framh á bls 35.
ÆSKULÝÐSSAMBANÐ Islands hefur í undirbúningf
mikla fjáröflunarherferð til þess að gefa Islendingum kost
á að leggja fram sinn skerf í baráttunni gegn hungrinu í
heiminum. Þeir kalla þessa fjáröflunarstarfsemi: ,,Herferð
gegn hungri".
Það eru 900 milljónir barna til á þessari jörð, og þar af
líður meira en helmingurinn alvarlegan skort oq mörg
beinlinis svelta.
Annars staðar á þessari sömu jörð geta menn varla
nokkurn tíma notið eðlilega máltíðar af ótta við það að
þeir stofni heilsu simii í voða með offitu og hóglífi.
Mjólkurgjafir
i skóla á
Fílabeins-
strönd. Mjólk-
in er heilsu-
gjafi fyrir
börnin, og
rekur á eftir
foreldrum að
senda börnin
í skóla.
ílungrið sverfur
að, holdið
bráðnar og barn-
ið niissir þrek,
og að lokurn
getur það hvorki
hrært legg
lið.
FALKINN
31