Fréttablaðið - 07.10.2009, Blaðsíða 10
10 7. október 2009 MIÐVIKUDAGUR
FJÖLMIÐLAR Guð blessi Ísland,
heimildarmynd Helga Felixson-
ar um efnahagshrunið, gæti talist
utan hefðbundinna viðmiða í blaða-
mennsku, miðað við það sem við-
mælendur Fréttablaðsins hafa séð
af henni.
Þá er það mjög óheppilegt fyrir
blaðamennsku því það hræðir aðra
hugsanlega viðmælendur frá frétta-
mönnum, segir Jónas Kristjánsson,
fyrrverandi ritstjóri.
„Fyrir það fyrsta eru almennar
siðareglur í blaðamennsku og það
gildir líka um heimildarmyndagerð,
sem kveða á um að þú látir fólk vita
ef það er í viðtali,“ segir Birgir Guð-
mundsson, lektor í fjölmiðlafræði.
„Síðan geta verið undantekning-
ar, til dæmis þegar notuð er falin
myndavél. En þá þurfa að vera
ákveðin skilyrði, eins og að ekki sé
hægt að fá upplýsingarnar með hefð-
bundnum aðferðum. Einnig að þetta
sé skipulagt fyrirfram og menn viti
hvað þeir ætla að fá fram,“ segir
Birgir. Hann tekur fram að hann
tali almennt, því hann hefur ekki
séð myndina.
Helgi Felixson hefur kynnt mynd
sína á sjónvarpsstöðvum og sýnt
þar myndbrot sem eru tekin upp
án vitundar viðmælenda.Hann
hefur viðurkennt að ganga á
bak orða sinna, það er brotið
samkomulag við viðmælend-
ur. Helgi heldur því fram að
viðmælendur hans í myndinni
hafi einnig brotið samkomulag
við aðra.
Jónas Kristjánsson
segist andvígur aðferð-
um á borð við þær sem
Helgi notar, þær gangi
gegn viðurkenndum hefðum blaða-
mennskunnar.
„Hann er bara að auðvelda sér
vinnuna á líðandi stund. Svo fréttist
þetta út og þegar næsti maður ætlar
að gera svona heimildarmynd lendir
sá í vandræðum því allir eru orðn-
ir fullir af efasemdum og hrædd-
ir. Hann er því að spilla bæði fyrir
sjálfum sér en sérstaklega fyrir
öðrum kvikmyndagerðarmönnum
og blaðamönnum með því að gera
svona,“ segir Jónas.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, for-
maður Blaðamannafélags Íslands,
vill ekki fjalla um aðferðir Helga
fyrr en hún hefur séð myndina.
Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður
Björgólfsfeðga, kemur fram í mynd-
inni óafvitandi. Hann vill ekki ræða
vinnubrögð Helga, en segir þau
koma á óvart.
„Miðað við brotið sem við höfum
séð af okkar þætti í myndinni er
maðurinn ekki að gera það sem
hann sagðist ætla að gera,“ segir
hann.
Hafliði Helgason, aðstoðarmað-
ur Bjarna Ármannssonar, vildi ekki
tala um hlut Bjarna í myndinni og
ekki náðist í Jón Ásgeir Jóhannes-
son, en þeir Bjarni eru viðmælendur
Helga í myndinni.
klemensfrettabladid.is
1 Hvað heitir eiginkona Gor-
dons Brown, forsætisráðherra
Breta?
2 Hver voru talin standa sig
best í knattspyrnunni í sumar?
3 Hvaða fréttamaður er að
byrja með matreiðsluþátt?
SVÖRIN ER AÐ FINNA Á SÍÐU 26
*
M
.v
. 1
5
0
þ
ús
un
d
kr
. i
nn
le
nd
a
ve
rs
lu
n
á
m
án
uð
i,
þ.
a.
1
/3
h
já
s
am
st
ar
fs
að
ilu
m
. /
S
já
n
án
ar
á
w
w
w
.a
uk
ak
ro
nu
r.i
s.
40 andlitshreinsar
á ári fyrir Aukakrónur
Þú getur keypt þér 3 andlitshreinsa í mánuði í apótekum Lyfja & heilsu fyrir Aukakrónurnar
sem safnast þegar þú notar A-kortið þitt – eða fengið þér eitthvað annað sem þig langar í hjá
samstarfsaðilum Aukakróna.
*
AUKAKRÓNUR | landsbankinn.is | 410 4000
Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is
N
B
I h
f.
