Fálkinn - 25.10.1965, Side 41
ORÐ
800 krónur í verðl.
AFORÐI
Við þökkum ykkur kærlega fyrir góða þátttöku, en þvi
miður urðum við að „fella“ marga, suma vegna þess að
þeir höfðu misskilið þrautina, aðra vegna þess að þeir not-
uðu orð, sem ekki eru til í orðabókum eða voru ekki rétt
stafsett. Við viljum biðja þá sem voru háir, en höfðu geng-
ið of langt í orðmyndunum að fara dálítið varlegar næst
og vita hvort þeir verða þá ekki meðal vinningshafa.
1. verðlaun kr. 500,00 hlaut Brynhildur Skeggjadóttir,
Safamýri 48 Reykjavík. Hún hlaut 378 stig.
2. verðlaun, kr. 200,00 hlaut Bergur Ingimundarson,
Melhól, Meðallandi V. Skaftafellssýslu. Hann hlaut 330
stig.
3. verðlaun kr. 100,00 hlaut Birgir Sigurbjörnsson, Klopp,
Seltjarnarnesi. Hann hlaut 329 stig.
Lausn Brynhildar: Steiktar — letikast — eltast — teista
__ trekta — ilta — reitta — ertast — klettar — alsettir.
Verðlaunin verða póstsend til þeirra er búa úti á landi,
en aðrir geta sótt verðlaunin á afgreiðslu blaðsins Grettis-
götu 8.
Leikreglur: Myndið ný orð út frá lykilorðinu JAFN-
TEFLI og notið bókstafina, sem koma þar fyrir, en ekki
oftar en þeir eru gefnir upp í lykilorðinu. Dæmi: Lykil-
orðið er jafntefli, þá má t. d. mynda orðið jafnir í fyrstu
línu en ekki jafnar, þar sem a kemur ekki nema einu sinni
fyrir í lykilorðinu. Þegar stafur er notaður í fyrsta skipti
fær hann 1, í annað skipti 2 og koll af kolli, og er því um
að gera að fá sem mest gildi út úr stöfunum. Lítum á
eftirfarandi dæmi:
SAíd
N N N N N N
X N k N N
> N N N k
N N N N
> n N N N V
k n N N X N
> k k N N N
V k N
Samtals: . .
Nafn: ...........................................
Heimilisfang: ........................... .......
reglum. Orðin mega standa í hvaða falli sem er og leyfi-
legt er að nota beygingarendingar. Margir hafa flaskað á
að nota i fyrir y eða öfugt. Ekki má nota i sem í, a sem
á o. s. frv.
Leggið saman hverja línu út af fyrir sig og færið heild-
artöluna í reitinn lengst til hægri. Að lokum eru tölurnar
lagðar saman og heildarniðurstaðan færð fyrir ofan nafnið.
Hvaða orð má ekki nota.
Bannað er að nota persónuheiti og staðaheiti, ennfremur
heimatilbúin orð (orð sem ekki finnast í orðabókum) og
önnur orðskrípi. Rita skal orð eftir ríkjandi réttritunar-
Verðlaun.
Fálkinn veitir þrenn verðlaun fyrir beztu lausnir. 1. verð-
laun kr. 500,00, 2 verðlaun kr. 200,00 og 3 verðlaun
kr. 100,00. Ef margir ná sama stigafjölda verður dregið
um verðlaunin. Frestur til að skila lausnum er hálfur
mánuður, en úrslit verða birt 22. nóvember. ORÐ AF ORÐI
mun koma vikulega á þessum stað.
Lausnin.
Fyllið út formið með orðum, leggið saman gildi hvers
stafs og færið útkomuna i reitina yzt t. h. og lokatöluna
fyrir neðan, ásamt nafni og heimilisfangi Merkið um
slagið: Vikublaðið Fálkinn. pósthólf 1411 og neðanti)
ORÐ AF ORÐI 5.
• KR-lngar
Framh. af bls. 37.
koníakinu?“ spurði ég.
„Þetta er þriðja flaskan,
sem þau eru að byrja á,“
sagði Siggi.
Og þarna átti ég að liggja
með tvo blindfulla lækna,
einn blindfullan eiginmann
og velhífaða ljósmóður.
Ég öskraði hátt:
„Hjálp! Hjálp!“
Ljósmóðirin og læknarnir
komu öll hlaupandi.
„Burt með þetta,“ sagði
ég og benti á Sigga.
„Svona, svona blessunin,“
sagði ljósmóðirin og hristi
koddann minn. „Hann má
vera hérna.“
„Ef hann fer ekki inn í
stofu fer ég inn í stofu,“
sagði ég hávær.
„Þú lítur illa út,“ sagði
heimilislæknirinn minn, og
ég ljómaði við tilhugsunina
um að einhver skildi hvern-
ig mér leið.
Svo sá ég að hann var að
tala við Sigga.
„Hvernig hefur þú það?“
spurði heimilislæknirinn
minn svo þegar hann sá hve
gífurlega ég móðgaðist.
„Hryllilega," sagði ég, og
þeir hlógu allir. „Eigum við
ekki að skella í okkur ein-
um koniakssjússinum enn?“
spurði hann Sigga og þeir
fóru allir fjórir út.
Næst þegar ég opnaði aug-
un stóð Ijósmóðirin hjá mér.
Hún var að gefa mér aðra
sprautu.
„Gaman að sjá þig,“ sagði
ég eins hæðnislega og mér
V
FÁLKINN 41