Fréttablaðið - 07.10.2009, Blaðsíða 15
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Erlendir vogunarsjóðir hafa gert nokkrum stór-
um kröfuhöfum fjárfestingarbankans Straums
óformlegt tilboð um kaup á hluta af skuldum
Straums með allt að tuttugu prósenta afslætti frá
upphaflegu kaupverði. Af verðhugmyndum þeirra
má ætla að þeir reikni með að nauðasamning-
ar verði samþykktir því áætlanir gera ráð fyrir
að almennir kröfuhafar Straums fái allt frá 33
upp í 77 prósentur greiddar af almennum kröf-
um sínum eða 54 prósent að meðaltali.
Náist nauðasamningar ekki verður Straumur
lýstur gjaldþrota og ljóst að heimtur versni til
muna en áætlað er, að endurheimtur við gjald-
þrot verði um 11 prósent eða minna.
Á meðal helstu kröfuhafa Straums eru þýski
risabankinn Commerzbank og austurríski bank-
inn Raiffeisen Zentralbank. Kröfuhafar munu
hafa verið mótfallnir tilboðinu og virðast þeir
frekar styðja nauðasamningaleiðina enda heimt-
ur áætlaðar mun betri ef sú leið er farin. Náist
samningar er stefnt að því að skipta Straumi
upp í tvö fyrirtæki, jafnvel í kringum áramót-
in: Annars vegar verður til eignastýringafyrir-
tækið Straumur, sem tekur við eignum núver-
andi banka og greiðir niður langtímaskuldir. Hins
vegar verður stofnaður fjárfestingabanki sem
verður í eigu sömu kröfuhafa og Straumur hefur.
Hann mun líklega ekki bera heiti Straums. Gangi
allt eftir mun nýi bankinn einbeita sér að fyrir-
tækjaráðgjöf og miðlun með skuldabréf, hluta-
bréf og gjaldeyri en bankinn mun verða fjárfest-
ingabanki með takmarkaðan efnahagsreikning og
ekki stunda innlána- eða útlánaviðskipti. Miðað
við skiptingu krafna verður nýi bankinn um sjö-
tíu prósent í eigu erlendra aðila og þrjátíu pró-
sent í eigu innlendra aðila.
Líkt og fram kom í Fréttablaðinu í síðustu viku
hefur verið líflegur markaður með skuldabréf
gömlu bankanna í erlendri mynt. Þar hefur sömu-
leiðis kveðið mest að bandarískum sjóðum, sem
hafa keypt skuldabréf bankanna af evrópskum
kröfuhöfum gömlu bankanna. Fjárfestar keyptu
bréfin með 95 til 98 prósenta afslætti skömmu
eftir ríkisvæðingu bankanna í fyrra. Verð bréf-
anna hefur margfaldast síðan þá, er nú fjórfalt
til ellefufalt hærra. Þetta fer þó bæði eftir þeirri
mynt sem bréfin eru í og skuldabréfaflokkum.
Eftir því sem næst verður komist er endur-
heimtuhlutfall almennra krafna hæst hjá Straumi
en lægst hjá Landsbankanum. Nærtækasta skýr-
ingin felst í viðskiptamódeli bankanna fjögurra.
Straumur var ekki með almenna innlánsreikn-
inga líkt og hinir bankarnir þrír. Miðað við áætl-
aðar endurheimtur sem Markaðurinn hefur undir
höndum er gert ráð fyrir sambærilegum endur-
heimtum hjá Glitni og gamla Kaupþingi, sem
bendir til að viðskiptamódelin hafi verið áþekk.
Þeir sem Markaðurinn ræddi við í gær telja við-
skiptamódel Landsbankans hins vegar áhættu-
samast og skýri það verri endurheimtur eins og
staðan sé í dag.
Skilanefndir Kaupþings og gamla Landsbank-
ans vildu ekki tjá sig um endurheimtuhlutfall
bankanna þegar þær voru inntar eftir því í gær.
Landsbankinn kynnti kröfuhöfum nýja áætlun um
endurheimt krafna fyrir stuttu og birtir hana op-
inberlega á næstu dögum. Það mun þó ekki vera
langt frá fyrra mati.
4
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Miðvikudagur 7. október 2009 – 26. tölublað – 5. árgangur
Ný krabbategund
Matarmikill
grjótkrabbi finnst
við Ísland 2
Verðbréfamarkaðir
Uppsveifla í
Bandaríkjunum og Japan
VIÐSKIPTI
Allt á einum stað – betri kjör
Þú nýtur betri kjara og yfi rsýnar með því
að hafa allt á einum stað í færsluhirðingu.
Hafðu samband við okkur í síma 560 1600
eða á tilbod@borgun.is og við gerum þér
tilboð um heildarlausn í færsluhirðingu.