(L
an
ds
ba
nk
in
n)
, k
t.
47
10
0
8
-2
0
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
9
3
2
1
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Bílavarahlutir
TYRKLAND, AP Lögreglan í Istanbúl
beitti þrýstivatnsslöngum, táragasi
og piparúða til að dreifa hundruð-
um manna sem komu saman til að
mótmæla ársfundi Alþjóðabankans
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Tugir grímuklæddra mótmæl-
enda flúðu út í hliðargötur frá
Taksimtorgi, sem er skammt frá
fundarstaðnum. Á leiðinni brutu
þeir rúður á MacDonalds-veitinga-
stað og í nokkrum bönkum ásamt
því að skemma bifreiðar.
Mótmælendurnir reyndu síðan
hvað eftir annað að ráðast til
atlögu gegn lögreglunni, vopnaðir
eldsprengjum og slöngvibyssum.
Meira en 70 mótmælendur voru
handteknir, en lögreglan hafði girt
fundarstaðinn af með rammgerð-
um hindrunum.
Talið er að flestir mótmælend-
anna hafi komið úr röðum lítilla
vinstriflokka og verkalýðsfélaga.
Einnig er talið að hópur erlendra
mótmælenda hafi verið með í
aðgerðunum.
Viðræður um aðstoð Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins við Tyrk-
land hafa gengið hægt. Tyrknesk
stjórnvöld hafa verið treg til að
fallast á kröfur sjóðsins um nið-
urskurð ríkisútgjalda og aðhalds-
aðgerðir.
Í síðustu viku kastaði fjölmiðla-
nemi skó í áttina að Dominique
Strauss-Khan, framkvæmdastjóra
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, þegar
hann svaraði spurningum í háskóla
í Istanbúl. - gb
Táragasi, piparúða og þrýstivatnsslöngum beitt á mótmælendur í Istanbúl:
Tugir manna handteknir
ÁTÖK Í ISTANBÚL Grímuklæddir mót-
mælendurnir voru vopnaðir eldsprengj-
um og teygjubyssum. NORDICPHOTOS/AFP
Fagmenn gagnrýna
Guð blessi Ísland
Það getur skaðað blaðamennsku þegar farið er út fyrir hefðbundin mörk, líkt
og virðist gert í heimildarmyndinni Guð blessi Ísland. „Maðurinn er ekki að
gera það sem hann sagðist ætla að gera,“ segir talsmaður Björgólfsfeðga.
ÁSGEIR
FRIÐGEIRSSON
■ Blaðamaður leitast við að gera
ekkert það, sem til vanvirðu má
telja fyrir stétt sína […]. Honum
ber að forðast hvaðeina sem rýrt
gæti álit almennings á starfi blaða-
manns […]
■ Blaðamaður virðir nauðsynlegan
trúnað við heimildarmenn sína.
■ Blaðamaður vandar upplýsinga-
öflun sína, úrvinnslu og framsetn-
ingu svo sem kostur er og sýnir
fyllstu tillitssemi í vandasömum
málum.
■ Í frásögnum af dóms- og refsi-
málum skulu blaðamenn virða þá
meginreglu laga að hver maður er
talinn saklaus þar til sekt hans hefur
verið sönnuð.
■ Blaðamaður hefur í skrifum sínum
sannfæringu sína að leiðarljósi.
ÚR SIÐAREGLUM BLAÐAMANNAFÉLAGS
JÓNAS
KRISTJÁNSSON
BIRGIR GUÐ-
MUNDSSON
HELGI
FELIXSON
SJÁVARÚTVEGUR Írar ráða yfir 650
þúsund ferkílómetra svæði undir
sjávarmáli, því mesta í Evrópu-
sambandinu.
Að því er írska ríkisútvarpið
greinir frá kom fram á ráðstefnu
um rannsóknir á sjávarbotni Íra
að þar á landi sé horft til stór-
aukinnar nýtingar auðlinda hafs-
ins og sjávarbotnsins. Ávinn-
ingur fyrir írska hagkerfið gæti
numið milljörðum evra. Ráðstefn-
an hófst í gær og lýkur í dag. Til
samanburðar má nefna að lögsaga
Íslands nemur 758 þúsund ferkíló-
metrum innan tvö hundruð mílna
lögsögunnar og sjávarbotn nálægt
milljón ferkílómetrum. - óká
Írar eiga mestan sjó í ESB:
Horfa til auk-
innar nýtingar
VEISTU SVARIÐ?