Fréttablaðið - 07.10.2009, Side 16
MARKAÐURINN 7. OKTÓBER 2009 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
„Það er ógerningur að segja til um hvenær nið-
urstöðu er að vænta frá okkur,“ segir Ólafur Þór
Hauksson, sérstakur saksóknari um efnahagshrun-
ið, spurður um næstu skref í kjölfar húsleitar starfs-
manna embættisins hjá endurskoðunarfyrirtækjun-
um PriceWaterhouseCoopers og KPMG á fimmtu-
dag í síðustu viku.
Sama máli gegnir um önnur mál á borði embættis-
ins. Þar á meðal eru gögn eftir húsleit á skrifstofum
Milestone og Sjóvár og á heimilum forsvarsmanna
fyrirtækjanna í byrjun júlí. Ólafur segir að búið sé
að fara í gegnum hluta gagnanna.
Hann bendir á að starfsmenn embættisins hafi
stundum þurft að leggja önnur mál tímabundið til
hliðar þegar beina hafi þurft kröftunum að öðrum
og brýnni. Við húsleitina á föstudag hafi nær allir
starfsmenn lagst á eitt enda hald lagt á meira magn
gagna en í fyrri húsleitum.
Fimmtán vinna nú hjá embætti sérstaks saksókn-
ara og er verið að fjölga starfsmönnum, að sögn Ólafs
Þórs. - jab
SÉRSTAKUR SAKSÓKNARI Þeir sem rannsaka efnahagshrunið
þurfa stundum að leggja mál frá sér þegar önnur brýnni koma
upp. MARKAÐURINN/STEFÁN
Starfsmannaskortur tefur rannsókn
Forsvarsmenn fimm íslenskra
sprotafyrirtækja og tvö norsk
kynna starfsemi sína fyrir
áhættufjárfestum á sprotaþingi
Seed Forum í salarkynnum Kaup-
þings á föstudagsmorgun.
Seed Forum blæs til fjárfesta-
þings að vori og hausti og er þetta
það tíunda í röðinni.
Meðal fyrirtækja sem kynntu
starfsemi sína á fyrsta þinginu í
apríl 2005 voru CCP og ORF Líf-
tækni. Talsverður fjöldi af sprota-
fyrirtækjum hefur bæst við síðan
þá, svo sem Caoz, Gogogic, Mar-
orka, Trackwell, Carbon Recyc-
ling International, Gogoyoko og
síðast E-Label.
„Þetta er sögulegt,“ segir dr.
Eyþór Ívar Jónsson, framkvæmda-
stjóri Seed Forum. Hann bætir
við að fáir hafi trúað því að fjár-
festaþingið myndi tóra þetta lengi.
„Það var lítill áhugi á sprotafyrir-
tækjum þegar við byrjuðum. Nú
héldu menn að þingið myndi leggj-
ast af þar sem allir fjárfestarn-
ir hefðu dáið út í fjármálakrís-
unni. Enn er þó mikill áhugi á
þessu,“ segir Eyþór og bætir við
að vettvangur á borð við Seed
Forum sé mikilvægur forsvars-
mönnum sprotafyrirtækja til að
byggja upp sambönd og læra að
gera fyrirtækin fjárfestingahæf.
Vandamálið snúi orðið nær ein-
göngu að stöðu Íslands, sem hafi
valdið því að erlendir fjárfestar
eru tortryggnari en áður um fjár-
festingu hér. Um fyrirtækin gegni
öðru máli: „Hér er fullt af fyrir-
tækjum að gera góða hluti.“
Stefnt er að því að Steingrímur
J. Sigfússon flytji opnunarávarp
og Finnur Sveinbjörnsson, banka-
stjóri Kaupþings, flytji erindi.
Þá munu tveir erlendir reynslu-
boltar flytja tölu um fjárfesting-
ar í sprotafyrirtækjum.
- jab
Fjárfesta leitað
í tíunda sinn
Fyrirtækjaheiti Tegund fyrirtækis
Íslensk:
ReMake Electric ehf. Þróa sparneytin rafmagnsöryggi
MindGames Tölvuleikir sem stjórnað er með huganum
Kerecis Lækningavörur úr fiskiprótínum
TellmeTwin Samskipta- og meðmælavefur
Spennandi Fatnaður fyrir stangveiðifólk
Norsk:
Electra Automotive Framleiðir rafbíla
Carbatt Systems Þróar rafkerfi og rafhlöður fyrir rafbíla
F Y R I R T Æ K I N Í Á R
EYÞÓR ÍVAR Fáir höfðu trú á að Seed
Forum myndi tóra lengi þegar það byrjaði
fyrir fjórum árum.