Græna
prentsmiðjan
Erlendir sjóðir vilja
skuldir Straums
Kröfuhafar bankanna fá mismikið greitt til baka af lánum
sínum. Áhættufjárfestar sjá gróðavon í braski með þrotabú.
Skúli Mogensen í Oz
Þolinmæði
mikilvæg í
frumkvöðlastarfi 6
Uppspretta heitir nýtt lánafyr-
irgreiðslufyrirtæki sem hafið
hefur starfsemi. Á samnefndum
vef, uppspretta.is, er höfð milli-
ganga um að veita fólki og fyrir-
tækjum svonefnd örlán.
Á vefnum eru leiddir saman
lántakendur og -veitendur, en
lánin eru á bilinu 50.000 til
3.000.000 króna. Lánstími getur
verið að lágmarki einn mánuður
og að hámarki 36 mánuðir.
Í tilkynningu segir að mikil
áhersla sé lögð á gagnsæi upp-
lýsinga og með hverri umsókn
fylgi lánshæfi lántakanda, jafn-
framt er hægt að spyrja lántak-
anda spurninga áður en tekin
er ákvörðun um hvort veita eigi
lán.
Örlánavefur
opnaður
Banki Hlutfall Verð skuldabréfa á markaði
Gamli Landsbankinn 0-5% 5-7%
Gamla Kaupþing 20-46% 19,5-20,5%
Glitnir 22-33% 21-22%
Straumur 33-77%* -
* Engin skráð skuldabréf á markaði
S A M A N B U R Ð U R Á Á Æ T L U Ð U M
E N D U R H E I M T U M A L M E N N R A K R A F N A
Hátt gullverð l Heimsmarkaðs-
verð á gulli sló nýtt met í gær
þegar únsan fór í 1.038 dollara
á fjármálamarkaði í New York í
Bandaríkjunum. Fyrra verðmet
var slegið í mars í fyrra þegar það
fór í 1033,9 dali. Það var í kjölfar
fjárhagsvandræða Bear Stearns.
Frekari svartsýni l Hagfræði-
prófessorinn dr. Nouriel Roubini,
sem þekktur er sem herra dóms-
dagur, varar við snarpri hækk-
un á gengi hlutabréfa. Af þeim
sökum telur hann að þessir mark-
aðir muni taka dýfu niður á við
á yfirstandandi ársfjórðungi eða
fyrsta ársfjórðungi á næsta ári.
Brugðist við bata l Seðlabanki
Ástralíu hefur hækkað stýrivexti
um 25 punkta og verða þeir eft-
irleiðis 3,0 prósent. Ástralir eru
fyrsta ríkið af tuttugu umsvifa-
mestu iðnríkjum heims til að
bregðast við efnahagsbatanum
með hækkun stýrivaxta.
Loka í japan l French Connect-
ion, ein þekktasta tískuvörukeðja
Bretlands, hefur ákveðið að loka
öllum verslunum í Japan. Þær eru
21 talsins. Með þessu ætlar stjórn
verslanakeðjunnar að hagræða í
rekstri og draga úr tapi. Þrotabú
Baugs á tæpan átján prósenta hlut
í French Connection.
Á barmi gjaldþrots l Royal
Bank of Scotland (RBS) rambaði
á barmi gjaldþrots og mátti litlu
muna að hann færi á hliðina þegar
bresk stjórnvöld komu honum til
hjálpar í október í fyrra, að því
er breska blaðið Financial Times
hefur eftir ónafngreindum heim-
ildarmanni.
„Ástæðan fyrir þessu eru er-
lendu lánin sem voru tekin við
kaup á Húsasmiðjunni árið 2005.
Gengishrunið hefur haft neikvæð
áhrif. Við erum í skilum en eig-
infjárstaðan er neikvæð,“ segir
Steinn Logi Björnsson, forstjóri
Húsasmiðjunnar. Eignarhaldsfé-
lagið Vestia tók félagið yfir á að-
alfundi Húsasmiðjunnar í gær.
Vestia er dótturfélag Lands-
bankans sem heldur utan um
eignir sem bankinn hefur tekið
yfir.
Steinn Logi áréttar að þetta
hafi verið ákveðið í kjölfar skila
á ársreikningi.
Eigendur Húsasmiðjunnar
voru SPV, dótturfélag Byrs, sem
eignaðist hlutinn við yfirtöku á
Primusi, félagi Hannesar Smára-
sonar í fyrra, Hagar, móðurfélag
Hagkaupa og fleiri verslana, og
Saxsteinn, dótturfélag Saxbygg
sem er í skiptameðferð. - jab
Bankinn tók
Húsasmiðjuna