Sigríður B. Tómasdóttir
skrifar
Grjótkrabbi finnst í töluverðum mæli á nokkrum stöð-
um við Suðvesturland, einkum þó í Hvalfirði. Þetta
er niðurstaða rannsóknar sem unnin er við Háskóla
Íslands. Grjótkrabbi er krabbategund sem veidd er
til manneldis undan ströndum Kanada. Krabbinn er
töluvert stærri en til dæmis trjónukrabbi sem hefur
verið veiddur hér við land en skelin á grjótkrabba er
um 14 sentímetrar í þvermál.
Að sögn Halldórs Pálmars Halldórssonar, líffræð-
ings hjá Náttúrufræðistofu Reykjaness, bendir allt til
þess að krabbinn sé í nýtanlegu magni hér við land en
einkum hefur fundist mikið magn af honum í Hval-
firði. „Fjöldi krabba sem kemur í gildru hjá okkur er
alveg sambærilegur við það sem þekkist í Kanada.“
Krabbategund þessi fannst fyrst svo vitað sé árið
2006 við Ísland en þá færði kafari Jörundi Svavars-
syni, prófessor við Háskóla Íslands, eintak af krabban-
um. Það var svo í framhaldi af því að tveir nemendur,
þeir Óskar Sindri Gíslason og Marinó Fannar Páls-
son, hófu rannsóknir á grjótkrabba við Ísland undir
handleiðslu Jörundar og Halldórs.
Nú þremur árum síðar er komið í ljós að magnið er
töluvert. „Við höfum fundið hann í Kollafirði, Skerja-
firði, nokkur eintök hafa fengist í Breiðafirði og svo
í Hvalfirði,“ segir Halldór.
Líklegasta skýringin á þessum nýbúa í náttúrulífi
landsins er sú að lirfa hans hafi komið hingað í kjöl-
festuvatni stórra skipa. Kjölfestuvatn er sjór sem er
dælt í kjöl skipa til að gera þau stöðugri á siglingu
en lífverur berast auðveldlega með slíku vatni. Stærð
krabbans sem fannst árið 2006 bendir til þess að hann
hafi verið hér við land í um tíu ár áður en rannsókn-
in á honum hófst.
Krabbinn er eins og áður sagði veiddur undan
ströndum Norður-Ameríku. Þar veittu sjómenn
honum fyrst athygli þegar hann kom í humargildr-
ur, fyrst var honum hent en svo þegar menn fóru að
skoða hann nánar og smakka þá komust menn að því
að hann er herramannsmatur. Grjótkrabbi er kjöt-
meiri en trjónukrabbi og segir Halldór, að fenginni
reynslu, hann vera mjög bragðgóðan. Ekki eru áform
um að hefja veiðar á grjótkrabba en Halldór segir
marga hafa fylgst með rannsóknunum og sýnt þeim
áhuga. „Fjöldi trillukarla fylgist með rannsóknum
okkar og hafa verið að velta möguleikanum á nýt-
ingu fyrir sér.“
Halldór bendir á að byrja þyrfti á hóflegum veiðum
ef út í það færi, stofnstærðin hafi ekki verið áætluð
en verið sé að skoða hana. Hver áhrif krabbans á líf-
ríkið við Íslandsstrendur verða er algjörlega óljóst og
segir Halldór: „Það mun tíminn leiða í ljós.“
Ný krabbategund
Grjótkrabbi er krabbategund sem fannst í fyrsta skipti við
Ísland fyrir þremur árum. Rannsóknir vísindamanna benda
til þess að hann sé hér í nýtanlegu magni.
VEITT Í ÞÁGU VÍSINDA Óskar Sindri Gíslason til vinstri og
Marinó Fannar Pálsson við gildruveiðar í Hvalfirði.
• Hagstæðar afborganir
• Söluaðilar geta valið um lán með breytilegum vöxtum eða vaxtalaus
• Söluaðilar greiða ekkert þjónustagjald af Kortalánum
• VALITOR greiðir út til söluaðila annan virkan dag eftir að sala fer fram
FYRIRTÆKJALAUSNIR VALITOR • Laugavegi 77 • 101 Reykjavík • fyrirt@valitor.is • www.valitor.is
Verð á olíutunnu hækkaði um
rúm 40 sent í gær og fór yfir 71
Bandaríkjadal í Asíu. Má rekja
hækkunina til þess að að aukn-
ing á heimsbirgðum olíu hafi ýtt
undir traust fjárfesta.
Verð á olíu hefur lónað í kring-
um 70 dali á tunnu undanfarna
mánuði, meðan fjárfestar reyna
að greina hversu vel bandarískt
efnahagslíf réttir
úr kútnum. Hækk-
unina má einnig
að einhverju leyti
rekja til veikingar
bandaríkjadals.
Olíuverð
hækkar Vika Frá ára mót um
Atlantic Petr. -0,6% -39,3%
Bakkavör -17,1% -41,8%
Föroya Bank -3,1% 14,5%
Icelandair 11,4% -81,6%
Marel 4,8% -15,3%
Össur -0,4% 22,9%
Úrvalsvísitalan OMXI6 812
*Miðað við gengi í Kaup höll í gær.